Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1986, Page 44
44
DV. MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1986.
V
Sviðsljós_____________Sviðsljós_____________Sviósljós____________Sviósljós
Dansað kringum Jónsmessustöngina.
Tónsmessuvaka
við
Norræna húsið
Fólk gat sjálft steikt pylsur sínar yfir heitum kolum
Jónsmessa hefur ávallt verið sveip-
uð dulúðlegum ljóma í sögum ýmissa
landa. Menn eiga víst að geta fengið
bót sinna meina ef þeir velta sér upp
úr dögginni á Jónsmessunótt og
ýmsir trúa að óskastund beri upp á
eitt augnablik yfir nóttina. íslend-
ingar hafa að vísu fæstir gert sér
dagamun á Jónsmessunni en ýmsir
hópar og félög nota þó tækifærið. í
síðustu viku efndu samtök vinafé-
laga Norðurlanda á Islandi til
Jónsmessuvöku að sænskum sið. Slík
vaka hefur verið haldin hérlendis
nokkrum sinnum áður og mælst
ágætlega fyrir. Töluvert af fólki safn-
aðist saman hjá Norræna húsinu og
gerði sér glaðan dag. Var dansað í
kringum Jónsmessustöng sem þar
hafði verið reist að sænskum sið og
einnig var grillað og boðið upp á
pylsur. Þama mátti sjá fólk á öllum
aldri og skemmtu menn sér vel.
Á Jónsmessuhátíðinni var fólk á öllum aldri.
Lokasýning Ladda haldin með pomp og prakt
>
Laddi kveður eftir 60 sýningar fyrir troðfullu húsi.
I vetur og vor hefur Þórhallur Sig-
urðsson eða Laddi skemmt gestum í
Súlnasal Hótel Sögu með stórkost-
legri skemmtidagskrá. Alls var
dagskráin flutt 60 sinnum og var allt-
af troðfullt. Brá Laddi sér í gervi
ýmissa þjóðkunnra persóna eins og
Eiríks Fjalars, Þórðar húsvarðar og
Tanna. Naut Laddi aðstoðar valin-
kunnra einstaklinga við sýningarn-
ar. Egill Eðvarðsson var stjórnandi
þeirra, Gunnar Þórðarson útsetti
tónlistina, hljómsveit Magnúsar
Kjartanssonar lék undir og sérlegur
aðstoðarmaður Ladda var Halli
bróðir hans. Kynnir var Páll Þor-
steinsson, rásarmaðurinn góðkunni,
og dansarar frá Dansstúdíói Sóleyjar
komu þar einnig við sögu.
Sextugasta og síðasta sýningin fór
fram 7. júní fyrir fullu húsi. Við það
tækifæri voru allir þeir sem hlut áttu
að máli við uppfærsluna kallaðir
fram á svið og þeim þakkað. Tekið
var á móti gestum við innganginn
með blómum og biðu menn spenntir
eftir 20.000asta gestinum. Hans biðu
vegleg verðlaun sem voru: Gisting
fyrir tvo í svítu hótelsins ásamt
kvöldverði í Grillinu og morgunverði
fyrir brottför. Lóa Rún Kristinsdóttir
var sú heppna og hreppti hnossið.
Getur hún því lifað eins og drottning
eina kvöldstund.
Wilhelm Wessman, framkvæmdastjóri Gildis hf., býður Lóu Rún
Kristinsdóttur velkomna.