Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
Fréttir
Þeir eru kampakátir, félagarnir, eftir að hafa fengið þann stóra. Þeir eru Þorgeir Lúðvíksson, Birgir Lúðviksson,
Viðar Birgisson og Geirharöur Geirharðsson. DV-mynd Brynjar Gauti
Stærsti vinningur í sógu Getraunanna:
5 milljónir í hlut
einnar fjölskyldu
„Það er alltaf hægt að koma pen-
ingum fyrir, sérstaklega svona fyrir
jólin, en við ætlum ekki að fara okk-
ur óðslega," sagði Viðar Birgisson
sem vann nú um helgina ásamt
þremur félögum sínum stærsta vinn-
ing í sögu Islenskra getrauna. Alls
komu í þeirra hlut 5 milljónir og 16
þúsund krónur. Þeir voru einir með
12 leiki rétta og áttu að auki 9 raöir
með ll.Ieikjum réttum.
Félagamir, sem þarna duttu í
lukkupottinn, eru, auk Viðars, faðir
hans, Birgir Lúðvíksson, Þorgeir
Lúðvíksson, bróðir Birgis, og Geir-
harður Geirharðsson, mágur Þor-
geirs. Allir vinna þeir hjá Almennum
tryggingum.
„Við notuðum stærsta kerflsseðil-
inn,“ sagði Viðar. „Þetta er 512 raða
seðiU sem kostar um 5000 krónur
þannig að það má segja að þessir
peningar hafi ávaxtast vel.
Við höfum ekki vérið með þetta
stóran seðil regluléga en núna, þegar
potturinn var svo stór, stóöumst við
ekki mátið og keyptum seðil; Ætli
við verðum ekki með hann til vors.
Kerfið, sem við notum, er nú bara
heimasamið og heitir ekkert sérstakt
en það dugar greinilega.“
Viðar sagði að hann hefði ekki
reiknað með hárri upphæð j fyrstu
því honum leist þannig á seöilinn að
fleiri gætu verið með 12 rétta. Þegar
búið var að athuga 60% seðlanna hjá
íslenskum getraunum var látið vita
um að enn væri aðeins einn seðill
með 12 rétta.
„Ég neita því ekki að ég tók kipp
þegar ég sá í hvað stefndi," sagði
Viöar. „Við fylgdumst ekki saman
með úrslitunum en hver okkar er
með ljósrit af seðlinum. Nú, siminn
hjá okkur varð rauðglóandi þegar
úrslitin lágu fyrir enda spenningur-
inn mikill aö bíða eftir hvað vinning-
urinn yrði hár,“ sagði Viðar.
Viðar sagði að enn væri engu af
þessari upphæð ráðstafað. „Það er
nógur tími til þess og sjálfsagt engin
vandræði að gera eitthvað við þetta,“
sagði Viðar Birgisson.
-GK
Húsnæðisfrumvarp
til efri deildar
Húsnæðisfrumvarp ríkisstjórnar-
innar var samþykkt í neðri deild
Alþingis laust fyrir klukkan 22 á
laugardagskvöld og vísað til efri
deildar. Kunnugir segja að þetta hafi
verið fyrsti fundur Alþingis á laugar-
dagskvöldi.
Miklar umræður urðu í þingdeild-
inni um húsnæðismálin á laugardag.
Fyrir lágu breytingartillögur meiri-
hluta félagsmálanefndar, sem Alex-
ander Stefánsson, formaður
nefndarinnar, hafði mælt fyrir á
fimmtudagskvöld. Jóhanna Sigurö-
ardóttir félagsmálaráðherra lýsti
yfir stuðningi sínum við þær.
Borgaraflokkurinn er með tvö
frumvörp um gjörbyltingu á hús-
næðiskerfinu, eins pg áður hefur
komið fram í DV. Áður en til at-
kvæðagreiöslu kom um breytingart-
illögur borgaraflokksmanna drógu
þeir þær til baka en boðuðu að þeir
myndu flytja þær í efri deild.
Kristín Einarsdóttir, Kvennahsta,
og Steingrímur Sigfússon, Alþýðu-
bandalagi, stóöu saman að breyting-
artillögu sem var felld. Breytingartil-
laga Stefáns Valgeirssonar,
Samtökum jafnréttis og félags-
hyggju, var einnig felld.
-KMU
Reykjanes og Laugarvatn:
Hætt við að leggja
niður héraðsskóla
Þau áform, sem birtust í íjárlaga-
frumvarpinú í haust um að leggja
niður héraðsskólana á Reykjanesi
við ísaijarðardjúp og að Laugar-
vatni haustið 1988, ná ekki fram að
ganga.
í breytingartillögum íjárveiting-
amefndar eru báöir þessir héraðs-
skólar teknir inn. Framlög til
þeirra hækka um samtals 6,5 millj-
ónir króna frá því sem áformað var
í haust. Til grunnskólans á Reykja-
nesi er ennfremur aukin íjárveit-
ing vegna stöðu sálfræðings.
Fram kom í DV þegar fjárlaga-
frumvarpið var lagt fram að
menntamálaráðuneytið hafði ekki
lagt til að kennslu yrði hætt í þess-
um héraðsskólum.
-KMU
Norskir ráðgjafar athuga
starfshætti Alþingis
Júlíus Sólnes, þingmaður Borgara-
flokksins, upplýsti í efri deild á
laugardag, er rætt var utan-dagskrár
um vinnubrögð á Alþingi, að norskir
sérfræðingar hefðu í heilt ár unnið
að því að taka út starfshætti Alþingis
íslendinga.
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri
Alþingis, sagði DV að norskt ráðgjaf-
arfyrirtæki, Habberstad, heföi verið.
fengið fyrir ári til þess að athuga
starfsemi þingsins, vinnu í nefndum,
skipulag skrifstofu, upplýsingatækni
og nýtingu húsnæðis.
„Norðmennirnir hafa tekiö út öll
þjóðþing Norðurlanda með góðum
árangri," sagði Friðrik.
Hann sagði aö Norðmennirnir
hefðu komið hingað tvívegis og skil-
að skýrslu til Alþingis. Ekki yildi
Friðrik greina frá niðurstöðum
norsku ráðgjafanna. Hann sagði þær
enn trúnaðarmál.
Samkvæmt öörum heimildum DV
leggja Norðmennirnir meðal annars
til að nefndir efri og neðri deildar
verði sameinaðar, þingflokkar flytji
aðstöðu sína úr Alþingishúsinu en í
staðinn komi bókasafn og fleira og
að dagskrá þingfunda verði gefin út
fyrir heila viku í senn.
-KMU
í dag mælir Dagfari
Það bar til tíðinda nú fyrir helg-
ina að Jóhanna Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra neitaði að
mæta á ríkisstjórnarfundum fyrr
en hennar mál væru farsællega
útkljáð. Hún fór í verkfall. Það
skiptir ekki máli þótt málið hafi
fengið lyktir síðan heldur er hitt
mikilvægast að Jóhanna steig
þarna tímamótaskref. í fyrsta
skipti í sögunni tekur ráðherra sig
til og neitar að mæta á fundi í ríkis-
stjórn í mótmælaskyni. Jóhanna
hefur þar meö brotið blað. Kven-
þjóðin getur verið stolt af Jóhönnu
sem hefur sannað að konur eru að
kveðja sér hljóðs í stjórnmálum
með nýjum vinnubrögðum.
Það hefur löngum verið áhri-
faríkasta aðferð kvenna, þegar þær
vilja láta karlana lúta sér, að áf-
þakka góö boð, neita að ganga til
sængur með þeim og strunsa út á
því augnabliki þegar verst lætur.
Karlmenn hafa mátt þola að sitja
með sárt ennið þegar kvenfólkiö
hefur hryggbrotið þá og yfirgefið á
örlagastundum. Margir harmleikir
og ástarleikir hafa spunnist út af
köldum kvennaráðum þar sem
konur hafa vafið körlunum um
fingur sér, gefið þeim undir fótinn
og síðan sparkað þeim út í ystu
Ráðherra í verkfall
myrkur.
Þetta gamla kvennaráð hefur að
vísu ekki verið mikið notað í ís-
lenskri pólitík, einkum vegna þess
að konur hafa yfirleitt ekki átt inn-
angengt í.pólitíkina og karlarnir
ekki þurft á þeim að halda. Konur
hafa verið til annars brúks á ís-
landi en þess að skipta sér af
pólitík. Nokkrar þeirra hafa verið
upp á punt í stjórnmálaflokkunum
og sumir gömlu flokkanna hafa
haft af því nokkurt ónæði að ein-
staka metnaðarfullur kvenmaður
hefur gert hávaða út af framboðs-
málum á íjögurra ára fresti. En
eftir að kvenfólkið tók sig til og
stofnaöi sinn eigin flokk hefúr
þetta ónæði að mestu lagst af í
gömlu flokkunum. Konurnar voru
farnar, nema örfá seglskip sem
fylgdu með af gömlum vana.
Jóhanna Sigurðardóttir er fædd
inn í Alþýðuflokkinn og hefur átt
bágt með að yfirgefa hann. Hún
myndi hins vegar sóma sér hjá
Kvennalistanum ef hún hefði ekki
fengið kratablóðið að erfðum. Það
fær enginn flúið örlög sín, hvað þá
sjálfan sig, og Jóhanna hefur notiö
ættar sinnar og dugnaðar í litlum
flokki sem stundum hefur ekki átt
annað fylgi eftir en barnaböm fyrri
foringja flokksins. Allir eru ráð-
herrar flokksins til að mynda
önnur og þriðja kynslóð í Alþýðu-
flokknum og hefur þann lögmæta
fæðingargalla að erfa ráðherrasæt-
in af feðrum sínum.
Og nú er Jóhanria Sigurðardóttir
orðin ráðherra og af eðlisávísun,
sem konur hafa öðlast á aldalöng-
um ferli sínum, beitir hún þeim
ráðum sem best henta, Hún gengur
út þegar stóra stundin rennur upp.
Hún fer í verkfall og segir: ég neita
að þóknast ykkur, karlrembusvín-
in ykkar, nema þið liggið marflatir
og samþykkið mínar aðferðir -
annaðhvort þeningana eða lífið.
Það er hins vegar, praktískt tal-
að, dálítið undarlegt að Jóhann
skuli telja sig geta náð mestu fram
með því að vera fjarstödd. Venju-
lega vill fólk mæta á fundum til að
tala máli sínu. En Jóhanna er
greinilega annarrar skoðunar. Hún
heldur að málin leysist ef hún
mætir ekki. Samkvæmt þesu ætti
Jóhanna að hætta að mæta í ráðu-
neytinu til að greiða fyrir því aö
vandamálin leysist ef hún er til
óþurftár með því aö mæta sjálf.
Hættan af þessum verkfallsað-
gerðum Jóhönnu er sú að karlarnir
láti sér þetta vel líka og þeim standi
á sama. Við erum þá loksins lausir
við kerlinguna og farið hefur fé
betra. Þetta sagði Þorsteinn raunar
strax og það fréttist að Jóhanna
ætlaöi ekki að mæta. Það var Þor-
steini líkt, enda er hann á móti
afskiptum kvenna af stjórnunar-
störfum og rak bæði Ragnhildi úr
ríkisstjóm og Salóme úr forseta-
stól. Þorsteinn er bara einnar konu
maður og lætur eiginkonuna nægja
þótt hann hafi ekki líka annan
kvenmann í ríkisstjórninni til að
rífa kjaft.
Hitt er svo annað mál aö verkfóll
ráöherra eru sennilega ólögleg á
meöan þeir eru ekki í Alþýöusam-
bandinu eða Verkamannasam-
bandinu. Er það ekki næst hjá
Jóhönnu að ganga í Alþýöusam-
bandið áður en hún strækar aftur?
Dagfari