Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Síða 7
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
7
WÍÍé&éB
m
öttum Meudingum nffan lykil
aðfortíð þfóðarinnar
LANDIÐ, SAGAN OG SÖGURNAR er nýstárleg og
stórskemmtileg bók eftir Magnús Magnússon, þar sem
nýju og einstaklega lifandi ljósi er varpað á fyrstu aldir
byggðar á íslandi. Hér er fléttað saman sögulegum
fróðleik, efni íslendingasagna, sögnum um íslenska
sögustaði og fólkið sem mótaði söguna. Frasagnargleði
og stíll Magnúsar gerir landið, þjóðarsöguna, bók-
menntimar og líf þjóðarinnar í
landinu að einni órofa heild. Á annað
hundrað litmyndir, kort og
teikningar gefa efninu aukna vídd
og bókinni glæstan svip.
FORSETIÍSLANDS,
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR,
ritar inngangsorð bókarinnar og segir þar m.a.:
„Með þessari bók hefur Magnús Magnússon fært þjóð
sinni góða gjöf sem vonandi á eftir að tendra forvitni í
hugum yngri sem eldri til að lesa meira og kynnast enn
betur hvaðan við erum komin og hvemig til komin,
sjálfstæð þjóð meðal þjóða á síðari
hluta 20. aldarinnar, - því fortíð
okkar allra er homsteinn þjóðarinnar
og vegvísir til ffamtíðar gulli betri
hveija stund sem líður.“
VAKáÖ
HELGAFELL
Magnús Magnússon erfæddurí Reykjavík árið 1929. Hanner íslenskur ríkisborgari þráttfyrirbúsetu í Skotlandifráníu mánaðaaldri. Þessi víðkunni
rithöfundur og sjónvarpsmaður nýtur ekki síst virðingarfyrir frábæra þætti og ritverk á sviði sagnfræði og fomleifafræð). Hann hefur skrifað tólf bækur
og verið afkastamikil! þýðandi íslenskra bókmennta. Fyrstu drög að efni þessarar bókar mótuðust þau sex sumur sem hann var ieiðsögumaður
breskraferðamanna um íslenskarsöguslóðir, en fráárinu 1984 hefur Magnús unnið að ritun bókarinnar í samstarfi við Vöku-Helgafell.