Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Blaðsíða 57
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
61
DV
frekar dökk mynd af breskri kvik-
myndagerð þá eru sem betur fer enn
geröar kvikmyndir þar í landi. Hins
vegar er yfirleitt um aö ræða „bre-
skar“ myndir í þeirri merkingu aö
þær höíöa flestar til fárra annarra
en Breta sjálfra. Þaö er í sjálfu sér
ekkert athugavert viö þaö en vegna
hins gífurlega mikla kostnaðar sem
er samfera kvikmyndagerð er eríitt
aö ná endum saman fjárhagslega ef
myndir ná ekki dreifingu utan Bret-
lands. Þaö sem oftast bjátar á er mjög
einhæfur og staöbundinn efnisþráð-
ur og svo mállýskur sem aðrar þjóðir
eiga erfitt meö aö skilja þótt ensku-
mælandi séu.
En þessar „bresku" myndir hafa
alveg sérstakt yfirbragö og eru marg-
ar hverjar gullkorn fyrir kvik-
myndaunnendur. Má þar nefna
myndir Neils Jordans eins og Comp-
any of The Wolves og svo hina
sérstæöu mynd Mona Lisa sem sýnd
var hér ekki alls fyrir löngu. Einnig
má nefna myndir eins og The Long
Good Friday og The Draughtmans
Contract sem Peter Greenaway gerði
áriö 1982.
Peter Greenaway
Peter Greenaway er dæmigerður
breskur kvikmyndageröarmaður
sem gerir „breskar" kvikmyndir. Að
visu veröa myndir hans að teljast
hstrænni og betur úthugsaöar en
gengur og gerist en hins vegar hafa
Þaö er Brian Dennehy sem fer meó
aðalhlutverkið.
þær óneitanlega yfir sér þetta dæmi-
gerða „breska" yfirbragö.
Þótt Greenaway hafi 24 myndir að
baki eftir rúmlega tuttugu ára starfs-
feril verður varla sagt að hann sé
þekktur leikstjóri. Raunar hafa ekki
nema tvær myndir eftir hann hlotiö
eitthvert umtal aö ráöi og aösókn
eftir því. Eins og meö svo marga sjálf-
stæða kvikmyndagerðarmenn hefur
ijárskortur háð Greenaway. Fléstar
myndir hans eru gerðar meö stuön-
ingi stofnana eins og Bresku kvik-
myndastofnunarinnar eöa sjón-
varpsstöðva og þá sérstaklega
Channel Four sem hefur veriö iðin
viö aö styöja viö bakið á breskri kvik-
myndagerð. Nýjasta mynd Gre-
enaways er einmitt framleidd af
ijölmörgum aöilum og þar á meðal
fyrirtækinu sem stóð á bak viö seinni
endurreisn breskrar kvikmynda-
gerðar þegar það stóö að gerð
Chariots of Fire og The Killing Fields.
Táknræn túlkun
Þessi nýja mynd Greenaways ber
heitiö Belly of an Architect og hlaut
eldskírn sína á kvikmyndahátíðinni
í Cannes í ár þar sem hún fékk frek-
ar lofsamlega dóma. Hún fjallar um
miöaldra arkitekt frá Chicago, Stour-
ley Kracklite aö nafni og konu hans,
Louisu, sem er mun yngri en eigin-
maður hennar. Myndln hefst er þau
koma til Ítalíu þar sem Stourley á
að setja upp sýningu á verkum til-
tölulega óþekkts arkitekts, Etinne-
Louis Boullee að nafni, sem var uppi
á árunum 1728-1799. Þau hjónin gista
hjá Specler fjölskyldunni sem er faö-
irinn Io, dóttirin Flavia og sonurinn
Caspasian.
Eitthvaö virðist Ítalíudvölin leggj-
ast illa í Stourley því fyrstu nóttine
meö konu sinni í Róm fær hanr
mikla magaverki.
Kvikmyndir
Framhjáhald
Eftir því sem líður á dvölina verður
sýningin hugleiknari Stourley ásamt
hinum þráláta magaverk sem vill
ekki hverfa. Samband þeirra hjóna
fer í rúst og eiginkonan fer aö halda
við Caspasian. Ekki batnar ástandiö
þegar hún tilkynnir Stourley að hún
sé ólétt þótt hún haldi því fram aö
hann sé faðirinn.
Stourley lendir síðan í ijárhagserf-
iöleikum meö uppsetningu sýningar-
innar og leitar náðar hjá Io sem
neitar að lána honum peninga nema
Caspasian verði framkvæmdastjóri
sýningarinnar. Þetta getur Stourley
ekki fellt sig við. Hann leggst í þung-
lyndi og heilsu hans hrakar dag frá
degi. Ekki er hann þó svo heilsuveill
að hann geti ekki haldið framhjá
Louisu með systur elskuhuga henn-
ar, Flaviu. Einnig hefur magapínan
lagst á sálu hans sem endurspeglast
í því að stóran hluta af deginum ráf-
ar Stourley um Rómaborg þar sem
hann einbeitir sér að því að skoða
vambir allra styttna og veggskreyt-
inga sem veröa á vegi hans.
Ungur piltur sem fylgist af athygli með framhjáhaldi Louisu.
Endalokin
Síðan fara hlutirnir að gerast hratt.
Eiginkonan tilkynnir að hún ætli aö
fara frá honum, Stourley er rekinn
frá sýningunni og að lokum greina
læknamir hinn langvarandi maga-
sjúkdóm sem ólæknandi krabba-
mein. Ekki skal hér farið út í endi
myndarinnar en þó má segja aö hann
sé í stíl við efniö.
Þeir sem hafa gaman af list fá tölu-
vert út úr The Belly of an Architect.
Fyrir utan aö kynnast hinum ein-
stöku hugmyndum og teikningum
Boullees, hvernig hann sá fyrir sér
Parísarborg sem Róm nýrra tíma, þá
fá áhorfendur að virða fyrir sér mörg
af bestu listaverkum Rómaborgar.
Einnig er nokkuð sérstakt fyrir
þessa mynd að Greenaway hefur
reynt að gera hana eins lítiö „breska"
og hægt er, að minnsta kosti á yfir-
boröinu. Engin aöalpersónanna er -
bresk og myndin gerist á Ítalíu.
Húðlitir
Einnig hefur verið rætt töluvert
um hve líflausir litirnir eru í mynd-
inni og eru deildar meiningar um
hvort það sé til bóta. Sjálfur segir
Peter Greenaway eftirfarandi: „Allir
litirnir eru í meginatriðum litir
mannslíkamans. Við reyndum að
deyfa eins og hægt var bláa og græna
litinn, þ.e. liti gróðurs og himins, til
að ná fram og undirstrika borgar-
landslag."
PeterGreenawaylætureinnigíljós '
ánægju sína meö Brian Dennehy sem
fer með hið viðamikla hlutverk Sto-
urleys. Eitt af stórbrotnustu atriöum
myndarinnar er þegar Stourley ark-
ar drukkinn upp að borði í veitinga-
húsi þar sem hann athjúpar magann
á sér fyrir framan gesti og segir:
„Þreyfið á honum, hann er ekki að
éta ykkur en hann er að éta mig "
Ekki er líklegt að The Belly of an
Architect verði sýnd í kvikmynda-
húsum á almennum sýningum
hérlendis á næstunni en hins vegar
er líklegt að henni skjóti upp t.d. á
næstu kvikmyndahátíð.
Baldur Hjaltason
I K S H A W
Jólagjöfin sem fer beint í efsta
sætið á óskalistanum!
rónlistarflutningurá þessari plötu
erallurmjög vandaðurog plat-
an raunar jafngóð út í gegn. Á
heildina litið ... um góðan grip
að ræða."
★ ★★★
Helgarpóstur 19.11/87
BLAÐADÓMAR
j j Jetta er alvörutónlist! Heilsteypt
í gegn. Ég hef engar áhyggjur
af framtíð RIKSHAW!"
★ ★★★
AM Morgunblaðið 08.11/87
UMSAGNIR
ún er „útlensk" ef svo má að
orði komast. Hvert smáatriði
þaulhugsað. Aðstoðarmenn í
fremstu röð og aðalmennirnir
fimm ná vel saman."
Ásgeir Tómasson. _
Jrábærlega vel gerð. Stenst fylli-
lega alþjóðlegan samanburð.
Með því besta sem heyrst hefur
á Islandi."
Friðrik Karlsson
Gunnlaugur Briem
Íæknilega séð fullkomin. Allur
hljóðfæraleikur að meðtöldum
söngnum, fyrsta flokks. f einu
orði sagt „Frábær plata".
Valdís Gunnarsdóttir
I eð þessari plötu hafa Rikshaw
strákarnir innsiglað gæði hljóm-
I sveitarinnar og að þeir eru
komnir til að vera. Plata sem
kemur manni í gott skap.
Vönduð í alla staði."
Pétur Steinn
útímalegasta tónlistin sem er í
gangi á Íslandi í dag. Fullkom-
lega sambærileg við erlendar
topphljómsveitir. Lagasmíðarn-
ar vandaðar, -ándið" frábært.
Bíð spenntur eftir næstu plötu."
Magnús Kjartansson