Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 33
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
33
dv Veröldvísindanna
Ariane-flaugin hefur nú loksins uppfyllt vonir manna
Sovétmenn hafa
fengið keppinauta
Síöasta árið hafa Sovétmenn boðið
vesturevrópskum fyrirtækjum og
stofnunum að koma gervihnöttum á
braut um jörðu. Þetta hafa þeir boð-
ist til að gera gegn vægu gjaldi,
vestrænum geimferðstofnunum til
mikils hugarangurs. Á sama tíma
hefur Vesturlandabúum gengið illa
að koma sínum flaugum á loft.
Nú í haust kom þó að því að Ar-
iane-geimflaug, sem smíðuð er í
samvinnu nokkurra ríkja í Vestur-
Evrópu, fór á loft og skilaði sínu
hlutverki óaðfinnanlega. Þá voru
liðnir 19 mánuðir frá því síðasta
geimskotið frá Ariane heppnaðist. í
maí á síðasta ári átti að skjóta á loft
þriggja þrepa flaug frá Ariane og
minnstu munaði að stórslys hlytist
af.
Hjá Bandaríkjámönnum var sömu
sögu að segja eftir að geimferjan
Enterprice sprakk í loft upp. Eftir
það varð aftur og aftur að fresta
geimskotum vegna bilana. Á sama
tíma gekk allt að óskum hjá Sovét-
mönnum.
Nú hafa þeir hins vegar fengið sam-
keppni á geimskotamarkaðnum og
Ariane hefur samið um 46 ferðir með
gervihnetti út í geiminn. Það svarar
til nærri helmings af þörfmni fyrir
aö koma gervihnöttum á braut um
jörðu.
Það líða ekki svo jól aö ekki
kvikni í jólatrjám og stundum
hlýst af stórslys. Oftar en ekki
hefur þessi ógæfa dunið yfir aö
næturlagi þegar allir sofa. Þá
getur eldurinn kraumaö lengi
áður en nokkur verður hans
var.
Nú iiefur verið þróaður reyk-
skynjari sern lítur út eins og
jólaskraut og hentar ágætlega
sem skraut á jólatré.
Þetta er kúla sem búin er
sömu innviðum og heföbundnir
reykskynjarar og lætur hátt i
henni þegar eldur er laus.
Jólaskreytinguna
færðu í Garðshorni
Jólaskraut
Jólatrésfætur
Kertamarkaður
ÁFGREIÐSLUTlMI
19.-22. des.
frá kl. 10-22
23. des. frá kl. 9-23
24. des. frá kl. 9-16
26. des. frá kl. 14-18
27.-30. des.
frá kl. 10-19
31. des. frá kl. 9-16
2. jan. frá kl. 10-19
Á leiði:
Krossar
Kransar
Leiðisgreinar
Útikerti
og luktir
Einnig allt efiti í jólaskreytingar
Gróðrarstöóin
GARÐSHORN^P
við Fossvogskirkjugarð, sími 40500
Tilvalin
jólagjöf.
Skákstríðv*
Persaflóa
Jón L. Árnason stórmeistari skrifar meginhluta bókarinnar.
Jón er löngu kunnur fyrir skemmtilegan ritstíl sinn en hann
hefur um langt skeið skrifað fasta þætti um skák í DV.
Vönduð og eiguleg bók.
Sýnum góðum málstað
stuðning í verki!
BAIMD
ISLANDS