Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Side 31
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
31
r___________________________________Vísnaþáttur
Enginn gerir svo öllum líki
Samkeppni viö sjónvarpið
Spumingaþættir Ómars Ragn-
arssonar í sjónvarpinu hafa að
flestra dómi tekist vel. Hagyrðing-
ar hafa sett á þá skemmtilegan svip
og hafa menn látið í ljós við mig
óskir um að ég reyni að fá eitthvað
af þessum vísum í okkar þátt. Gam-
an væri ef þeir sem ortu litu til
okkar í náð. En ég hef fengið að-
sendar vísur norðan úr landi sem
ortar eru undir áhrifum þátta sjón-
varpsins. Svo segir í bréfi. Undir-
skrift má ekki nefna:
„Það hefur lengi verið grunnt á
því góða á milli Þingeyinga og Ey-
firðinga. Stundum etja utansveit-
armenn þessum þjóðflokkum
saman. Við sama borö á veitinga-
húsi á Akureyri sátu nokkrir
menn. Þar voru eftirfarandi vísur
ortar. Akureyringur reið á vaðið:
Með tætingslegar tilhneigingar
tylia sér upp á hverjum palh.
Það voru bara Þingeyingar,
og þeirra kannski eini galli.
Aðfluttur maður svaraði:
Víst þið yrkið vísur slyngar
og vekið stundum óvart kæti,
Akurmenn og Eyfirðingar,
uppgerðar með lítillæti.
Sá þriðji mælti:
Þeir eru bestir, það ég tel,
þegnar í ríki Braga,
sem að óvart yrkja vel
alla sína daga.
Og þessi síðasta vakti þá næstu:
Ekki það ég efa skal,
yljar mjöður skapið lýða.
Út við strönd og inni í dal
yrkjum við góðar stökur víða.“
Það er alltaf gott að geta gripið
til vísu vestur-íslenska skáldsins
Káins, þegar vantar í eyðu, svo
þátturinn sé hvorki lengri né
styttri en hann á að vera. Ég set
hana héma framan viö allt rausið
í sjálfum mér sem þó verður ein-
hvem tíma að koma svo að öllu
réttlæti sé fullnægt.
Glaður hér ég laga ljóð,
landar allir fagni,
því, að mér og minni þjóð
mátti ég verða að gagni.
Samviskusvarið
Ef satt skal segja kenni ég öðm
hvoru til í viðkvæmri samvisku
vegna bréfs sem mér barst fyrir
alllöngu, dagsett 23. sept. sl. Eldri
hréf eru að vísu óafgreidd í syrpu
minni en þetta er öðmvísi en öll
hin. Undir eru rituð þrjú viðkunn-
anleg nöfn, gætu verið hjón og einn
heimihsvinur. Þegar í annarri línu
er tekið fram að þeir sem lesendur
DV megi til með að lýsa óánægju
með tilhögun þáttarins. „Okkur
finnst þú setja dauða öndvegis-
menn ljóðlistarinnar skör ofar
lifandi þátttakendum." - Orðrétt
eftir haft. Skora þeir á mig að birta
vísur eftir unga upprennandi hag-
yrðinga, fyrriparta og botna. Og
halda svo áfram að þjarma að mér
og benda mér á að fá mér eitthvað
annað að gera, rýma fyrir betri
mönnum.
Bréfið er póstsett á Selfossi svo
þetta em eflaust velþenkjandi
Sunnlendingar. Ég sendi strax afrit
af bréfmu til yfirboðara minna. En
á meðan þeir láta ekkert í sér heyra
sit ég við minn leista enda ekki tíl
margra hluta annarra notandi. Ég
hef líka fengið betri orð úr öðrum
áttum. Vona að hinir vandlátu
venjist mínu háttalagi, sendi mér
jafnvel vísur sem ég skal taka til
vinsamlegrar athugunar. Ungir
hagyrðingar em því miður óþarf-
lega hræddir við „atómskáldið"
sem bréfritaramir kalla mig. Auð-
vitað er ég hálfgert vandræðaskáld
og frægur fyrir þaö.
En ég er nú orðin svo roskinn
maður að ég veit að sú skáldakyn-
slóð, sem þið nefnið, og sem með
•] miklum heiðri ber sinn atómstímp-
il, viðurkennir mig ekki í sínum
hópi enda sjálf orðin gamaldags í
landinu og aðrir, yngri menn, em
nú þeir nýju vendir sem sópa best.
En þótt menn séu settir á annan
bás en réttir og sléttir hagyröingar
geta þeir verið svo gamaldags að
kunna að meta vel gerðar visur en
þykja sér misboðið ef að þeim er
réttur leirburður skreyttur höfuð-
stöfum, stuðlum og endarími. Og
þó menn fái jafnvel á sig skálds-
nafn með réttu eða röngu þurfa
ekki allir slíkir, frekar en fyrri tíma
skáld þjóðarinnar, að vanmeta það
sem ort er undir fornum háttum
né lítilsvirða vel kveðnar ferskeytl-
ur.
En úr því verið var að tala um
„vísuupphöf og botna“ á slíkt fond-
ur að mínum dómi aðeins heima í
kunningjahópi og getur verið á-
gætt, ef það fæst aðsent sem full-
gerðar vísur, þegar vel tekst til. En
venjulega er það heldur ómerkilegt
bull sem ekki bætir smekk nokkurs
manns.
Lokaorð bréfritara voru „Áhugi
fólks dvín ef ekki er komið á móts
við það.“ Ég svara: Þáttagerðar-
maður verður að setja sér ákveðið
mark, taka tíllit til góðra lesenda,
reyna að gera sem ílestum til geðs
en kunna sér þar líka nokkurt hóf.
Vetur
Hér vendum við okkar kvæði í
kross og helgum hausti og vetri
framhaldið, fórum jafnvel strax að
hugsa til vorsins sem viröist þó æði
fjarri.
Oft var dimmt fyrir augum
Hjálmars gamla í Bólu, samt kvað
hann:
Læt ég sorg og langa sút
lúta skimu valdi.
Gægist morgunn ungur út
undan grímu tjaldi.
Sigurður Breiðfjörð sagði:
Lát ei kúgast þanka þinn,
þá er efnin vandast.
Þú skalt fljúga á forlögin,
fella þau og standast.
Páll Ólafsson:
Hjúkrað aö mér höndin þín
hefur öllum betur,
og aldrei látið sakna sín
sumar eða vetur.
Séra Björn Halldórsson í Laufási:
Gimast allar elfur skjól
undir mjallarþaki.
Þorir valla aö sýna sól
sig að fjallabaki.
Utanáskrift: Jón úr Vör
Fannborg 7, Kópavogi.
FALLEGAR FRÚARTÖSKUR
Glæsilegt úrval af frúartöskum úr
leðri og leðurlíki,
verð 1.495,1.595,1.975 og 2.995
kr., einnig fallegar slæður.
!!li
MumjjiK
n
KVENHANSKAR
HERRAHANSKAR
Hanskar með kanínuskinni
Hanskar með silkifóðri
Hanskar með prjónafóðri
Kventöskur úr mjúku skinni
Póstsendum
um
allt land
TÖSKU- OG HANSKAURVAL
Fallegartöskur úr leðri, verð 2.970-5.975 kr.,
einnig hanskarfrá Claus Buch úrmjúku leðri.
raftgey hf
Laugavegi 58 101 Reykjavík,
Seðlaveski - Leðurhanskar - Kventöskur - Skjalatöskur c MUS
í ótrúlegu úrvali BUCH
FRÁBÆRAR TÖSKUR
Vatnsheldir, léttir og sterkir
pokar, svartir, brúnir og kon-
íaksbrúnir. Verð 1.195-1.595
kr. Handtaska 1.495 kr. Ferða-
taska 1.495 kr. Sjal 995 kr.
Hanskar1.295kr.
GLÆSILEG JÓLAGJÖF
Tölvuseðlaveski
Ókeypis nafngylling fylgir hverju veski,
SEXTÍU TEGUNDIR
AF SEÐLAVESKJUM í
öllum verðflokkum, einnig tölvu-
seðlaveski og veski frá Arena.
Verðviðallra hæfi.