Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Qupperneq 42
46
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Skák
DV
Islensku unglingana skorti herslumuninn í íjögurra landa keppni í Sandnes:
íslendingar hafa jafnan verið sig-
ursælir í skólaskákkeppni Norður-
landa og eins í Norðurlandamóti
framhaldsskóla. Alhr vita að skák-
áhugi er óvíða meiri en hér á landi
og skákstyrkur í samræmi við það.
Hins vegar erum við fámenn þjóð og
grannþjóðir okkar geta státað sig af
fleiri jafnsterkum skákmönnum. Er
teflt er á mörgum borðum mætti því
ætla að róður okkar manna færi aö
þyngjast. Samt munaði ekki nema
hársbjæidd að íslendingar færu með
sigur í fjögurra landa ungUnga-
keppni í Sandnes, skammt frá
Stavanger, um síðustu helgi, þar sem
teflt var á tíu borðum.
Auk íslendinga tóku Danir, Svíar
og gestgjafarnir Norðmenn þátt í
keppninni. AUar þjóðirnar mættu til
leiks með sína sterkustu menn. Stór-
meistarinn og „íslendingabaninn"
Simen Agdestein tefldi á 1. boröi fyr-
ir Norðmenn, Ferdinand Hellers
fyrir Svía og á efsta borði Dana tefldi
þeirra efnilegasti skákmaður, Lars
Bo Hansen. Sex borð voru ætluð
skákmönnum tvítugum og yngri en
á fjórum neðstu borðum tefldu skák-
menn 16 ára og yngri.
í íslensku sveitinni voru Þröstur
Þórhallsson, Andri Áss Grétarsson,
Davíð Ólafsson, Tómas Bjömsson,
Arnar Þorsteinsson og Snorri G.
Bergsson sem tefldu á sex efstu borð-
um; Hannes Hlífar Stefánsson,
Þröstur Árnason, Sigurður Daði
Sigfússon og Héðinn Steingrímsson
sem skipuöu „yngri“ borðin. Sveitin
skartaði því tveim heimsmeisturum,
Hannesi (16 ára og yngri) og Héðni
(12 ára og yngri). Fararstjórar og lið-
stjórar voru Jón G. Briem og Ólafur
H. Ólafsson.
Keppnin var jöfn og æsispennandi.
íslendingar mörðu sigur í fyrstu og
annarri umferð gegn Dönum og
Norðmönnum, 5‘A - 4 'A, og fyrir
lokaumferðina höfðu þeir 11 vinn-
inga og hálfs vinnings forskot á
Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Árnason náðu bestum árangri ís-
lensku unglinganna í Sandnes.
Norðmenn og Svía. Mótherjarnir í
síðustu umferð voru Svíar og því var
ljóst að um úrslitaviðureign yrði að
ræða.
Ungverski stórmeistarinn Lajos
Portisch hefur þá kenningu að
Skák
Jón L. Árnason
heppni og óheppni skákmanns (eða
sveitar) á móti jafnist ávallt út. Sá
sem er farsæll í upphafi móts fær -
samkvæmt kenningu Portisch -
óhjákvæmilega mótvind er dregur
að lokum. Þessi fræði má heimfæra
yfir á íslensku sveitina í Sandnes.
Nokkurt lán lék við sveitarmenn í
fyrri tveim umferðunum en gegn
Svíum snerust heilladísirnar.
Sænskir náðu yfirhöndinni en þó leit
út fyrir að íslendingum tækist að
jafna og sigra þar með í keppninni.
Síðustu skákinni til að ljúka var skák
Héðins við Hjelm. Héðinn hafði tals-
vert betri stööu lengst af en á yfir-
náttúrlegan hátt tókst Svíanum að
bjarga sér í jafntefli og tryggja lönd-
um sínum efsta sætið. Lokastaðan:
1. Svíþjóð 16 v. 2. ísland 15% v. 3.
Danmörk 14 'A v. 4. Noregur 14 v.
Hannes Hhfar og Þröstur Ámason
náðu bestum árangri íslendinga,
fengu 2 'A V. úr 3 skákum. Andri Áss,
Davíð og Amar fengu 2 v., Tómas og
Héðinn l'A v., Sigurður Daði 1 v„
Þröstur Þórhallsson hálfan (gegn
Agdestein) en Snorri engan. Á neðri
borðunum (16 ára og yngri) voru ís-
lendingar sterkari, fengu l'A v. af 12
mögulegum. Þó hefði mátt búast við
enn meira, enda bráefnilegir skák-
menn á ferð. Á efri borðunum var
árangurinn 8 v. af 18 mögulegum.
í skákþætti sl. laugardag var haft
á orði að keppnin yrði áreiðanlega
góð æfing fyrir unglinga okkar og
enginn vafi er á því að svo hefur
verið. Um leið var spurt hvort það
Athugið málið, hringið eða lítið inn.
„NÝKOMIГ
Barnastólar, 3 gerðir, upphækkunarpúð-
ar, öryggisbelti með og án rúllu. Taum-
ottusett, 5 litir, sætaáklæði í heilum settum
og ekta gæra fyrir framsæti. Bremsuljós
í afturglugga, radarvari, litlar ryksugur,
hjólkoppar, margar gerðir o.m. fl.,
10% staðgreiðsluafsláttur til áramóta.
Opið laugard. til kl. 18.
Þorláksmessu til kl. 23.
„lólagjöfin fyrir
bhcigandann“
-fæst hún ekki hjá okk-
ur?
Siðumúla 17.
Simi 37140.
samrýmdist metnaði okkar á skák-
sviðinu að hlaupa upp ti* 1. nanda og
fóta með skömmum fyrirvara til aö
„verða fjórða hjól undir vagni" í
keppni grannþjóðanna.
Ólafur H. Ólafsson hafði samband
við þáttinn og taldi þessi orð ómak-
leg. Rangt væri að Hollendingar
hefðu jafnan sent lið tíl þessarar
keppni, eins og sagt var. Árlega heföu
Svíar og Norðmenn háð unglinga-
landskeppni en til hátíðarbrigða
hefðu Norðmenn nú ákveðið að bjóða
tveim þjóðum til viðbótar. Vegna
misskilnings barst boð þeirra ekki
rétta leið til íslenskrar skákforystu í
sumar og því hefðu Norömenn
ákveðið að bjóða Hollendingum eða
Englendingum í staðinn. Þeir hefðu
sent afsvar og þá hefðu Norðmenn,
í örvæntingu, aftur haft samband við
íslendinga. Þvi barst boð þeirra seint
og þess vegna var „hlaupiö upp tíl
handa og fóta“ og sveit send utan í
snatri.
Ætlunin var síst af öllu að sneiða
að forystumönnum unglingaskákar
hér á landi, sem unnið hafa þrek-
virki með fórnfúsu starfi sínu. Um
það má þó auðvitað ávallt deila hvort
rétt sé að eyða takmörkuöu fiár-
magni skákhreyfingarinnar í þetta
verkefni eða hitt.
Lítum á fiöruga skák frá keppn-
inni. Frumlegt biskupsferðalag gerir
út um taflið í þessari.
Hvítt: Davíð Ólafsson
Svart: R. Djurhuus (Noregi)
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5.
Rf3 Bd7 6. Be2 fB 7. 0-0 fxe5 8. Rxe5
Rxe5 9. dxe5 Dc7 10. c4 d4
Endurbót Norðmannsins á skák-
inni Romanishin - Ivantsjúk sem
tefld var í fyrra en þar var leikið
10. - Dxe5?! 11. Bh5+! g6 12. Bf3 0-0-0
13. Hel og hvítur náöi betra tafli.
Skákinni lyktaði reyndar snögglega:
13. - Dd6 14. Rc3 dxc4 15. De2 Rf6 16.
Dxc4 Be7 17. Bf4 Db4? 18. Rb5! Bxb5
19. Bxb7+ ! og svartur gaf.
í skýringum stingur Romanishin
upp á 10. - 0-0-0!? sem virðist traust-
ari leikmáti heldur en aðferð
Norðmannsins. Með leik sínum gefur
hann eftir á miðborðinu.
11. f4 0-0-0 12. a3 Kb8 13. Bd3 Rh6 14.
Rd2 Be715. Re4 Ka816. Del Bc617. b4!
Hvítur er að ná hættulegri sókn á
drottningarvæng. Svartur grípur til
þess ráðs að hirða peðið jafnvel þótt
hvítur fái opnar línur gegn kóngin-
um.
17. - cxb4 18. axb4 Bxe4 19. Dxe4 Bxb4
20. Hf2
Hótar að vippa hróknum yfir á a-
eða b-línuna. Svartur missir nú af
síðasta vamarmöguleikanum. Með
20. - Rf5! 21. Hfa2 a5 22. Bd2 (ef 22.
Ba3, þá 22. - Bc3) Bxd2 23. Hxd2 Re7
24. Hda2 Rc6 væri riddarinn loks
kominn í leikinn. Eftir næsta leik
verður ekki aftur snúið.
20. - Dc6? 21. Hfa2 Bc5
Eftir 21. - a5 22. Bd2 Bxd2 23. Hxd2
Kb8 24. Dxc6 bxc6 25. Hxa5 ræður
svartur ekki við allar hótanimar.
8
7
6
5
4
3
2
1
.abcdefgh
22. Ba3!
Upphafið að afar skemmtilegri til-
færslu. Ekki gengur nú 22. - Bxa3 23.
Hxa3 og a-peðið verður ekki varið,
því að 23. - a6 strandar vitaskuld á
24. Hxa6+ og vinnur.
22. - Bb6 23. c5 Bc7 24. Bb4! Bb8 25.
Ba5!
Ef hrókurinn víkur sér nú undan
lyki hvítim biskupsrápinu með 26.
Bb6! og umsátriö um a-peðið er al-
gjört. Svartur verður aö sætta sig viö
skiptamunstap og framhaldið teflir
Davíð af nákvæmni.
25. - Dxc5 26. Bxd8 Hxd8 27. Hb2 Hd5
28. Habl b6 29. Hc2 Da5 30. Bb5!
Svartur gafst upp.
Fregnir frá FIDE-þingi
Þing Alþjóðaskáksambandsins,
FIDE, var haldið fyrstu dagana í
mánuðinum í Sevilla þar sem Karpov
og Kasparov þreyta tafl sitt. Eitt og
annað gerðist á þinginu, sem þó ein-
kenndist öðru fremur af reiðilestri
Campomanesar, forseta FIDE. Að
sögn Einars S. Einarssonar, sem sótti
þingið fyrir íslands hönd, vissu þing-
menn ekki hvaðan á sig stóð veörið
er forsetinn jós úr skálum reiði
sinnar og „skásett augu hans skutu
gneistum",. eins og Einar komst að
orði. Orðum forsetans mun hafa ver-
ið beint gegn heimsmeistaranum
Kasparov sem deilir m.a. á FIDE og
„skákmafíuna“ í nýrri bók sinni.
Þá vildu Campomanes og fylgifisk-
ar hans dæma Spánveijann Ricardo
Calvo í keppnisbann fyrir skrif hans
í hollenska skáktímaritiö Ney in
Chess. Calvo fer þar ófógrum orðum
um skákforystuna. Fulltrúar Vestur-
landa á þinginu lögðust allir sem
einn gegn þessari hugmynd og töldu
FIDE ekki hafa lögsögu yfir því hvað
menn skrifuðu. A endanum var til-
lagg nefndarinnar felld en þó
samþykkt að fordæma slík skrif og
lýsa Calvo „persona non grata“. Fyr-
irspurn um það hvað þau orð merkja
var svaraö á þann veg aö bjóða mætti
Calvo á skákmót en hann yrði
útskúfaður úr samkvæmislífinu!
Stórmeistarinn Quinteros var hins
vegar dæmdur í árs keppnisbann
fyrir að tefla í Suður-Afríku.
Lagðar voru fram tillögur um
breytingar á fyrirkomulagi heims-
meistarakeppninnar. Tillaga Pol-
ugajevskys hlaut góðan hljómgrunn.
Hann vill sameina heimsmeistara-
keppnina og heimsbikarkeppni
alþjóðasamtaka stórmeistara sem
hefst á næsta ári. Hugmynd hans er
að fyrst tefli 100 skákmenn í 13 um-
ferða opnu móti, 64 þeirra séu valdir
samkvæmt stigum, 30-32 úr svæðis-
mótum og 4-6 samkvæmt sérstökum
re'glum: fyrrverandi heimsmeistar-
ar, heimsmeistari unghnga, þátttak-
andi frá landinu sem heldur
keppnina o.s.frv. Efstu 36 úr opna
mótinu komast áfram og heyja ein-
vígi tveir saman. Þeir 18 sem þá
verða eftir hafa unnið sér rétt til að
tefla í heimsbikarkeppninni, auk
þeirra 6 sem komust lengst í síðustu
keppni. Heimsbikarkeppnin sam-
anstendur af sex skákmótum. Sá sem
fær flest stig úr mótunum hefur unn-
ið sér rétt til að heyja 24ra skáka
einvígi við heimsmeistarann. Verði
heimsmeistarinn sjálfur efstur teflir
hann einvígi við næsta mann í röð-
inni en hefur þá rétt á öðru einvígi
innan hálfs árs ef hann tapar titlin-
um.
Einnig bar á góma reglugerð um
stigaútreikning 30 mín. skáka, sem
nefndar hafa veriö „atskákir" (action
chess). Fyrsta Evrópumeistaramótið
í atskák verður haldið í Gijon á Spáni
í byrjun júní á næsta ári.
Að lokutn má enn geta þess að
Þröstur Þórhallsson var útnefndur
alþjóðlegur meistari á þinginu og ís-
lendingar einguðust einnig tvo
FIDE-meistara: Hannes Hhfar Stef-
ánsson og Ingvar Ásmundsson.
-JLÁ