Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Side 53
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
57
Ferðamál
Urrdir glerþakinu geta verið margs konar uppákomur allt árið um kring í
Kempervennen. Á vetrum eða þegar veðurguðirnir eru gestum ekki vil-
hallir kemur glerþakið að góðum notum en það er auðvelt að renna þakinu
af þegar vel viðrar.
Sæluhúsin í Hollandi:
Miklar breytingar
í Kempervennen
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ef frá eru taldir hinir „hefð-
bundnu“ sólarstaðir sem íslenskir
ferðalangar hafa sótt í miklum mæli
undanfarin ár og jafnvel áratug, þá
hefur sennilega enginn staður er-
lendis verið jafnmikið sóttur af
íslendingum undanfarin sumur og
Kempervennen, „sæluhúsahverfi"
Samvinnuferða Landsýnar í Hol-
landi.
Samvinnuferðir hafa boöið far-
þegum sínum upp á gistingu þar í
sumarhúsum sl. fjögur ár og sl. sum-
ar komu þangað um tvö þúsund og
sex hundruð Islendingar eða liðlega
eitt prósent þjóðarinnar.
Næsta sumar veröa Samvinnuferð-
ir Landsýn þar með áttatíu til níutíu
sumarhús eða álíka mikiö gistirými
og síðastliðið sumar. En það verður
nokkuð breytt svæði sem farþegum
verður boðið upp á í Kempervennen
næsta sumar.
Um tíu þúsund íslendingar hafa
dvalið í Kempervennen á undanföm-
um árum og þeir þekkja vel „mið-
bæinn“ á svæöinu. Þar hefur nú
miklu verið breytt. Verslunun hefur
verið fjölgað mjög, veitingasalir
stækkaöir og rúmar sá stærsti þrjú
þúsund manns í sæti. Þá hafa risið á
svæðinu fleiri matsölustaðir til dæm-
is japanskur staður og ítalskur. Yfir
allan miðbæinn hefur síöan veriö
byggt glerhús sem loka má ef þurfa
þykir. Við sundlaugina hafa einnig
átt sér stað framkvæmdir og meöal
annars er þar nú komin ný renni-
braut þar sem hggur út úr sundlaug-
arbyggingunnni í gegn um skóga og
tjarnir og endar ferð í henni í útisun
dlauginni.
Þá er komin ný íþróttahöll á svæö-
iö þar sem hægt er að iöka margar
greinar inniíþrótta. Útisvæði hefur
verið byggt upp fyrir þá sem vilja
stunda bogfimi og allt er þetta viðbót
við þá aðstöðu sem fyrir var bæði
utan- og innanhúss.
Fyrirtækið Center Parcs, sem á
sumarhúsin í Kempervennen, er
risafyrirtæki á sínu sviði með
skemmtigarða víðar í Evrópu. Fleiri
garðar eru í Hollandi, og einnig er
fyrirtækið með skemmtigarða í Eng-
landi, Frakklandi og víðar. En það
er garðurinn í Kempervennen sem
fjöldi íslenskra ferðalanga virðist
hafa tekið ástfóstri viö, og margir
fara þangað í sumarleyfisferðir ár
eftir ár.
Sundlaugaparadfsin í Rotterdam sem verður opnuð í sumar
Sumarhúsagarðar víðar
Islendingar hafa lagt leið sína í
Kempervennen en eins og sagði hér
að ofan er Center Parcs.fyrirtækið
risafyrirtæki í Evrópu á sviði
skemmtigarða. Fyrirtækið er hol-
lenskt og á átta sumarhúsagarða í
heimalandinu, en auk þess tvo í Belg-
íu og einn í.Englandi.
í byggingu er nýr garður um eitt
hundrað kílómetra frá París í
Frakklandi. Sá garður verður opnað-
ur á næsta ári. Tveir aðrir garðar eru
í byggingu á vegum fynrtækisins og
verða þeir teknir í notkun árið 1989.
Annar þeirra er í Suffolk í Englandi
og hinn skammt frá Hamborg í Vest-
ur-Þýskalandi.
Það allra nýjasta hjá Center Parcs
er þó .‘.Tropicana Rotterdam" í Hol-
landi. Þaö er stærsta og aö sögn
kunnugra flottasta sundlaugapara-
dís í Evrópu og þó víðar væri leitað.
Laugin verður opnuð í júlí í sumar
og er hún við Maasbuleyard í Rott-
erdam. Þarna verða margar laugar
og geta um fimm þúsund manns leik-
ið sér í litlum eða stórum laugum,
sumum með öldugangi og rennt sér
í rennibrautum og farið í leiktæki.
Fleira þarf til að hægt sé að kalla
staðinn paradís, við vitum að þama
verða saunaböð og sólarbekkir og
veitingaaðstaða.
Þetta verða eflaust blómsturvellir
sælla ferðalanga í náinni framtíð
-ÞG
Láglendisganga
í jaöri þéttbýlisins hér á höfuð-
borgarsvæðinu eru margar
skemmtilegar gönguleiðir, sérs-
taklega þegar um enga hækkun
er að ræða frá upphafsstað.
Gönguferð um Vífilsstaðahlíð,
Vatnsendaborg, að Kjóavöllum
er einmitt ein slík láglendisganga
um skemmtilegt svæði.
Margur getur gengið þetta einn
meö sjálfum sér en fyrir hina sem
vilja frekari félagsskap er göngu-
ferð um þetta svæði á áætlun
Ferðafélagins sunnudaginn á
milli jóla og nýars. Gönguferðin
tekur um tvær og hálfa klukku-
stund og haldið er af stað frá
höfuðborginni, framhjá Vífils-
stöðum að Maríuvöllum, sem er
flatlendi við vesturenda Vífils-
staðahlíðar og þar hefst gangan.
Gengið er meðfram allri hlíðinni
sem er að verulegu leyti vaxin
trjágróðri. Þar eru nokkrir minn-
ingarlundir, flestir tengdir
nöfnum manna sem hafa veriö
áhugamenn um skðgrækt. Þegar
Vífilsstaðahlíð sleppir er gengið í
noröausturátt fyrir Sneiðinga og
meöfram Hjöllum sem er mis-
gengi og nær frá Elliðavatnslandi
suður í Búrfellsgjá. Hjá Sneiðing-
um, norðan vegar, er stígur upp
að útsýnisskífu eðá hringsjá sem
er rækilega merkt. Þegar komið
er að Þverhjalla er haldið í vestur
að Vatnsendaborg sem er gömul
fjárborg frá Vatnsenda. Og áfram
er göngunni haldið í norövestur
uns komið er að Kjóavöllum og á
Rjúpnahæð. Þaðan er stutt í
Seljahverfið í Breiðholti. Þetta er
góð ganga eftir allan jólamatinn
dagana á undan og reyndar hven-
ær sem tækifæri gefst næst til
gönguferðar með litlum fyrir-
vara.
EKTA
AIMILÍN-
LEÐUR
3 GERÐIR
4 LITIR
VERÐ FRA KR. 49.500- MEÐ SKEMLI
f HÚSGAGNAVERSLUN
Uf$kálar
VATNSNESVEGI 14, KEFLAVÍK, SÍMI 92-11755.