Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 2
2
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Fréttir
í tveimur flugvélum
Fíkniefnadeild lögreglunnar meö vélinni. fetamín. Mál þetta er ekki að fullu um að í vélinni væru fíkniefni.
fann fíkniefni á farþegum tveggja Ekki fundust fikniefni í farangri rannsakað. Parþegi sem kom til Keflavíkur
flugvéla sem komu til iandsins í eða farmi vélarinnar. Amar Jens- Um var aö ræöa venjulegt eftir- með áætlunarvéi frá Amsterdam
gær. sonhjáfikniefnadeildlögreglunnar lit. Einkavélar, sem koma til var tekinn fyrir aö reyna aö kom-
Leit var gerð i einkaflugvél sem sagöi f gærkvöldi að ekki væri búið iandsins, eru teknar af og til í mikla ast með kannabis inn til landsins.
lenti á Reykíavíkurflugvelli um að kanna hvaða tegund fikniefnis tollskoöun af tollgæslu og fikni- Ekki mun hafa verið um mikiö
miðjan dag í gær. Við Jeitina fund- maðurinn hefði verið með. Hann efiiadeild. í þessu tilfelli var svo, magn að ræða.
ust fíkniefni á farþega sem kom sagöist þó teija að það væri ara- ekki hafði borist sérstök vitneskja -sme
Hitaveitur
fa lánS'
heimildir
Hitaveitum verður veitt heimild á
lánsfiárlögum til að taka ails 363
miUjónir króna að láni erlendis frá
til framkvæmda og skuldbreytinga.
Ríkisstjómin haföi í haust skipt 138
milljónum króna á milli þriggja hita-
veitna. Fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar Alþingis kynnti í gær
skiptingu 225 milljóna.
Hitaveita Suðurnesja fær heimild
upp á 150 miiljónir króna, Fjarhitun
Vestmannaeyja 45 miiljónir króna,
Hitaveita Siglufjarðar 20 milljónir
króna og Hitaveita Rangæinga 10,5
milljómr króna.
Áður hafði ríkisstjórnin úthlutað
Hitaveitu Akureyrar 120 milljónum
króna, Hitaveitu Egilsstaða og Fella
8 milljónum króna og Hitaveitu Eyra
10 milljónum króna.
-KMU
Lagafrumvörp
á ofsahraða
Lagafrumvörp eru að komast á
ofsahraða í gegnum nefndir og deild-
ir Alþingis. Þingmenn leggja nótt við
dag til að afgreiða yfir 20 stjórnar-
frumvörp svo að þeir komist heim í
jólaleyfi og losni við þingfundi milli
jóla og nýárs.
Á innan við tveimur klukkustund-
um síðdegis í gær voru samþykkt sex
ný lög; um skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði, staðgreiðslu opin-
berra gjalda, gildistöku staðgreiöslu
opinberra gjalda, um brunavarnir og
brunamál, sóknargjöld og kirkju-
garða.
-KMU
Æsispennandi lokaskák í heimsmeistaraeinvíginu fór í bið:
Tekst Kasparov að brjótast í gegn?
- á peði meira í biðstöðunni og sigurmöguleika
Mögnuð spenna var í Sevilla í
gær er Karpov og Kasparov tefldu
lokaskákina í heimsmeistaraein-
víginu. Kasparov varð að vinna til
að halda heimsmeistaratitlinum en
Karpov nægði jafntefli. Skákin fór
rólega af stað en undir lok setunnar
lentu meistararnir í miklu tíma-
hraki, einkum þó Karpov sem var
nærri fallinn á tíma. Með peðsfórn
náði Kasparov hættulegri sókn og
Karpov varð að gefa peð til að
bægja hættunni frá. Er skákin fór
í bið eftir 41 leik hefur Kasparov
drottningu, biskup og fjögur peð
gegn drottningu, riddara og þrem
peðum Karpovs.
Þetta verður andvökunótt í Se-
villa. Ógjörningur er að segja hvort
biðstaðan er unnin á hvítt eða jafn-
tefli. í „praktísku tafli“ hefur
Kasparov sigurmöguleika og þeir
gætu teflt lengi enn.
Samkvæmt fréttamönnum í Se-
villa virtist Karpov taugaóstyrkur
við upphaf taflsins í gær en Kaspar-
ov var rólegri. Móðir hans var hins
vegar sýnilega á nálum. Að sögn
Tisdalls, fréttaritara Reuters, var
hún „ein taugahrúga" að sjá. E.t.v.
líkaði henni ekki hve Kasparov
tefldi byijunina rólega en í mið-
taflinu varð staðan líflegri. Þannig
tefldist skákin í gær:
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Vængtafl
1. c4 e6 2. Rf3 Rf6 3. g3
Kasparov ákveður að brydda upp
á einhverju nýju í stað þess að tefla
drottningarbragðið margþvælda
sem þykir gefa svörtum trausta
stöðu. Þetta er upphafsleikur að
katalónskri vöm en í næsta leik
stýrir heimsmeistarinn taflinu yflr
í farveg Reti-byrjunar eða væng-
tafls.
3. - d5 4. b3 Be7 5. Bg2 0-0 6. 0-0 b6
7. Bb2 Bb7 8. e3 Rbd7 9. Rc3 Re4 10.
Re2
Aö líkindum nýr leikur í stöð-
unni. Áður hefur sést 10. Dc2 eða
10. cxd5. Kasparov reynir að halda
mönnum inni á borðinu í lengstu
lög til áð flækja taflið.
10. - a5 11. d3 Bffi 12. Dc2 Bxb2 13.
Dxb2 Rd6 14. cxd5 Bxd5 15. d4 c5
Spenna hefur myndast á mið-
borðinu og óhætt er að segja að
Skák
Jón L. Árnason
hefði hvítur varla getað gert sér
vonir um sigur. Kasparov hristir
nú upp í taflinu í eitt skipti fyrir
öll. Báðir voru nú orðnir afartíma-
naumir en þó sérstaklega Karpov.
Hann þiggur peðsfórnina en frum-
kvæði Kasparovs verður öflugt.
31. - Rxa4 32. Hxc8 Rxc8 33. Ddl!
Re7 34. Dd8+ Kh7 35. Rxf7 Rg6 36.
De8 De7!
Karpov hittir á bestu vamarleik-
ina en ljóst er þó orðið að hann
verður að sætta sig við tefla enda-
tafl peði undir. Hótanir hvíts gegn
kóngi hans eru svo sterkar.
37. Dxa4 Dxf7 38. Be4 Kg8 39. Db5
Rffi 40. Dxb6 Dffi 41. Db5 De7
hvítur hafi fengið ívið betra tafl út
úr byrjuninni. Karpov þykir hins
vegar sérfræðingur í að verja slíkar
stöður á svart.
16. Hfdl Hc8 17. Rf4 Bxf3 18. Bxfí
De7 19. Hacl Hfd8 20. dxc5 Rxc5 21.
b4!
Frá og með þessum leik nær Ka-
sparov nokkru frumkvæði á
drottningarvæng. Þeir voru búnir
að eyða miklum tíma á fyrstu tutt-
ugu leikina. Báöir áttu innan við
hálfa klukkustund eftir til að ljúka
fjörutíu leikjum.'
21. - axb4 22. Dxb4 Da7 23. a3 Rf5
24. Hbl Hxdl + 25. Hxdl Dc7 26. Rd3
h6
Einkennandi fyrir Karpov sem
tryggir kóngi sínum flóttareit ef
þörf krefur. Karpov átti nú aðeins
8 mínútur eftir á klukkunni.
27. Hcl!
Nú vofir yfir stöðug hótun um að
skipta upp á c5 og reyna aö skapa
fjarlægan frelsingja á a-línunni.
Kasparov átti 14 mínútur eftir er
hann hafði leikið þennan leik.
27. - Re7 28. Db5 Rf5 29. a4 Rd6 30.
Dbl Da7 31. Re5!?
Eftir uppskipti á c5 í þessari stöðu
Tímahrakinu lokið og nú fór skák-
in í bið. Kasparov (hvítur) lék
biðleik. Hann á peöi meira og sterk-
an biskup og vinningsmöguleik-
arnir hljóta að vera talsverðir.
Karpov hefur hins vegar náö að
stilla mönnum sínum upp til varn-
ar. Spumingin er hvort Kasparov
tekst aö brjótast í gegn og tryggja
sér heimsmeistaratitilinn. Bið-
skákin verður tefld áfram í dag og
þá kemur í ljós hvor verður heims-
meistari næstu þrjú árin.
-JLÁ
Ríkið sleppur við skaðabótamál:
Breiðafjarðarferja
fær 100
Breiðafjarðarferja fær grænt ljós
frá Alþingi. Stjómarmeirihlutinn í
fjárhags- og viðskiptanefnd leggur til
að inn í lánsfjárlög verði bætt heim-
ild fyrir Flóabátinn Baldur hf. í
Stykkishólmi, en þáð fyrirtæki er
80%.eign ríkisins, til að taka 100
milijónir króna að láni erlendis frá
vegna smíði ferjunnar.
Alþingi veitti í fyrra heimild fyrir
ríkisábyrgðarláni upp á 35 milljónir
vegna Breiöaijarðaiferju. Á þeim
grundvelli heimilaði samgönguráðu-
neytið að samið yrði við lægstbjóð-
anda, Þorgeir og Ellert hf. á
Akranesi, um smíði skipsins fyrir 156
miiljónir króna. Skipið á að afhend-
milljónir
ast í ágústmánuði næstkomandi.
Þrátt fyrir tillögu samgönguráðu-
neytis um 135 milljónir króna til
Breiðafjarðarferju lagði íjármálaráð-
herra lánsfjárlagafrumvarpiö fram á
Alþingi í haust án þess að ferjan
væri nefnd þar á nafn. Vegna samn-
ingsins við skipasmíöastöðina vofði
skaðabótamál því yfir. Þeirri hættu
hefur nú verið aflétt.
Hins vegar er hætt við því að ferjan
nýtist illa fyrst um sinn því fjárveit-
ing til ferjubryggju er bara fyrir
Brjánslæk en ekki hinn endann,
Stykkishólm.
-KMU
Fullnaðaruppgjör vegna
haustslátrunar ókomið
Bændur hafa ekki fengið uppgert
vegna þess fjár sem slátrað var í
haust. Áö öllu eðlilegu hefði fullnað-
aruppgjör átt að liggja fyrir um
miðjan þennan mánuð.
„í fyrradag var okkur sagt að upp-
lýsingar vantaði frá Landsbankan-
um, ég veit ekki hvaða upplýsingar
það eru, en ég held að þær séu komn-
ar nú. Ég held að það sé eitthvað
annað sem tefur þetta núna, hvað
það er veit ég ekki,“ sagði Gunnar
Guðbjartsson hjá Stéttarsambandi
bænda.
-sme
Festist í netavindu
og handleggsbrotnaði
Sjómaður brotnaði á upphandlegg
er hann festist í netavindu. Slysið
varð um borð í Hafbergi GK er bátur-
inn var á netaveiöum skammt frá
Grindavík. Sjómaðurinn festist í net-
inu og dróst með því með þeim
afleiðingum að hann brotnaði á
vinstri upphandlegg.
Bátnum var strax snúið til hafnar
og þegar hann kom til Grindavíkur
innan einnar klukkustundar frá því
að slysið varð.
-sme