Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Page 77
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
77
DV
Komin á Mt aftur
Eitt af elstu hjónaböndunum í
Hollywood er hjónaband Charles
Bronson og Jill Ireland. Gamli sjarm-
urinn Bronson kvæntist Jill fyrir 19
árum og var hún þá farin að skapa
sér nafn í kvikmyndaheiminum fyrir
leik sinn. Hún þótti þó aldrei með
betri leikkonum.
Bronson hefur gert mikið að því í
gegnum árin að hafa Jill með sér í
kvikmyndum sínum og hefur hún
leikið í einum tíu kvikmyndum með
honum til þessa. Hún lék meðal ann-
ars tneð honum í myndinni Launráð
í Vonbrigðaskarði eftir sögu Alistair
Maclean.
Fyrir tveimur árum fékk Jill slæm
tíðindi. Henni var tjáð að hún væri
með bijóstakrabba á háu stigi og
sjúkdómurinn væri genginn það
langt að hún ætti stutt eftir ólifað.
Læknarnir tóku af henni annað
brjóstið og reynt var að setja hana í
geislameðferð. Hún segir sjálf að hún
hafi ekki gert. sér miklar vonir og
hafi verið við því búin að deyja.
Geislameðferðin fór illa með ytra
útlit hennar, hún missti allt hárið og
þjáðist af ýmsum öðrum hliðarverk-
unum.
En svo virðist sem geislameðferðin
hafi borið árangur því minna virðist
bera á einkennum nú, tveimur árum
síðar. Hún er miklu hressari og byij-
uð að leika aftur... í mynd með
Bronson. Sú mynd heitir The Presi-
dents Vife og leikur hún forseta-
frúna.
Jill Ireland segir sjálf að það hafi
hjálpað henni mikið í veikindunum
að hún hélt alltaf i vonina um að hún
myndi lifa og auk þess studdi Bron-
son hana með ráðum og dáð.
Kostuleg
gríma
Díana prinsessa hefur aldrei verið
feimin við að sýna tilfinningar og
svipbrigði opinberlega og því er hún
vinsælt myndefni. Um daginn var
hún viðstödd verðlaunaafhendingu
leikara hjá Victoria og Albert-safn-
inu í London.
Einn leikaranna, sem fékk viður-
kenningu, var Alan Riley fyrir gervi
sitt sem „Morris the Mohican", sem
er kostulegt útllts. Díana prinsessa
átti erfitt með að halda niðri í sér
hlátrinum er hún sá þessa spaugi-
legu grímu. Símamynd Reuter
Sviðsljós
Símamynd Reuter
Eineggja eða tvieggja
Mikiö hefur verið rætt og ritaö
um hvað tvíburar geta verið líkir
og þyKjast menn oft sjá fylgni með
lífsmunstri þeirra. í Austur-Þýska-
landi er mikill áhugi fyrir þessum
málum og hefur verið stofnaöur
tvíburaklúbbur í landinu þar 'sem
menn hittast og velta þessum mál-
um fyrir sér. Frægustu tvíburar
þeirra samtaka eru tvíburabræð-
umir Hans og Gerhard Fischer sem
fyrir nokkrum árum voru kosnir
„líkustu" tvíburar Evrópu.