Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Utlönd__________________
Nýttlyf
við eyðni
Egypskur skurðlæknír er þeirr-
ar skoðunar að hann hafi fundið
upp nýtt lyf sem læknað geti
eyðni. Segir hann þaö hafa verið
reynt með góðum árangri á rúm-
lega þrjátíu sjúklingum í Zaire.
Að sögn læknisins hafa nokkrir
sjúklinganna notað lyfið í átta
mánuöi án þess að það hafi haft
nokkrar aukaverkanir í fór með
sér. Þó sé ekki enn hægt að segja
að það ráði niöurlögum veirunn-
ar.
Lyfið, sem kallað er MM-1,
raéðst á eyöniveiruna og byggir
upp ónæmiskerfi líkamans sem
eyðniveiran brýtur niður.
Það var fyrir þremur og hálfu
ári sem læknirinn, sem er pró-
fessor í skurölækningum við
háskólatm í Kaíró, hóf vinnu sína
við gerð lyfsins. Samkvæmt upp-
ástungu Alþjóöa heilbrigðismála-
stofnunarinnar var sjúklingum í
Zaire gefið lyfið í tiiraunaskyni
en þar eru sjö prósent íbúanna
smitaðir af eyöni.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 20-22 Lb.lb. Úb.Vb, Sp
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 20-24 Úb.Vb
6mán. uppsögn 22-26 Úb
12 mán. uppsogn 24 30,5 Úb
18mán. uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 6 12 Sp.lb. Vb
Sértékkareikningar 12 24 Ib
Innlán verötryggð Sparireikningar
3ja márT. uppsögn 2 Allir
8mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb
Innlán meðsérkjörum 18-34 Sb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 6-7,25 Ab.Sb,
Sterlingspund 7,75 9 Ab.Sb
Vestur-þýsk mörk 3-3,5 Ab.Sp
Danskarkrónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp.Lb.
Úb.Bb, Ib.Ab
Viöskiptavixlar(forv.) (1) 36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 36-37 Lb.Bb, Ib.Ab. Sp
Vióskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 36-39 Lb.Bb,
Ib.Ab,
Útlán verðtryggð
Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 31-35 úb
SDR 8-9 Vb
Bandaríkjadalir 9-10.5 Vb
Sterlingspund 10,5.-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýskmörk 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala des. 1886stig
Byggmgavisitala des. 344 stig
Byggingavísitala des. 107,5stig
H úsaleigu visitala Hækkaði 5% 1 . okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,3536
Einingabréf 1 2,507
Einingabréf 2 1,466
Einingabréf 3 1,553
Fjölþjóðabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,518
Lífeyrisbréf 1.260
Markbréf 1,277
Sjóðsbréf 1 1,226
Sjóðsbréf 2 1,226
Tekjubréf 1,317
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 130 kr.
Eimskip 365 kr.
Flugleiðir 252 kr.
Hámpiðjan 136 kr.’
Hlutabr.sjóðurinn 141 kr.
Iðnaðarbankinn 154 kr.
Skagstrendingurhf. 186 kr.
Verslunarbankinn 133 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar-
bankinn, l.b = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
ísraelsk óeirðalögregla með táragasgrímur við Al-Aqsa moskuna i Jerúsalem. Þegar Palestínumenn tóku að
streyma úr moskunni eftir bænastund kom til átaka milii þeirra og óeirðalögreglunnar. Simamynd Reuter
franska jólasveini verði kait þeg-
ar hann heldur út á götur og torg
því að eindæma veðurbliða ríkir
nú í Frakklandi.
Simamynd Reuter
Vorveður í
Frakklandi
Fleiri falla
áGazasvæðinu
Óeirðir blossuðu upp á ný á Gaza-
svæðinu. Fyrstu frásagnir íbúa á
svæðinu hermdu að þrír hefðu fallið
þegar hermenn hófu skothríð til að
dreifa Palestínumönnum sem efnt
höfðu til mótmæla.
Þessi nýju átök minnka vonir
stjórnarinnar í ísrael um aö kyrrð
sé að komast á en síðustu tíu daga
hefur á annan tug Palestínumanna
látið lífið í'átökunum og rúmlega
hundrað særst.
Róstur voru einnig í Jerúsalemþar
sem landamæralögregla skaut tára-
gasi að Palestínumönnum sem
grýttu lögreglumennina eftir bæna-
stund í Al-Aqsa moskunni.
Að sögn sjónarvotta réðust mót-
mælendur að aðalstöðvum hersins í
borginni Gaza. Köstuðu þeir grjóti
og bensínsprengjum að hermönnun-
um sem dreifðu mótmælendum með
táragasi. Mótmælendur lokuðu einn-
ig inngöngum að sjúkrahúsi og
hófust þar átök milli þeirra og her-
manna sem voru fjölmennir á götum
borgarinnar.
Sendiherrar Danmerkur, Belgíu og
V-Þýskalands auk sendinefndar Evr-
ópubandalagsins hafa sent orðsend-
ingu til utanríkisráðuneytis ísraels
þar sem þeir lýsa yfir áhyggjum sín-
um vegna ástandsins á herteknu
svæðunum. ísraelsmenn hafa sætt
mikilli gagnrýni víða fyrir að hafa
beint skotvopnum að mótmælend-
um.
Forseti Ítalíu, Francesco Cossiga,
er nú í opinberri heimsókn á Ítalíu
en hann hafði áður íhugað að fresta
henni eftir að ísraelskir hermenn
skutu til bana palestínska mótmæl-
endur. Hann mun ræða ástandið á
fundi með Shamir forsætisráðherra
og Peres utanríkisráðherra á morg-
un.
Aquino rekur ofursta
Corazon Aquino, forseti Filipps-
eyja, skipaði í gær her landsins aö
leysa Gregorio Honasan og þrettán
aðra ofursta, sem stóðu fyrir valda-
ránstilrauninni í ágúst, frá störf-
um.
Honasan var gripinn ásamt laut-
inant þann 9. desember síðastliðinn
í húsi í úthverfi Manilaborgar. Hin-
ir tólf ganga enn lausir.
Margir ofurstar og hermenn voru
gripnir eftir harða götubardaga
daginn sem valdaránstilraunin var
gerð. Tíu ofurstar gáfu sig fram
nokkrum vikum seinna en hundr-
að óbreyttir hermenn leika enn
lausum hala.
Um tvö hundruð eiginkonur og
börn 'fanginna hermanna söfnuö-
ust saman í gær fyrir utan aðal-
stöðvar hersins og kröfðust þess
aö fangamir yrðu látnir lausir yfir
jólin.
í Manila var tilkynnt í gær að
herinn hefði komist yfir áætlanir
skæruliða um auknar árásir eftir
jól. Ramos, yfirmaður hersins,
hafnaði í vikunni vopnahlésþreif-
ingum skæruliða.
Börn og eiginkonur þeirra hermanna sem handteknir voru fyrir valda-
ránstilraun á Filippseyjum i ágúst síðastliðnum kröfðust þess í gær að
fangarnir yrðu látnir lausir yfir jólin. -Símamynd Reuter
Rithöfundurinn Your-
cenar látin
Bjanú Hinnksson, DV, Bordeaux:
Einn helsti rithöfundur Frakka,
Marguerite Yourcenar, er nú látin
eftir langa sjúkdómslegu. Hún fædd-
ist í Belgíu árið 1903 en bjó í Banda-
ríkjunum frá 1939 þar sem hún vann
fyrir sér með kennslu.
Yourcenar var rithöfundarnafn
hennar. Réttu nafni hét hún Crayon
Cour. Þekktustu bækur hennar eru
vafalaust Minningar Hadrians, sem
út kom í kringum 1950, og Svartigald-
ur sem kom út skömmu seinna. En
bæði fyrir og eftir þennan tíma skrif-
aði hún fjöldann allan af skáldsög-
um, greinum í tímarit, ritgerðum og
þýddi bandaríska og gríska höfunda.
Yourcenar var fyrsta konan sem
tekin var inn í frönsku akademíuna
sem er samansafn rithöfunda og and-
ans manna. Á íslensku hafa birst
eftir hana tvær smásögur í öðru hefti
lista- og bókmenntaritsins Teningur.
Marguerite Yourcenar, sem var 84
ára þegar hún lést, var fyrsta konan
sem tekin var inn í frönsku akademí-
una. Símamynd Reuter
Bjami Mnriksaon, DV, Bordeaux;
Frakkar fa alls ekki hvít jól
þetta árið. Eiginlega væri nær
sanni aö segja að farið væri að
vora því óvenjulega hlýtt veður
hefur verið undanfarna daga og
búast má við aö svo verði áfram.
Talsvert hefur rignt og lítið sést
til sólar en hitastig veriö mjög
hátt.
Fyrir rúmri viku fór hitinn
nokkru niður fyrir frostmark í
austurhluta landsins og fólk var
fariö aö kynda af krafti. Nú
bregður hins vegar svo við að
hitinn eru um allt land á bilinu
miili átta og átján stig og setur
þetta heihnikiö strik í reikiiing-
inn.
Tii dæmis mega þeir sem æt-
luöu sér á skíði í Pýreneafjöllun-
um búast við grasi grónum
brekkum, steinum og stokkum
en sáralitlum snjó.
Þessar snöggu hitabreytingar
hafa líka í för með sér ýmsa lík-
amlega kvilla hjá sumum, eins
og kvef, giktarverki og svefnleýsi.
Suöur við Miðjarðarhafiö
ganga innfæddir um í stutterma-
bolum og er óhætt að segja að
þrátt fyrir jólaljós og logandi
stjörnur, sem skreyta helstu göt-
ur bæja og borga, sé engin hætta
á að jólastemningin komi of
snemma.
Þrír íranskir hraðbátar geröu í
gær árás á olíuflutningaskip sem
skráð er í Noregi, Eldur kom upp
í skipinu sem statt var á suður-
hluta Persaflóa nálægt Iiormuz-
sundi.
Árásin var gerð innan við tíu
klukkustundum eftir að skotiö
var á flutningaskip frá Saudi-
Arabíu. Bylflngarveröir á Abu
Musa eyju er taldir hafa staðiö
að baki báðum árásunum.
í Osló staðfesti skipafólagið
Norman International A/S aö
skotið hefði verið á skipið á
stjórnborða og aö eldur hefði
komið upp. Skipstjórinn tílkynnti
að eldurinn heíöi veriö slökktur
og að skipið sigldi fyrir eigin vél-
araili suður Hormuzsund. Engm
slys urðu á mönnum.
Mafíumeðlimir
handteknir
Lögreglan í Palermo handtók í
gær fjóra meðlimi mafiunnar.
Mennirnir fjórir voru ákæröir
árið 1983 íyrir morð á sitóleysk-
um kaupsýslumanni. Þeim var
einnig gefiö aö sök að hafa reynt
að koma bróður hans fyrir katt-
arnef.
Að sögn lögreglunnar höfðu
bræðumir neitað að verða viö
óskum mafíunnar sem reyndi aö
kaupa lóðir undir markaðsverði
í þorpi nálægt Palermo.
I gær fann lögreglan í Cataniu
lík kaupsýslumanns sem hafði
verið skotinn mörgum skotum og
virtist sem mafían heföi veriö þar
að verki.