Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1987, Page 59
I
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987.
Jólamyndir kvikmyndahúsaiina
i:
Belivers
Kl. 23.00 er Hver er stúlkan aftur
sýnd og einnig The Belivers.
Efni myndarinnar Svarta ekkjan
er í stuttu máli það aö stafsmaöur
dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna
finnst grunsamlegt er honum berst
skýrsla um aö sextugur auðmaður
hafi gengið að eiga þrítuga konu en
látist í svefni skömmu siðar. Þetta
verður enn einkennilegra fyrir þær
sakir að annað dauðsfall verður
nokkrum dögum síðar en þá deyr
roskinn efnamaður í svefni skömmu
eftir að hann hefur gifst ungri konu.
Það er ljóst á framboði Borgarbíós
á Akureyri að kvikmyndaáhuga-
menn þar í bænum hafa um ýmislegt
að velja um jólin.
BT-245
FERÐASJONVARP
Svart/hvítt sjónvarp tilvalið í eldhúsiö, unslingaherbergiö,
sumarbústaöinn, bátinn eöa bílinn. Tengi f/bílkveikjara og
festingasett fylgir.
Verö aöeins
kr. 8.900 stgr.
BT-340 MC
. Dantax
HATALARAR
Ööruvísi hátalarar.
Topp gæöi og hönnun.
H L JOMTÆKJASTÆÐA
2x20 watta magnari. 5 banda tónjafnari. Tvöfalt segulband.
Hraðupptaka. FM-stertó. LW og MW bylgjur. Hálfsjálfvirkur
plötuspilari. Vandaöir hátalarar.
Verö aöeins
kr. 17.900 stgr.
14 KAUPSTAÐUR
í AAJÓDD - SÍMI 73900
Afgreiðslumaðurinn Jack Putter þarf aö gera fleira en gott þykir til aö
bjarga sínum innra manni.
Bíóhöllin/Innerspace
Furðulegt ferðalag
DISKSPILARI
3ja geisla diskspilari m/lagaminni, endurspilun og A til B Verö aöeins kr. 13*900 stgr.
endurspilun. „Index". Heyrnartækjatengi m/styrkstilli. Afb. veró kr. 14.700
Furðusnillingurinn Steven Spiel-
berg býður kvikmyndaáhugamönn-
um í sérkennilegt ferðalag í
Bíóhöllinni yfir jólin. Nú eru það
ekki óravíddir geimsins sem eru
kannaðar heldur er ferðast um í lík-
ama óheppins afgreiðslumanns sem
leikinn er af Martin Short (The Three
Amigos). Já, það er margt sem þeim
dettur í hug í henni Ameríku og hér
birtist enn einn vitnisburðurinn um
að tæknilega er þarlendum kvik-
myndagerðarmönnum ekkert
ómögulegt.
Myndin segir frá afgreiðslumann-
inum Jack Putter (Short) sem er
ráðlagt af lækni sínum að taka sér
nú gott frí til að róa taugarnar. Það
tekst nú frekar illa til með hið lang-
þráða frí því áður en hann veit af er
hann flæktur í furðulegt mál þar sem
blandast hernaðarlegir hagsmunir,
alþjóðanjósnir og tækniundur.
Tuck Pendelton liðþjálfi (Dennis
Quaid) virðist vera búinn að lifa sitt
fegursta. Hann drekkur of mikið og
er í þann veginn að missa frá sér
unnustu sína, Lydiu Maxwell (Meg
Ryan) sem vinnur sem blaðakona.
Hún er orðin þreytt á óábyrgri hegð-
un Tucks og ætlar að yfirgefa hann.
Tuck er orðinn leiöur á hernum svo
að hann gengur til hðs við fyrirtæki
sem fæst við háþróaða hernaðar-
tækni og hann gerist nokkurs konar
tilraunadýr hjá þeim. Með nýjum
aðferðum á að minnka Tuck niður í
nánast ekki neitt og senda hann inn
í einu veruna á rannsóknarstofunni
sem ekki hefur atkvæðisrétt, nefni-
lega næstu tilraunakanínu. En í
miöri tilraun er brotist inn í rann-
sóknarstofuna og stoliö þeim út-
búnaði sem þarf til að Tuck nái aftur
eölilegri stærð. í ringulreiðinni, sem
skapast við innbrotið, er Tuck
sprautað í afturenda Jacks Putter og
eftir það verða þeir tveir að lifa í
nánu sambýli.
Það er stuttur tími til stefnu því
Tuck hefur takmarkaðar súrefnis-
birgðir. Þeir félagar eru æði ólíkir
og finnst Tuck að Jack sé ekki nógu
mikil bógur til að á hann sé treyst-
andi. Því reynir hann að stjórna
athöfnum Jacks og skapar það auð-
vitað oft á tíðum skondna togstreitu.
Unnusta Tucks reynist betri en eng-
inn við lausn málsins.
Þó að nafn Spielbergs sé hér notað
kemur hann nú orðið aðeins nálægt
framkvæmdahliðinni. Það er Joe
Dante sem leikstýrir myndinni en
Spielberg hefur einmitt notaö hann
þannig áður með bara þokkalegum
árangri. Dante leikstýrði Gremlins,
Twilight Zone - The Movie og Ex-
plorers fyrir Spielberg en auk þess á
hann að baki hrollvekjuna The How-
ling.
Dennis Quaid hefur fyrir löngu
vakið á sér athygli fyrir myndir eins
og Breaking Away, The Long Riders,
The Right Stuff og Enemy Mine.
Short, sem er 34 ára gamal Kanada-
búi, á ekki eins langan feril en vakti
fyrst á sér athygli í Saturday Night
Live en þar hafa flestir bestu gaman-
myndaleikarar undanfarinna ára
stigið sín fyrstu spor. Meg Rayan er
ung leikkona á uppleið en hún hefur
sést í Rich and Famous, Armed and
Dangerous og Top Gun.
Þá er vert aö vekja athygli á
myndatökumanninum Andrew Las-
zlo sem hefur komið nálægt athyglis-
verðum myndum eins og The
Warriors, First Blood og Streets of
Fire. Hvað svo sem segja má um
þessar myndir þá var myndatakan
um margt forvitnileg í þeim. -SMJ
Laugarásbíó/Draumalandið
Músafjölskylda á leið til draumalandsins
Jólamyndir Laugarásbíós eru
tvær. Sú fyrri er bandaríska teikni-
myndin An American Tail og er
hér um að ræða mynd sem gefur
góða ástæðu fyrir fjölskylduna til
að fara saman í bíó yfir jólin. Það
er Steven Spielberg sem á mestan
heiðurinn af þesari mynd og fylgir
hann hér í fótspor Walt Disney.
Draumalandið, eins og myndin
heitir á íslensku, er gerð 1987 og
segir frá músafjölskyldu sem á
heima í Sovétríkjunum, nánar til-
tekið í Síberíu. Þar er erfitt að lifa,
sérstaklega fyrir mýs. Erfitt er að
fá nokkum mat og þar að auki eru
mýsnar sjálfar vinsæll matur hjá
köttunum en skelfilegur kattafar-
aldur gengur yfir músabyggðina.
Söguhetjur myndarinnar em
Músavitsfjölskyldan sem ákveður
nú að fara til fyrirheitna landsins,
Ameríku, og losna undan harðræð-
inu. Þar ku heldur ekki vera neinir
kettir. Þetta taldi Músavitspabbi
vera sannkallað draumaland og öll
fjölskyldan heldur af stað í þessa
lönguferð.
Ferðalagið er erfltt en þegar til
Ameríku er komið telur fjölskyld-
an að allir erfiðleikar séu að baki.
Hér spilar Músavitspabbi á fiðlu
fyrir aðra fjölskyldumeðlimi. Þau
eru Fievel, Tanya systir hans og
mamma og litla barnið.
Það reynist nú ekki svo en erfið-
leikarnir em til þess að sigrast á
þeim hugsar Músavits fjölskyldan
og allt endar vel að lokum.
Það ætti að vera óhætt að mæla
með þessari fjölskyldumynd en á
sýningum fyrri hluta dags verður
boðið upp á þaö nýmæh að spilað
verður af tónbandi fyrir yngstu
gestina og er það Hersteinn Pálsson
sem les. Tekur sú lesning um 3
mínútur.
Leikstjóri myndarinnar er Don
Blunth en þar aö auki er það her-
skari teiknara sem á mestan
heiðurinn af verkinu sem þykir
hafa lánast vel.
Stórfótur
Síðari jólamynd Laugarásbíós er
bandaríska gaman og ævintýra-
myndin Big Foot and the Hender-
sons. Er það fyrirtæki Spielbergs
Ambhn Inc. sem framleiðir þessa
mynd líka. Hún segir frá ævintýr-
um Hendersons fjölskyldunnar og
Stórfæti. Stórfótur verður fyrir bíl
fjölskyldunnar þegar hún er á
ferðalagi. Risinn er talinn dauður
og skutlað upp á þak bílsins. En
Stórifótur er síður en svo dauður
og sest upp hjá fjölskyldunni sem
kemst fljótlega að því að það er síð-
ur en svo vandalaust að hafa
þriggja metra háan apa í húsinu.
Leikstjóri er Wilham Dear en al-
alhlutverk eru í höndum John
Lithgow, Melindu DiUon og Don
Ameche.