Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
63
Fréttir
Um hver jól
setur Flateyr-
arhreppur upp
jólatré í hjarta
þorpsins. Svo
ereinnignúog
var þessi
mynd tekin
þegartréð var
sett upp á dög-
unum.
DV-mynd
Reynir
Hin áttræða kempa, Stefán Islandi, stendur í ströngu þessa dagana. llt eru komnar plötur með
öllum lögum sem Stefán hefur sungið inn á plötur. Myndin var tekin er hann áritaði plöturnar
í versluninni Takti. DV-mynd KAE
Þoiiáks-
messu-
ganga
Þorláksmessuganga veröur gengin
í dag, Þorláksmessu. Þetta er flmmta
Þorláksmessugangan. Aö göngunni
standa Friðarhópur fóstra, Friðar-
hreyfing íslenskra kvenna, Friöar-
samtök listamanna, Menningar- og
friöarsamtök íslenskra kvenna,
Samtök íslenskra eölisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtök lækna gegn
kjarnorkuvá og Samtök um kjarn-
orkuvopnalaust ísland.
Aö venju verður gengið frá
Hlemmtorgi og niður Laugaveg.
Safnast verður saman á Hlemmi kl.
17.45 og kyndlar tendraðir. Gangan
leggur af stað kl. 18.00. Þrír kórar
verða með í fór. Barnakór Kársnes-
skóla, Hamrahlíðarkórinn og Há-
skólakórinn. Göngunni lýkur í
Bakarabrekkunni með stuttu ávarpi
og söng.
Söfnun
vegna
brunans
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Kennarar við Menntaskólann á
Akureyri hafa gengist fyrir stofnun
söfnunarreiknings fyrir fjölskylduna
að Kringlumýri 4, sem missti allt sitt
í eldsvoða í fyrradag. Þar bmnnu
jjmi allar eigur sjö manna tjölskyldu
eins og fram kom í DV í gær. Skorað
er á'fólk að bregðast vel við og veita
liðsinni og skulu framlög leggjast inn
á ávísanareikning nr. 24280 í aðalúti-
búi Landsbankans á Akureyri.
tCENWOOD
ÞAÐ VEROUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN
Dj úpsteikingarpottur
FYRSTA FLOKKS
HEIMILISTÆKI
IrOTT VERP-GÓP KJÖR -GÓP ÞJÓNUSTA
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
Blandari
Laugavegi 170-172 Simi 695500
Brauðrist, hraðsuðuketill Samloku-
brauðrist
Hraðsuðukanna
Brauðrist
Dósaopnari
Raíinagns-
steikarpanna
Straujárn
Rafmagnshnífur
Með ósk um gæfu
og góðar ferðir á komandi ári
og þökk fyrir samleiðina
á liðnum árum.
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Ps. Hlýðið á ljúfa jóladagskrá Flugleiða á Ljósvakanum aðfangadag.