Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1919, Side 170
17»
Jukob Jakobsen
Færeyjum, sem hann hafði rannsakað mjög nákvæmlega. Var
það óbætanlegt tjón að missa hann frá þessu.
Jakobsen varð um aldamótin fjelagi í hinu norska vís-
indafjelagi og skömmu fyrir ófriðinn fekk háskólinn í Aberdeen
hann til að koma þangað, til að halda þar fyrirlestra um
norrænuna þar vestra (vorið 1914); var í ráði hann hjeldi þar
árlega fyrirlestra, en ófriðurinn hindraði það.
Til Færeyja kom Jakobsen bæði 1915 og 1916. 1915
var kennaranámskeið í eyjunum, og bað færeyska kennarafje-
lagið hann um að halda einn fyrirlestur fyrir þá um færeysku
Hann bað þá um að mega halda þrjá, og stóð hver þeirra
1 2 x/3 tíma. í’ótti kennurum mjög vænt um það.
Jakobsen var mjög viðfeldinn maður, hógvær og laus við
allan hjegóma. Nægjusemi var honum meðfædd. Hann vár
hjálpsamur maður, og hafði ríka sannleiksást og rjettlætistil-
finningu. Honum var ljúft að viðurkenna verk annara. Á
síðustu árunum tók heilsa hans mjög að bila. Banamein hans
var nýrnasjúkdómur, og andaðist hann fjórum dögum eftir
holskurð.
Jakobsen var einstaklega vinsæll á meðal landa sinna og
þeirra, sem hann kyntist, en hann var ekki mannblendinn
maður nje framur.
Jakobsen hvílir í reit Færeyinga í Vestra kirkjugarði í
Kaupmannahöfn. Allir landar hans og vinir, sem hjer voru,
fylgdu honurn til grafar á sólbjörtum sumardegi og lögþingið
færeyska ljet gróðursetja rósir á leiði hans, Við jarðarför hans
varð jeg þess var, að Færeyingar í Kaupmannahöfn eiga sinn
eiginn reit, en það eiga íslendingar ekki, og hafa víst aldrei
átt, þótt þeir sjeu hjer margfalt fleiri en Færeyingar. Fyrir
því hvíla þeir hingað og þangað í öllum kirkjugörðum borg-
arinnar, og ekki hægt að vita hvar, þótt um hina merkustu
menn sje að ræða. Bogi Th. Melsteb.
Lát þriggja stúdenta. Spánska veikin hefur höggið
skarð í hóp hinna ungu íslendinga í Kaupmannahöfn í vetur,
og voru þrír þeirra, sem dáið hafa, stúdentar:
Pórhallur Sigtryggsson Esphólin, fæddur á Espihóli
í Eyjafirði 20. desember 1895, dáinn 24. oktbr. 1918. For-
eldrar hans voru Sigtryggur timburmeistari Jónsson og kona
hans Guðný Þorkelsdóttir. Hann útskrifaðist úr almenna
mentaskólanum í Reykjavík i9i6, og las hagfræði.
Georg Valdimar Búason, fæddur að Kollsá í Hrúta-
firði 30. janúar 1895, dáinn 4. desember 1918. Foreldrar
hans voru Búi bóndi Jónsson og kona hans Guðrún Brands-