Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1984, Síða 11
DV .MÁNUDAGUR 4 JÚNÍ1984.
- 11
■
Jón Hjaltalín Magnússon, nýr formaður HSl: — Beitir visindalegum vinnubrögðum á stjórnarfundum.
Bömin helsta áhugamáliö
— segir rafeindaverkf ræðingurinn Jón Hjaltalín Magnússon,
Handknattleikssamband Islands
hefur fengið nýjan formann, rafeinda-
verkfræðinginn Jón Hjaltalín Magnús-
son, og sá hefur í mörg hom að líta.
Auk hins nýja embættis vinnur Jón
þessa stundina að endurskoðun á hag-
nýtri rannsóknarstarfsemi í Háskóla
Islands og svo hefur hann nýverið
stofnað félagið Verkefnastjómun
ásamt nokkrum öðrum verkfræðing-
um.
„Þetta nýja félag ætlar að einbeita
sér að því aö innleiða ný vinnubrögð
við skipulagningu verkefna hjá fyrir-
tækjum og öðrum. Eg beitti þessu t.d.
á fyrsta stjómarfundinum hjá HSI þar
sem ég sat í forsæti með þeim árangri
að aðeins eitt verkefni kom i minn hlut
og það var fjáröflunin,” sagði Jón sem
nýkjörinn formaður HSÍ
eins og kunnugt er er ekki alls
ókunnugur handknattleik, hefur leikið
54 landsleiki fyrir Islands hönd, orðið
Sviþjóðarmeistari einu sinni og var
frægur viða um lönd fyrir skothörku
sína sem þótti með eindæmum. Fáir
boltar þöndu netamöskvana jafn-
svakalega og þeir sem hmkku úr hendi
Jóns en'nú hefur hann fengið áhuga á
annars konar netum:
„Eg hef starfað mikið við vömþróun
og markaðsmál og hef sambönd víða
um heim eftir störf mín hjá Kochums
skipasmíðastöðinni i Sviþjóð þar sem
ég starfaði í 6 ár að loknu námi. Þessi
sambönd hef ég nú í hyggju að not-
færa mér til að koma Markúsametinu,
björgunameti Markúsar Þorgeirs-
sonar.á framfæri á heimsmarkaði. Eg
hef tröllatrú á því fyrirtæki og tel net
Markúsar vera merkustu uppfinning-
una á björgunarsviðinu frá því að
björgunarhringurinn var fundinn
upp.”
Jón Hjaltalín Magnússon er borinn
og barnfæddur Reykvíkingur sem
fluttist ungur inn í Bústaðahverfi og
því varð Víkingur félagslið hans á
yngri árum. Hann hefur verið kvæntur
Sonju Guðmundsdóttur í 15 ár og eiga
þau þrjú böm. „Bömin em mitt helsta
áhugamál þó því sé ekki að leyna aö
mikill timi fer í húsbyggingar. Svo
erum við líka að reisa okkur sumarhús
undir Esjunni þar sem allri fjölskyid-
unni mun gefast kostur á að rækta
garðávexti í framtíðinni,” sagði hinn
nýkjömiformaðurHSI. -EIR.
Heilbrigðis- og tryggingamál:
MATTHÍAS í LANDSÞEYSU
ann mætir þar einnig með þrjá menn
meðsér.
Síðar verða fundir á Akureyri,
Húsavík, Blönduósi, Sauðárkróki,
Egilsstöðum, Höfn, Selfossi, í Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Hafnar-
firðL
HERB
Heilbrigðis- og tryggingaráðherra
mun standa fyrir 14 fundum í öllum
kjördæmum landsins í sumar. Ráð-
herrann, Matthías Bjarnason, heldur
sjálfur inngangserindi á öllum
fundunum. Tvö eða þrjú önnur erindi
verða síöan flutt á hverjum fundi um
afmarkaö efni. Allt snýst þetta um
kynningu á ýmsum þáttum
heilbrigðismála og almannatrygg-
ingamála.
Fundaferðin hefst í heimabæ
ráðherrans, á lsafirði, 7. júní. Þar
verða með honum þrír framsögu-
menn. Sama lið mætir á Patreksfirði
daginn eftir.
I Olafsvík verður fundur 14. júní
og daginn eftir á Akranesi. Ráðherr-
SNUÐ OG PELAR
MIKIJLVÆGUR
. ÞATTUR
MOÐURLEGRAR
UMHYGGJU
FÆST í APÓTEKINU
IB
mrn
Spietbere zum
Be-areífenlemen
ÞÓRA DAL. AUGLÝSINGASTOFA