Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Side 2
2
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
Miklar
skemmdir
vegna flóða
Við Syðriskálaá í Ljósavatns-
hreppi fór brúin í sundur nú fyrir
helgi vegna mikils flóðs og er hún
talin ónýt. Áin varð mjög vatns-
mikil og gróf frá brúarstólpa með
fyrrgreindum afleiðingum. Nokk-
urt tjón varð við rafetöð, m.a. braut
áin niður rafetöðvarstíflu. Við
Nípá varð líka mikið flóð og mun-
aði litlu að illa færi. Áin flæddi
yfir tún og engi og er erfitt að segja
hvaða afleiðingar það muni hafa
fyrir jarðveginn.
Stórgrýti hefur verið keyrt i ám-
ar nótt sem nýtan dag að undan-
fömu til að koma í veg fyrir frekari
8kemmdir. -RóG
Rúta lenti út
Við Hofeá í Amarfirði varð það
óhapp síðdegis á laugardag að rúta
með 30 bömum lenti út i ánni.
Undanfarið hefur verið unnið að
lagfæringum við brúna og stóðst
bráðabirgðabúnaður, sem komið
hefur verið fyrir, ekki vöxtinn sem
hefur verið í ánni en vegna mikils
hita hafa ár víðs vegar um landið
flætt yfir bakka sina. Engin slys
urðu á bömunum og tókst að ná
þeim út úr rútunni gegnum neyð-
ardyr. -RóG
Eskrfjörður
Nýkjörinn
bæjarstjóri
Fegína Thorarensen, DV, Eskifirði
Bjami Stefánsson, sýslufulltrúi á
Eskifirði, var ráðinn bæjarstjóri
Eskifjarðarbæjar næstu 4 ár með
öllum greiddum atkvaeðum hinnar
nýkjömu bæjarstjómar Eskiijarð-
arbæjar.
Er mér sagt að það sé nýjung á
Eskifirði að sveitarstjóri eða bæj-
arstjóri Eskifjarðarbæjar sé ráðinn
með öllum greiddum atkvæðum.
Þess má geta að lokum að Bjarni
Stefánsson hefur verið sýslufull-
trúi á Eskifirði undanfarin ár og
er hann vel kynntur eins og yfir-
boðari hans, sýslumaðurinn.
Tveir í sjóinn
Nú á laugardag féllu tveir ölvað-
ir menn í sjóinn niðri við Reykja-
víkurhöfn, rétt á bak við
lögregluvarðstöðina. Fyrri atburð-
urinn átti sér stað um tíuleytið um
morguninn en þá var um að ræða
grænlenskan ríkisborgara . Fljót-
lega tókst að bjarga manninum.
í hinu tilvikinu var um að ræða
mjög ölvaðan mann og átti sá at-
burður sér stað upp úr klukkan
m'u á laugardagkvöld. Er björg-
unaraðgerðum varð komið við
reyndist erfitt að ná manninum
upp úr sjónum. Að lokum var hon-
um þó náð upp í gúmmíbát sem
notaður var við björgunina.
Mönnunum tveimur varð ekki
meint af volkinu.
-RóG
Teknirmeðriffil
Um hálfellefuleytið á laugardags-
kvöld varð Kópavogslögi-eglan vör
við tvo unga drengi sem voru að
dunda sér við að skjóta fugla í
Leirdal. Tækið, sem drengimir
notuðu við þessa iðju sína, var
fullkominn riffill, hlaðinn skotum.
Sem betur fer haföi ekkert slys
hlotist af. Ekki er enn vitað hvem-
ig drengimir komust yfir þetta
verkfæri.
-RóG
Álafoss fær nýja
peningasprautu
Framkvæmdasjóður stefnir að sólu fyrirtækisins
Ákveðið var á aðalfundi Álafoss
hf. á laugardag að auka hlutafé úr
120 í 180 milljónir króna með útgáfu
jöfnunarhlutabréfa og leita eftir 100
milljóna króna hlutafé til viðbótar.
Miklir erfiðleikar em í ullariðnaðin-
um. Framkvæmdasjóður á 98%
núverandi 180 milljóna hlutafjár og
þar er stefnt að sölu fyrirtækisins
um leið og það þykir seljanlegt.
Að sögn Ingjalds Hannibalssonar,
framkvæmdastjóra Álafoss hf., er
þegar ákveðið að Framkvæmdasjóð-
ur leggi fram 30 af þeim 100 milljón-
um króna sem auka á hlutaféð um
nú. Iðnlánasjóður mun leggja til
aðrar 30 milljónir. Þá verður leitað
eftir nýjum hluthöfum. Ekki er vist
að öll aukningin náist. Af núverandi
hlutafé eiga á annað hundrað starfe-
menn og fyrrverandi starfemenn 2%.
Ingjaldur sagði að gera þyrfti átak
í vöruþróun og markaðssetningu í
ullariðnaðinum. Hann kvaðst hafa
mikla trú á að með því móti næðist
nauðsynlegur árangur í rekstri fyrir-
tækja í þessari grein. Að því gæti
komið eftir tvö eða þrjú ár að Fram-
kvæmdasjóður seldi Álafoss hf.
HERB
Fjölmenni var við fyrstu sýningu á Njálu, sem fram fór í Rauðhólum í gaer, eftir talsverða hraknmga um Reykjavík og nágrenni. Leikgerð verksins
er> eftir Jóhann Sigurjónsson og Helgu Bachmann, en Helga er jafnframt einn af aðstandendum sýningarinnar. DV-mynd GVA/-ai
«■
MtíHðMMMMfiMlMHHHI
Kaupstaðarlest í tengslum við landsmót hestamanna kom til Reykjavíkur í gær eftir þriggja daga ferð frá Hellu. Farið var eftir gömlum reiðleiðum og
var Hvitá meðal annars sundlögð en farangur ferjaður yfir á bát. Við Árbæ i Reykjavik tók Magnús L. Sveinsson, forseti borgarstjórnar, á móti lestinni en
þá höfðu bæst í hana sýslumenn, prestar og alþingismenn Sunnlendinga. I dag munu lestarmenn selja afurðir þær er þeir komu með á Lækjartorgi og
hefst salan klukkan 12.00. DV-mynd GVA/ej