Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Stöð 2:
Bj argvætturinn er
mættur til leiks
eftir hjartaáfall
innan handar allt frá því hann
starfaði í leyniþjónustunni.
Flestir reka upp stór augu er þeir
sjá bjargvættinn. Vel klæddur
herramaður sem ekur um á gljá-
fægðum svörtum Jagúar og talar
með rólegri yflrvegaðri röddu.
Hins vegar getur útlit hans breyst
og oröið ógnþrungið er hann þarf
Stöð 2 hefur nú aftur hafið sýn-
ingar á hinum geysivinsæla
myndaflokki Bjargvætturinn eða
The Equalizer, eins og hann nefnist
á frummálinu. Hér er á ferðinni
ný þáttaröð, gerð á þessu ári.
Heyrst hefur að gerð þáttanna hafi
verið hætt um nokkurra mánaða
skeið þar sem aðalleikarinn, Ed-
ward Woodward, fékk hjartaáfall.
Hann mun hafa náð sér að fullu
og hafið leik að nýju og afrakstur
þess fáum við aö sjá á fimmtudags-
kvöldum.
Bjargvætturinn Robert McCall
(Edward Woodward) er gráhærð-
ur, virðulegur maður sem um
árabil starfaði í leyniþjónustunni.
Hann hefur mikla þekkingu á inn-
viðum glæpastarfseminnar í borg-
inni og orðið vitni að margvísleg-
um atburðum. Robert ákvað að
breyta um starf og gerast bjarg-
vættur. Fólk getur leitað til hans
um aðstoð ef allt annað bregst.
Robert McCall hefur aðstöðu sína
heima hjá sér í gegnum símsvara.
Aðeins lítil auglýsing í blaði gefur
upp símnúmer hjá bjargvættinum.
Hann hlustar eftir skilaboðum einu
sinni á sólarhring og hringir þá í
viðkomandi. Atburðirnir gerast á
sjálfri Manhattan í New York.
Bjargvætturinn hefur lent í mörg-
um og misjöfnum málum enda eru
margir sem gefast upp á lögregl-
unni og snúa sér til hans. En
bjargvætturinn á sína félaga einnig
innan lögreglunnar og kemur
henni alloft til hjálpar og öfugt.
Hann bjargaði kínverskum
dreng, syni auðjöfurs, úr höndum
mannræningja. Bjargvætturinn er
vel vopnum búinn og hikar ekki
við að hitta svívirðilegustu glæpa-
menn og morðingja. Hann bjargaði
saklausri sveitastúlku úr höndum
eiturlyfjasala og hórmangara auk
margra annarra hættulegra verk-
efna.
Robert McCalI á sér vin innan
lögreglunnar í New York, Bumett,
sem hefur ekki mikið álit á hetju-
skap hans en kemur honum þó til
hjálpar þegar bjargvætturinn
óskar eftir því. Einnig á bjargvætt-
urinn góðan vin, Control, sem er
fús að gefa honum ýmsar góðar
upplýsingar. Control er gamall vin-
ur McCall og hefur verið honum
Bjargvætturinn með syni sínum í þáttunum sem leikinn er af William
Zabka sem gerði garðinn frægan í kvikmyndunum um Karate Kid.
Edward Woodward í hlutverki bjargvættarins Roberts McCall sem fer einn síns liðs um mestu glæpastaðina
á Manhattan til að koma öðrum til hjálpar.
að leggjast til atlögu við glæpa-
hyskið.
í einkalífinu er McCall róleg-
heitamaður. Hann býr einsámall,
er fráskilinn og á einn son. Það er
Scott sem leikinn er af William
Zabka og á eftir að koma fram í
þessum þáttum. Scott er í tónlist-
amámi og þráir - eins og faðir hans
- nánara samband þeirra á milli.
Sonurinn er líkur fóður sínum að
mörgu leyti, hann viU hafa róleg-
heit í kringum sig á heimili sínu
og hlusta á klassíska tónUst.
Leikarinn Edward Woodward,
sem fer með hlutverk bjargvættar-
ins, er fæddur í Surrey í Englandi.
Hann er margfaldur verðlaunahafi
á sviði leiklistar og hefur verið
kosinn leikari ársins í tvígang á
Englandi og sjónvarpsleikari árs-
ins auk þess hefur hann hlotiö
önnur verðlaun. Hann hefur leikið
í yfir 200 sjónvarpshlutverkum
mest á Englandi. Meðal annars
hlaut hann Emmy verðlaun fyrir
leik sinn í Rod Of Iron árið 1981.
Auk þess má nefna hlutverk í
Winston ChurchUl: The Wildemess
Years, Major Barbara, Love is
Forever þar sem hann léfe með
Michael Landon, þá má nefna A
Christmas Carol og Arthur The
King sem gerð var af CBS sjón-
varpsstöðinni.
Edward Woodward hefur veriö
með sína eigin þ'ætti hjá Thames
sjónvarpsstöðinni sem hétu The
Edward Woodward Hour og Anot-
her Edward Woodward Hour. Þetta
hafa verið tónUstarþættir þar sem
hann hefur fengið til sín ýmsa góða
gesti. Þá hefur Edward geíið út
plötur sem náð hafa vinsældum.
Hann lék í áströlsku sjónvarps-
myndinni Breaker Morant og hlaut
æðstu kvikmyndaverðlaun í Ástr-
aUu fyrir leik í þeirri mynd. Einnig
hefur hann hlotið Emmy verðlaun
sem besti leikarinn í dramatísku
hlutverki fyrir leik sinn í Bjarg-
vættinum.
Steven Williams leikur lögreglu-
stjórann Burnett í Bjargvættinum,
en Burnett ber mikla virðingu fyrir
Robert McCall þó hann telji hann
sturidum fullglæfralegan í sam-
skiptum sínum við glæpamenn.
WilUams hóf leikferil sinn á
menntaskólaárunum. Hann hafði
mikinn áhuga á að gera leiklistina
að ævistarfi og sá draumur hefur
líklega ræst því hann hefur leikið
í tólf ár. Hann byijaöi sem leikari
í ferðaleikhúsi í Chicago en síðan
hefur mikiö vatn runnið til sjávar.
Meðal sjónvarpsmynda sem hann
hefur leikið í má nefna The Twi-
light Zone, Blues Brothers, Cooley
High og í sjónvarmyndaflokkunum
Dummy og HiU Street Blues. Hann
hefur einnig leikið í kvikmyndun-
um Buckaroo Bonzai og hlutverk
David Nestor í kvikmyndinni Miss-
ing in Action 2.
William Zabka fer með hlutverk
sonar bjargvættarins í þáttaröð-
inni. Hann er orðinn frægur leikari
eftir að hann lék í kvikmyndinni
The Karate Kid. WiUiam var ekki
nema tíu ára þegar hann kom fyrst
fram. Reyndar hélt hann að menn
þyrftu að borga fyrir að fá að koma
fram í sjónvarpi og kvikmyndum.
Þegar honum bauðst tækifæri til
slíks spurði hann föður sinn hvort
þau hefðu efni á því. Faðirinn svar-
aði: „BiUy, þeir borga þér!“
í Karate Kid lék WUliam Johnny
stjórnanda hóps af karateungling-
um. WUliam sýndi mjög góöa
hæfileika í kvikmyndinni og svo
var einnig í næstu mynd hans, Just
One of the Guys. Þá lék hann einn-
ig í Karate Kid 2. Þegar WUliam er
spurður hvort hann líkist þessum
strákum sem hann héfur verið að
leika hristir hann höfuðið og segir
„nei“. Allir sem þekkja mig vita að
ég er ekkert Ukur þeim. Reyndar
hefur William einnig leikið „góða
strákinn" í kvikmynd með CUff
Robertsson og Lorettu Swit í Dre-
ams of Gold.
Meðal annarra hlutverka hans í
kvikmyndum má nefna European
Vacation 2 með Chevy Chase,
Gimme A Break, Emergency Room
og Contract For Life. WiUiam er
mjög glaður með að hafa fengið
hlutverkið í Bjargvættinum og seg-
ist læra mikið á því að.vinna með
Edward Woodward.
WiUiam Zabka er fæddur í New
York. Hann bjó í Port í Washington
þar til fjölskyldan flutti til Los
Angeles. Þá var WUUam tíu ára.
Faðir hans starfaði sem kvik-
myndaffamleiöandi. Snemma
vaknaði áhugi hjá William aö ger-
ast leikari: Móðir hans, Nancy,
kynntist föður WilUams er hún
starfaði sem aðstoðarmaður fram-
leiðanda í Tonight Show en faðir
hans var þá stjórnandi hjá Johnny
Carson.
Bjargvætturinn hefur notið mik-
illa vinsælda í Bandaríkjunum og
þegar Edward Woodward varð að
taka sér hvíld frá störfum fékk
MCA sjónvarpsstöðin Roger Moore
til að taka við hlutverkinu. Líkleg-
ast var aðeins um einn þátt aö ræða
sem Moore lék í en eftir því sem
við vitum best er hann ekfei með í
þeirri þáttasyrpu sem nú er verið
að hefja sýningar á. Þessi þáttaröð
var tekin eftir að Edward Wood-
ward hafði náð sér.
Þá má minnast á það að á næstu
dögum og í byrjun janúar eru mjög
margir nýir myndaflokkar að byrja
á Stöð 2, bæði glænýir og eldri.
Miami Vice kemur aftur svo og
Lagakrókar. Einnig verða spenn-
andi míníseríur í gangi eftir
áramótin. DV segir ykkur frekar
frá þessum þáttum á næstunni.
-ELA