Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Qupperneq 10
10
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
Bifreiðatryggingar
Tilboð óskast í bifreiðatryggingar ríkisbifreiða. Út-
boðsgögn eru seld á skrifstofu vorri og kosta kr.
2.000. Tilboð verða opnuð á sama stað 20. janúar
1988 kl. 11.00 f.h. í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
IIMIMKAUPASTOFNUIM RIKISIIMS
_______BORGARTÚNI 7. 105 REYKJAVÍK _
LAUS STAÐA
DEILDARSTJÖRA UPPLÝSINGA-
OG FÉLAGSMÁLADEILAR
TRYGGINGASTOFNUNAR RÍKISINS
Staða deildarstjóra upplýsinga- og félagsmáladeildar
Tryggingastofnunar ríkisins er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist stofnuninni fyrir 15. janúar 1988.
Heilbrigöis- og tryggingamálaráðuneytið veitir stöð-
una.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
11. desember 1987.
Nú er það komið aftur,
hið geysivinsæla útvegspil.
Fæst í bóka- og leikfangaverslunum
um land allt.
Pantanasími 91-52677.
TIL AFGREIÐSLU STRAX
STEVR 8090 II
Flatahrauni 29, 220 Hafnarfjörður, sími 91-651800
Gætni verður mörgum
að gagni í umferðinni.
UMFERÐAR
RAÐ
Utlönd
Enn átök á
Gazasvæðinu
ísraelskir hermenn meö handtekna Palestínumenn á Gazasvæöinu í gær.
Simamynd Reuter
Bensínsprengjur sprungu við ræð-
ismannsskrifstofu Bandaríkjanna og
við ísraelskan strætisvagn á Gaza-
svæðinu síðdegis í gær. Skemmdir
urðu litlar og engin meiðsl á mönn-
um.
Róstur hafa verið á vesturbakkan-
um og Gazasvæðinu fimm daga í röð
og hafa sex Palestínumenn látið lífið
í þeim. Einnig hafa nokkrir Palest-
ínumenn og ísraelsmenn særst í
átökunum.
Talsmaður Frelsissamtaka Palest-
ínumanna fullyrti í gær aö yfirvöld
í ísrael héldu leyndu hversu márgir
Palestínumenn hefðu fallið og særst
í átökunum. Kvað hann samtökin
hafa farið þess á leit við alþjóðlega
nefnd Rauða krossins að sendir yrðu
aöilar til þess að kannaþað sem hann
lýsti sem ijöldamorði Israelsmanna.
Kvað hann þrjátíu Palestínumenn
hafa særst í gær en ísraelsmenn
halda því aftur á móti fram að fimm
óbreyttir borgarar og sex hermenn
hafi særst í átökum á sunnudag.
Áður hafði Arafat, leiðtogi samtak-
anna, fullyrt að á föstudagskvöld
hefðu þegar rúmlega tuttugu beðið
bana og tæplega tvö hundruö særst.
ísraelsmenn sögöust hafa skotið til
bana sex Palestínumenn, þar af fimm
unglinga.
Að sögn sjónarvotta hafa hundruð
ungra Palestínumanna komið upp
vegatálmum úr dekkjum sem þeir
hafa síðan kveikt í. Einnig hafa þeir
kastað grjóti aö ísraelskum her-
mönnum. Heryfirvöld í ísrael saka
Frelsissamtök Palestínumanna um
aö hvetja ungmennin til mótmælaað-
gerða gegn hernámi ísraelsmanna.
Rósturnar væru hins vegar ekki
merki um uppreisn.
Óeiröimar hófust eftir aö fjórir
verkamenn létu lífið í umferðarslysi.
Höíðu þeir lent í árekstri við ísra-
elskan flutningabíl.
Ágreiningur um framleiðslu
Svo virtist sem viðræður olíu-
málaráðherra olíuframleiðsluríkja
í Vínarborg kynnu að taka enda í
morgun án samkomulags. Mikill
ágreiningur ríkir meðal ráðherr-
anna um framleiðslumagn og í
morgun gekk sá orðrómur að olíu-
málaráðherra írans myndi hverfa
til síns heimalands við svo búið.
Olíumálaráðherrar Venezuela,
Saudi Arabíu og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmanna höfðu allir
lýst bjartsýni í gær um að sam-
komulag næðist á fundi ráðherr-
anna um olíuverð og framleiðslu-
magn. Samkomulagið lét hins
vegar á sér standa og í morgun
hermdu óstaðfestar fregnir að ír-
anski ráðherrann hygðist fljúga
heim til ráðagerða með samráð-
herrum sínum. íranir vilja hækka
olíuverð töluvert mikið.
Aðrir olíumálaráðherrar virðast
telja rétt aö halda verði nálægt átj-
án dollurum á tunnuna sem er
núgildandi viðmiðunarverö.
Tilræði mótmælt
•vn'n
Um tvö hundruö þúsund manns minntust fórnarlamba sprengjutilræðisins
I göngu I gær. Simamynd Reuter
Meira en tvö hundruð þúsund
manns tóku þátt í þögulli mótmæla-
göngu um borgina Saragossa á
norðurhluta Spánar í gær til þess að
minnast ellefu fómarlamba sprengj-
utilræðis sem gert var þar á fostudag.
Talið er aö skæruliðar úr röðum að-
skilnaðarsinna Baska hafi staðið að
sprengingunni.
í ávarpi, sem borgarstjóri Sara-
gossa hélt í gær, sagði hann að borgin
syrgði fórnarlömbin en hermdar-
verk gætu ekki staöið í vegi fyrir
þjóðfélagi sem kynni að meta frelsi
sitt.
I fararbroddi fyrir mótmæla-
göngunni fóru forseti héraðsstjórnar
Aragon-héraðs, Hipolito Gomez de la
Rocas, og forseti þings Baska, Jesus
Eguiguren.
Meðal þeirra sem fórust í spreng-
ingunni, sem varð í búðum spænska
þjóðvarðliðsins á fostudag, voru fjög-
ur börn.
Þrjátíu og fjórir særðust í spreng-
ingunni og af þeim eru sjö enn á
sjúkrahúsi.
Eftir nokkurt hlé í aðgerðum að-
skilnaðarsinna Baska undanfarið
voru á föstudag gerð þrjú sprengju-
tilræði sem þeir eru taldir bera
ábyrgð á. í ööru hinna tilræöanna lét
þjóðvarðliði lífið og lögreglumaður
særðist í hinu þriðja.
Talið er að hryðjuverkasamtök
Baska, ETA, hafi gripið til sprengju-
tilræðanna til þess aö styrkja stööu
sína í samningaviðræðum við stjórn-
völd þótt til séu einnig þeir sem óttast
aö tilræöin muni stöðva þessar við-
ræður algerlega.