Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Side 160
i6o
Jón fórðarson Thoroddsen
skóla og settist í efra bekk og útskrifaðist þaðan um vorið
1840, á fyrsta ári um tvítugt. Næsta vetur dvaldi Jón Thor-
oddsen á Hrafnagili í Eyjafirði við kenslustörf, en sigldi svo
til háskólans f Kaupmannahöfn með Búðaskipi um sumarið
1841, dvaldi svo tvo vetur í Höfn en fór 1843 snöggva ferð
til Islands aftur og var um sumarið hjá foreldrum sínum á
Reykhólum.
Ekki vissu skólabræður Jóns Thoroddsens til þess, að
hann fengist við skáldskap eða yrti vísur eða kvæði meðan
hann var í skóla, en þó hafði hann snemma borið við að
yrkja, það sýnir vísan um Barmahh'ð hjá Reykhólum, sem
hann orti 13 vetra:
Brekkufríð er Barmahlfð
blómum víða sprottin,
fræðir lýði fyr og síð:
fallega smíðar drottinn.
Og ári síðar orti hann:
Til bókar er jeg lítt lagaður,
lengi sit ei að;
ætli það verði úr mjer maður?
— ekki held jeg það.
Það er enginn klaufi sem yrkir svona fyrir innan ferm-
ingu; hagmælskan hefur auðsjáanlega verið honum meðfædd.
Á Nerðurlandi hitti Jón Thoroddsen Bjarna amtmann Thor-
arensen og tók amtmaður honum vinsamlega í frændsemis-
skyni, þvl þeir voru að þriðja og fjórða frá sfra Páli á
Hvanneyri, föður Bjarna landlæknis. Amtmaður varð þess var,
að Jón var hagmæltur og ýtti undir hann að yrkja; þó mun
hann ekki hafa gert mikið að því á þessum árum og fyrstu
árin, sem hann var f Kaupmannahöfn. I Höfn tók Jón
Thoroddsen mikinn þátt í hinu fjöruga stúdentalífi, sem þar
var þá meðal íslendinga. las lögfræði í orði kveðnu, en »ljek
meiri hugur á að ganga aðrar leiðir en þær sem leiddu að
embættisprófi«, segir Jón -Sigurðsson. Á þeim árum orti hann
ýms kýmniskvæði og sýndi það sig fljótt, að honum ljet betur
þesskonar kveðskapur en flestum íslendingum öðrum; hann
var eins og Jón Sigurðsson segir >manna fyndnastur og orð-
heppnastur, snarphæðinn, en þó græskulaus*. Þá orti hann
og ýms ættjarðarkvæði, s>sem votta brennandi ást til fóstur-
jarðarinnar*.
Vorið 1847 fór Jón Thoroddsen enn til íslands og
dvaldi um sumarið hjá móður sinni á Reykhólum, faðir hans
var dáinn árinu fyr, en um haustið hvarf Jón Þórðarson aftur