Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Blaðsíða 20
20
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
Fréttir
menn sína um verð á veiöileyfum
fyrir næsta sumar og kennir það
ýmissa grasa. Þetta eru 17 veiöiár
og vötn sem félagiö býöur upp á.
Birtum við hér verðið á veiöisvæð-
unum, hæst og lægst
Elliöaárnar, 4000, háifur dagur
Leirvoesá. 5800-17.800
Brynjudalsá, 2800-6400
Langá, 5800-12200
Selós i Svínadal, 3000
Þverá 1 Svínadal, 2400
Norðurá, 5900-26.400
Gijúfurá, 4400-10200
Miðá í Dölum, 1400-6400
Miðflarðará, 27.000-29.000. Félagið
hefur viku.
Bianda. 500-13.500
Svartá, 6000-13000
Sogið, 2400-9400
Snæfoksstaðir í Hvitá, 4600-5600
Stóra-Laxá i Hreppum, 1800-7200
KiðjabergíHvítá, 2000-2600
Breiðdalsá, im-4500
-G.Bender
1. janúar nálgast með staðgreiðslu
opinberra gjalda. Það er afar mikilvægt að
allir launamenn og launagreiðendur þekki
rétt sinn og skyldur í hinu nýja kerfi. Menn
eru því hvattir til að kynna sér málið vel og
leita upplýsinga séu þeir í óvissu.
HVAÐ FELSTÍ STAÐGREÐSLU?
í staðgreiðslu eru skattar dregnir af öllum
launum við hverja útborgun. Þar með talið
eru hvers konar greiðslur, hlunnindi og orlof.
Staðgreiðslan tekur yfir alla skatta og gjöld,
sem áður voru álögð á launamenn, nemaeign-
arskatt sem áfram verður innheimtur eftir á.
ÚTREIKNINGUR OGINNHEIMTA
STAÐGREÐSLU
Launagreiðandi annast útreikning stað-
greiðslu starfsmanna sinna, innheimtir hana og
skilar til innheimtumanns mánaðarlega, einnig
af eigin launum. Launamaður getur ekki sjálfur
skilað staðgreiðslu vegna launa frá launagreið-
anda. Sama skatthlutfall, 35.2%, er notað við
afdrátt af öllum launum óháð upphæð þeirra.
Skatturinn er því ekki stighækkandi.
FRÁDRÁTTUR í STAÐGREIÐSLU
Allir launamenn fá árlegan persónu-
afslátt sem dreginn er af staðgreiðslunni. Per-
sónuafslættinum er skipt jafnt á alla mánuði
ársins og er 14.797 krónurfyrir hvem mánuð á
tímabilinu janúar-júní 1988.
Sjómenn og hlutráðnir landmenn fá sér-
stakan sjómannaafslátt 408 krónur á dag
janúar-júrií 1988, sem ekki kemur fram á skatt-
kortinu. Námsmerm fá hærri persónuafslátt
yfirsumarmánuðina.
Vaxtafrádráttur verður afnuminn en til
bráðabirgða verður þó veittur afsláttur til þeirra
er festu kaup á íbúðarhúsnæði eða hófu bygg-
ingu þess til eigin nota 1987 eða fyrr og hefðu
að óbreyttu notið vaxtafrádráttar. Þessi afsláttur
verður veittur í allt að 6 ár, frá og með 1988.
BÆTUR
Bamabætur með hverju bami innan 16
ára aldurs verða greiddar á 3ja mánaða fresti
og skiptast jafnt á milli hjóna (sambýlisfólks).
Húsnæðisbætur eru greiddar þeim sem
kaupir eða hefur byggingu íbúðarhúsnæðis
1988 eða síðar í fyrsta sinn eða til eigin nota
einnig þeim sem keyptu eða byggðu i fyrsta
sinn 1985-1987 ef þeir nutu ekki vaxtafrádrátt-
ar á þeim tíma. Réttur til bótanna varir í 6 ár, frá
og með upphafsári.
■ >
I mlðjum jólalnnkaupunum er gott að slaka aöelns ó og tá sér fs. Þessl
fjölskylda brá á þetta ráð I Krlnglunnl. DV-mynd Brynjar Gautt
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Sófnunin komin á
níundu milljón
„Söfnunin hefur gengið vonum
framar og um helgina höfðu safnast
rúmar 8 milljónir króna,“ sagði Sig-
ríður Guðmundsdóttir, hjá Rjálpar-
stofnun kirkjunnar, í samtali við DV.
Sigríöur sagði að það væri létt að
vinna að þessari söfnun og greinilegt
að það tilheyrði jólaundirbúningi
margra að gefa fé í söfnunina.
Hún sagði aö börnin væru mjög
áhugasöm að safna í baukana sem
búnir voru til sérstaklega fyrir söfn-
unina að þessu sinni. Þau hefðu
mörg farið með þá í kirkjumar á
sunnudögum og safnaö þar.
Ekki er ólíklegt að söfnunin fari
yfir 10 mihjónir króna aö þessu sinni
því Þorláksmessudagur hefur oft
verið besti dagurinn í söfnun til líkn-
armála.
-S.dór
B HHi IgSB
Þessi ungi plltur heitlr Jökull Jóhannsson og er 4ra ára. Hann gaf allt
spariféð sitt I söfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar og hér er hann að af-
henda Sigríði peningana.