Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Blaðsíða 58
62
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Jólamyndir kvikmyndahúsaima
Stj ömubíó/Ishtar
Eyðimerkurganga
hjá stjömunum
Jólamynd Stjömubíós að þessu
sinni er gamanmyndin Ishtar með
stórleikurunum Dustin Hoffman
og Warren Beatty. Einnig er
franska fegurðardísin Isabelle Adj-
ani í einu aðalhlutverkanna.
Myndin segir frá sérkennilegum
félögum í New York (Hoffman og
Beatty) sem ganga báðir með sama
drauminn í maganum - að slá í
gegn sem söngvarar og lagasmiðir.
Framtíð þeirra virðist þó ekki vera
allt of björt því að þeir eru gjörsam-
lega laglausir, ómögulegir laga-
smiðir og auk þess komnir af besta
skeiði. Það eru því fáir sem fýsir
aö fjárfesta i hæfileikum þeirra.
Þeim tekst þó með aðstoð vafa-
sams umboðsmanns, sem leikinn
er af Jack Weston, að fá vinnu í
höfuðborg arabaríkis í N-Afríku og
þangað haida félagarnir í von um
skjótfenginn gróða og, ef vel tekst
til, heimsfrægð.
Á flugvellinum í arabaríkinu
hitta þeir fyrir fagra arabastúlku
(Adjani). Hún er á flótta undan
óvinum sínum og biður þá félaga
um aðstoð sem þeir veita henni
enda sannir heiðursmenn á ferð.
Þessi greiði hefur hins vegar alvar-
legar afleiðingar fyrir þá því nú er
fjandinn laus. Þeir eru eltir og of-
sóttir af konungssinnum, skæru-
liðum og bandarísku leyniþjón-
ustunni. Á flótanum hrekjast þeir
út í eyðimörkina í fylgd sérkenni-
legs kameldýrs og alls ekki bjart
framundan...
Það er Warren Beatty sem á heið-
urinn, sökina myndu sumir segja,
af því að framleiða þessa rándýru
eyðimerkurgöngu. Hún kostaði um
50 milljónir dollara þegar upp var
staðið og ætlar svo sannarlega að
eiga í erfitt með að skila þeim aftur
í kassann. Myndin hefur vægast
Löng eyðimerkurganga framund-
an hjá þeim Hoffman og Beatty.
sagt fengið misjafna dóma en eigi
að síður eru þeir til sem halda uppi
vömum fyrir hana. í raun er ekk-
ert annað hægt að gera fyrir okkur
Frónbúa en að skimda í bíó og berja
herlegheitin augum til að dæma
fyrir okkur sjálf. Því verður ekki
neitað að ávallt er forvitnilegt að
sjá þá Hoffman og Beatty á hvíta
tjaldinu og fmmraun Beatty sem
kvikmyndaframleiðanda, Reds,
gerir það að verkum áð þessi-mynd
hlýtur að fá einhveija athygli.
Leikstjóri og höfundur handrits
er Elaine May en búningar eru
hannaðir af Anthony Powell. Kvik-
myndun annaðist Vittorio Storaro
en hann hefur margoft sýnt fram á
getu sína og gefur myndinni vissan
gæðastimpil. Þá ku kameldýrin
standa sig vel. -SMJ
Bí óborgin/Stakeout
Gluggagægjar á
JEtegnboginn/The Last Emperor
I Kína keisaranna
Þessi mynd ítalska leikstjórans
Bemardos Bertolucci hefur verið
lengi í smíðum en upptökur fóru.
fram á henni árið 1986 í Kína. Hún
segir sögu síðasta keisara Kína, Pu
Yi, sem varð keisari 1908, þá aðeins
þriggja ára, og átti fyrir honum að
hggja að verða vitni að gífurlegum
breytingum hjá þessari fjölmenn-
ustu þjóð veraldar. Ekki var heldur
nein lognmolla yfir lífi hans sjálfs.
Honum var steypt af stóh þegar
hann var sex ára. Hann lifði síðan
sem vestrænn glaumgosi til 1931 í
Sjanghæ er japanska innrásarhðið
gerði hann að keisara. Var hann
leppur Japana í þeim hluta Kína
sem þeir réðu. Pu Yi var hand-
tekinn af Rússum 1945 en skfiað
aftur til Kínveija 1950. Áttu flestir
von á því að kínversku komm-
únistarnir -yrðu fljótir að ganga
milU bols og höfuðs á þessum „syni
himinsins“ en svo varð þó ekki. í
stað þess var hann settur í endur-
hæfingu og dvaldist í tíu ár í
stofufangelsi þar sem honum vom
kenndir nýir og betri siðir. Þaðan
sneri hann breyttur maður og flutti
til Peking í upphafi menningarbylt-
ingarinnar. I Peking starfaði hann
sem garðyrkjumaður, hamingjus-
amari og fijálsari en hann hafði
nokkru sinni verið. Pu Yi dó 1%7.
Ruddi leiðina
Þessi mynd markar tímamót að
því leyti að hún er fyrsta vestræna
myndin sem fjallar um Kína nútím-
ans og er tekin í Kína. Að því leyti
mddi hún brautina. Það gekk þó
ekki átakalaust þvi að áður en af
þessu gat orðið þurfti að standa í
erfiðum samningaviðræðum við
stjómvöld. Tóku þær viðræður tvö
ár. Eftir að myndataka hófst vom
einnig margvísleg vandkvæði.
Skrifræðið í Kína reyndi oft á þol-
rifin og þá þóttu Kínveijar oft
frekir til fjárins og vildu verðleggja
þjónustu sína hátt, sannfærðir um
að vestrænir kvikmyndagerðar-
menn væðu í peningum. Myndin
Skrautlegir búningar eru meðal skrautfjaðra The Last Emperor.
var þó gerð og eru að sögn margar
magnaðar senur í henni á stöðum
í Kína sem sjást ekki daglega í vest-
rænum kvikmyndum. Búningar
em magnaðir og myndin öll augna-
veisla.
Bertolucci er fæddur 1940 í
Parma á Ítalíu. Hann á að baki
margar athyglisverðar myndir, svo
sem Last Tango in Paris, 1900 og
La Luna. Þessi mynd er hans
stærsta verk til þessa. Framleið-
andinn, Jeremy Thomas, á að baki
langan hsta af frægum myndum,
svo sem Eureka, Bad Timing og
Insignificance, undir leiksfjóm
Nicolas Roeg. Einnig framleiddi
hann Merry Christmas Mr. Law-
rence. Þá er myndatökumaður
Vittorio Storaro sem vann verð-
laun fyrir Reds og Apocalypse
Now. Þessi mynd verður sýnd í
A-sal.
ið fyrirí óvinalandi og hún sprengd
án nokkíirrar viðvömnar. The Fo-
urth Protocol er samningur sem á
að koma í veg fyrir þetta en nú er
hann í hættu. Samskipti stórveld-
anna og leyniþjónustur þeirra era
hér í brennidepli og fylgir myndin
hefð leyniþjónustumynda Breta.
Það er Michael Caine sem fer með
aðalhlutverkið en með honum em
fjölmargir góðkunningjar okkar úr
breskum sjónvarpsþáttum.
-SMJ
Kjarnorkusprengja í B-sal
I B-sal Regnbogans verður sýnd
mynd gerð eftir metsölubók Fred-
erick Forsyth. Þetta er að sjálf-
sögðu ekki fyrsta myndin sem gerð
er eftir sögum Forsyth en hann
fékk að ráða óvenjumiklu við gerð
þessarar myndar sem segir frá
heldur óhugnanlegum möguleika
sem kjamorkuvopnin hafa skapað,
sem sé að lítilli sprengju verði kom-
Háskólabíó/The Couch Trip
Með geðugum geðsjúklingum
fullri ferð
Jólamynd Bíóborgarinnar núna
fyrstu jóhn sem hún starfar er
gamanmynd sem væntanlega er
ipjög spennandi. Hún segir frá
leynilögreglumönnum í Seattle
sem fá verkefni upp í hendumar
sem þeir fagna ekki mjög. Lög-
reglumennimir em Chris Lecce
(Richard Dreyfuss) og Bih Reimer
(Emiho Estevez).
Þeim er fahð að fylgjast nótt og
dag með húsi einu hvar í býr unn-
usta frægs glæpamanns. Það er
lögreglumorðinginn Richard
„Stick“ Montgomery (Aidan Qu-
inn) sem á að negla og vænlegast
er tahð að vakta hús unnustunnar,
Maríu McGuire (Madeleine Stowe).
Við þetta verkefni verða þeir félag-
ar Bih og Chris að vinna undir
sfjóm FBI og eru þeir ekki mjög
hrifnir af því.
í fyrstu er umsátrið leiðinlegt og
félagarnir eiga erfitt með að fá tím-
ann til að líða. En fljótlega færist
fjör í leikinn og félagamir gera sér
grein fyrir því að þetta er ekkert
venjulegt umsátur. Til að gera hlut-
ina enn flóknari verður Chris
ástfanginn af Maríu og áður en við
er htið eiga þeir félagar í erfiðleik-
um við að halda sig við starfið. -
Og loksins birtist lögreglumoröing-
inn og þá færist fjör í leikinn...
Það er John Badham sem leik-
stýrir myndinni en hann hefur
reynst farsæll leikstjóri og oft te-
kist að gera skemmtilegar myndir
sem hafa notið góðra aðsóknar.
Hann er að vísu ekki mjög djúpur
kalhnn en þeir hafa traust á honum
í Hohy. Meðal fyrri verka hans má
nefna Blue Thunder, WarGames,
Saturday Night Fever, American
Flyers og Short Circuit. Þá leik-
stýrði hann Dreyfuss í Whose Life
is it Anyway?
Richard Dreyfuss hefur átt mik-
ihi velgengni að fagna að undanf-
örnu eftir aö hafa lent í lægð í
kjölfar óskarsverðlaunanna sem
hann fékk fyrir The Goodby Girl,
þá 29 ára. Fram að því hafði hann
vakið athygli á sér fyrir American
Graffiti og Jaws. Það þarf varla að
nefna frammistöðu hans í myndum
eins og Down and Out in Beverly
HiUs og Tin Men.
Emilio Estevez er einn hina ungu
og efnhegu leikara sem mikið hafa
látið að sér kveða í HoUywood á
undanfórnum ámm. Hann hefur
leikið í myndum eins og Wisdom,
Repo Man, St. Elmo’s Fire og The
Brekfast Club.
-SMJ
Dreyfuss og Estevez á gægjum.
Jólamynd Háskólabíós segir frá
dr.
George Maithn (Charles Grodin)
sem er rándýr sálfræðingur í Be-
verly HiUs. Þar er auðvitað allt í
lagi að vera rándýr en eigi að síður
er starfið eitthvað að naga aum-
ingja George og hann er við það að
fá taugaáfaU. Hann þarf á sálfræð-
ingi að halda - ekki kannski til
lækningar heldur tU að leysa hann
af hólmi á meðan hann tekur sér
langþráð frí. Kona hans og lögfræð-
ingur ráðíeggja honum að fá virtan
sálfræðing, dr. Lawrence Baird, til
að taka við starfinu um tíma. Fyrir
röð tUviijana er það maður að nafni
John Bums (Dan Aykroyd) sem
tekur við starfinu.
Bums virðist við fyrstu sýn varla
vera fær um að aðstoða neinn enda
hin versti spítalamatur sjálfur.
Hann gerir sig þó heimakominn í
sálfræðistarfmu enda þekkir hann
ipjög vel þá hhð málsins sem að
sjúklingnum snýr! Fljótlega fer
hann að vekja eftirtekt fyrir frum-
legar lækningaaðferðir þó að ekki
séu aUir beinlínis hrifnir af þeim.
Sérstaklega er það aðstoðarmaður
dr. Maithns, hin fagra dr. Laura
Rolhns, sem gmnar að ekki sé allt
með felldu. Þá kemst fljótlega inn
í máhð bijálæðingurinn Donald
Becker (Walter Matthau) sem er
nýsloppinn af hæh.
Starfsaðferðir „dr. Baird“ reyn-
ast nýstárlegar og falla ekki öllum
í geð eins og áður sagði. Steininn
tekur þó úr þegar hann fer að bjóða
upp á ókeypis meðferð og þá jafn-
vel þeim sem þurfa ekkert að leita
sálfræðings. Þá blandast ástin auð-
vitað inn í því gervUæknirinn
verður fljótlega mjög hrifinn af dr.
Rollins. Málin flækjast þó veralega
þegar í Ijós kemur að lögfræðingur
dr. Maitlins ætlar sér að hrekja
Burns úr fyrirtækinu um leið og
hann hefur fengið þá hugmynd að
stinga af með vænar peningafúlg-
ur.
Það þarf líklega ekki að kynna
þá Dan Aykroyd og Walter Matt-
hau fyrir neinum en þeir eru með
vinsæUi gamanleikumm vestra
þótt þeir’séu hvor af sinni kynslóð.
Aykroyd gat sér fyrst orð fyrir
frammistöðu sína í Saturday Night
Walter Matthau sést hér i frekar
vafasömu gervi.
Live en hefur leikið í myndum eins
og 1941, The Blues Brothers, Neigh-
bours, Twihght Zone, Trading
Places og Ghostbusters.
Leikstjóri er Michael Ritchie sem
leikstýrði meðal annars Fletch með
Chevy Chase og The Golden Child
með Eddie Murphy. Hvorug þess-
ara mynda var neitt meistara-
stykki en sýndi þó að það eru
margir í Holly sem treysta Ritchie
tU að leikstýra gamanmynd. -SMJ
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Jólamynd Borgarbíós á Akureyri
að þessu sinni er bandaríska saka-
málamyndin The Behvers og er um
frumsýningu á íslandi að ræða.
Sigurður Amfinnsson, bíósijóri á
Akureyri, sagði í samtali við DV að
nokkuð hefði verið um fmmsýningar
að ræða hjá Borgarbíói að undan-
Borgarbíó a Akurey
Frumsýning á The
fömu, eða eftir að sýningasalir
hússins urðu tveir. Myndirnar fær
Borgarbíó yfirleitt frá Háskólabíói
sem sýnir þær eftir að Akureyringar
hafa htið þær augum. Því miður lágu
ekki á lausu upplýsingar um inni-
hald The Belivers nú fyrir helgina.
En sú mynd er einungis ein af 6
myndum sem Borgarbíó sýnir um
jóhn. Kl. 15.00 annan jóladag verða
sýndar tvær myndir, Frumskógar-
strákurinn Lazardo og Litla hryll-
ingsbúðin. Kl. 17.00 em síðan aðrar
tvær myndir á dagskrá: Superman
IV og Hver er stúlkan en þar er söng-
konan Madonna í aðalhlutverki
Kl. 21.00 hefst frumsýning The Beh-
vers og 10 mínútum síðar í hinum
salnum sýning á Svörtu ekkjunni
sem er bandarísk sakamálamynd.