Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Blaðsíða 28
28
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
íþróttir
Sænska landsliðið,
tennis sigraði á dögunum í Davis Cup keppninni en
sænska liðið sigraði lið Indlands í úrslitum. Á myndinni hér að ofan sést Mats Wilander i háloftunum er félagar hans
■ í sænska liðinu „tolleruðu" hann eftir sigurinn. Símamynd/Reuter
Evans setti heimsmet
- Mjög góður árangur á bandaríska meistaramótinu í sundi
Opna bandaríska meistaramótið í
sundi fór fram nýverið í Orlando.
Mjög góður árangur náðist í mörgum
greinum enda var saman komið á
mót þetta margt af fremsta sundfólki
í heiminum. Eitt heimsmet leit dags-
ins ljós á mótinu. Það setti Janet
Evans, Bandaríkjunum, í 400 metra
skriðsundi. Hún synti vegalengdina
á 4:05,45 mín.
• Árangur í einstöku greinum
varð þessi en keppt var í 50 metra
laug: Krisztina Egerszegi, Ungverja-
landi, sigraði í 200 metra baksundi
kvenna á tímanum 2:11,86. í 50 metra
skriðsundi kvenna sigraði Tamara
Costache, Rúmeníu, á 25,68 sekúnd-
um. í 100 metra bringusundi kvenna
sigraði Tracey McFarlane, Kanada,
á tímanum 1:11,19. í 200 metra fjór-
sundi kvenna sigraði Michelle
Griglione, USA, á tímanum 2:16,19.
• í 400 metra skriðsundi karla
sigraði Matt Cetlinski, USA, á tíman-
um 3:49,95 en annar var Anders
Holmertz,. Svíþjóð, á 3:50,03. í 100
metra bringusundi karla sigraði Ric-
hard Schroeder, USA, 1:02,66. í 200
metra baksundi karla sigraði Dan
Veatch, USA, á 2:02,22. Þess má geta
að Norðurlandamet Eðvarðs Þórs
Eðvarðssonar er 2:02,79 og hefði sá
tími nægt honum í annað sætið á
þessu sterka móti. í 200 metra fjór-
sundi karla sigraði David Wharton,
USA, á 2:02,52 og í 50 metra skrið-
sundi karla sigraði Tom Williams,
USA, á 22,73 sekúndum.
JKS
Tékkamir
sigruðu
Tékkneska landsliðið í
knattspyrnu sigraði á alþjóð-
legu knattspyrnumóti sem
lauk í Kuala Lumpur um
helgina. Tékkar sigruðu Suð-
ur-Kóreu í úrslitaleik á
mótinu með þremur mörkum
gegn tveimur. Þetta var í 31.
skipti sem mót þetta er hald-
ið.
• Fyrstu verðlaun á mót-,
inu sem féllu Tékkum í skaut
numu um 1,5 milljónum ís-
lenskra króna. Bæði hðin er
farin að undirbúa sig fyrir
ólympíuleikana. Mikil pressa
var á S-Kóreumönnum undir
lok leiksins og skall þá oft
hurð nærri hælum upp við
tékkneska markið. JKS
Þriðja
stiga-
mót BSÍ
Stigamót Billiardsambands
íslands, það þriðja í röðinni,
fer fram um næstu helgi og
hefst laugardaginn 26. des-
ember.
Leikið verður á Billiard-
stofu Hafnarfjarðar og má
búast við miklum íjölda kepp-
enda og skemmtilegri og
tvísýnni keppni því reiknað
er með því að allir bestu bill-
iardleikarar landsins verði á
meðal keppenda.
• lan Rush misnotar dauðafæri í leik Juveptus gegn Sampdoria sem lykt-
aði með jafntefli, 1-1. Símamynd/Reuter
Napoli er efst
og taplaust
- í ftölsku knattspymunni
Napoli heldur sigurgöngu sinni
áfrám í 1. deild ítölsku knattspym-
unnar. Á sunnudag sigraði liðið
Verona, 4-1, á heimavelli. Milan, sem
verið hefur í öðru sæti í mestallan
vetur, sigraði nágranna sína, Inter
Milan, 0-1, á útivelli. Úrslit í öðrum
leikjum urðu þessi:
Ascoli-Fiorentina............3-0
Como-Torino..................0-0
Empoli-Cesena................2-2
Juventus-Sampdoria...........1-1
Pisa-Avellino................0-0
Roma-Pescara............. .5-1
• Að loknum 12 umferðum er Na-
poli efst með 21 stig og hefur ekki
tapað leik til þessa í deildinni. í öðru
sæti er Milan með 18 stig og Samp-
doria er í þriðja sæti með 17 stig.
JKS
Mót í ólympískum lyftingum
Sunnudaginn 27. desember klukk-
an fimm fer fram í íþróttahúsi
Vörðuskóla Reykjavíkurmeistara-
mót í ólympiskum lyftingum, snörun
og jafnhöttun. Meðal keppenda á
mótinu verður Guðmundur Helga-
son, KR, sem kominn er til landsins
frá námi í Bandaríkjunum gagngert
til að reyna við lágmörk fyrir OL í
Seoul á næsta ári. Líklegt er því aö
íslandsmet falli á mótinu.
Frétta-
stúfar
Arnór áritar bók sína í
dagí Pennanum
• Arnór Guðjohnsen, at-
vinnumaður í knattspymu hjá
belgíska stórliðinu Anderlecht,
er kominn til landsins í jólafrí.
Sem kunnugt er hefur verið
gefin út bók um kappann og í
dag á milli klukkan eitt og þrjú
mun Amór verða í Pennanum
við Hallarmúla og árita bókina.
Þar verður einnig sýnt mynd-
band af mörgum glæsilegustu
mörkum atvinnumannsins.
íslandsmet í sundi á
unglingamóti KR
• Nokkur íslandsmet vom
sett á unghngamóti KR í sundi
sem fram fór á dögunum í
Sundhöll Reykjavíkur.
Gunnar Ársælsson, ÍA, setti
drengjamet í 50 metra flug-
sundi, 29,2 sek., og 100 metra
flugsundi sem hann synti á
1.03,2 mín. Félagi hans í ÍA,
ÁrsæU Þór Bjamason setti
drengjamet í 50 metra bak-
sundi, 30,5 sek., og 50 metra
skriðsundi sem hann synti á
26,0 sek. Þá setti phtasvéit ÍA
íslandsmet í 4x50 metra bringu-
sundi og fékk tímann 2.20,8 mín.
Hlynur Auðunsson, UMSB,
setti sveinamet í 50 metra skrið-
sundi, 29,6 sek., og 100 metra
skriðsundi sem hann synti á
1.4,10 mín. Auk ofangreindra
meta setti sveit KR fjögur boð-
sundsmet í hnátuflokki.
Hannes Guðmundson
endurkjörinn formaður
• Hannes Guðmundsspn var
endurkosinn formaður Golf-
klúbbs Reykjavíkur á aðalfundi
klúbbsins sem fram fór á dög-
unum. Með honum í stjórn era
Garöar Eyland, varaformaður,
Guðmundur Bjarnason, ritari,
Rósmundur Jónsson, gjaldkeri,
Eyjólfur Jónsson, meðstjóm-
andi, Ólafur Jónsson, meö-
stjórnandi og Geir Svansson,
meðstjórnandi. í varastjórn
hlutu kosningu þau Jóhanna
Ingólfsdóttir, Bjarni Ragnars-
son og Hahgrímur Ragnarsson.
Björgúlfur Lúðvíksson verður
áfram framkvæmdastjóri
klúbbsins.
Landsliðiðtil Lúxemborg-
ar á annan í jólum
• A-landshð kvenna í körfu-
knattleik fer í æfmgaferð til
Lúxemborgar 26. desember.
Leiknir verða þrír leikir, tveir
gegn landshði Lúxemborgar og
einn gegn sterku félagshði. Ferð
þessi er hður í undirbúningi
fyrir mót smáþjóða sem fram
fer í Lúxemborg 1989. Eftirtald-
ar stúlkur keppa fyrir íslands
hönd: Anna María Sveinsdóttir,
ÍBK, Anna Björg Bjamadóttir,
ÍS, Marta Guðmundsdóttir,
Svanhildur Káradóttir, UMFG,
Auður Rafnsdóttir, ÍBK, Helga
Friðriksdóttir, ÍS, Þórann
Magnúsdóttir, UMFN, Þóra
Gunnarsdóttir, ÍR, Herdís
Gunnarsdóttir, Haukum, 'og
Sólveig Pálsdóttir, Haukum.
Þjálfari liðsins er Sigurður
Hjörleifsson.
Ungverjar keppa i Seoul
• Ungverjar hafa ákveðið aö
taka þátt í næstu ólympíuleik-
um sem fara sem kunnugt er
fram í Suður-Kóreu í september
á næsta ári.
Suður-Kóreumenn voru
sigurvissir
• Einn af forráðamönnum
suður-kóreska landshðsins í
handknattleik, sem dvahð hef-
ur hér á landi síðustu daga, lét
hafa eftir sér fyrir leikina gegn
íslandi að sínir menn myndu
vinna auðvelda sigra. Hver
ástæðan er fyrir þessum um-
mælum veit hklega enginn.
Þeir skaeygðu voru betri
- Hnrfjöfn niðurstaða úr landsleikjunum tveimur gegn Suður-Kóreu. Fimm marka tap í gærkvöldi, 28-33
Lið íslands og Suður-Kóreu skhdu hnííjöfn úr landsleikjunum tveimur í
handknattleik. Suður-Kóreumenn sigruðu í gærkvöldi með fimm marka mun
eins og íslenska hðið í fyrri leik þjóðanna. Lokatölur í gærkvöldi 28-33 eftir
að staðan í leikhléi hafði verið 13-16, Kóreu í vil. íslenska liöinu tókst sem
sagt ekki ennþá að sýna tvo góða leiki í röö og þetta eilífa vandamál er enn
til staðar. Kóreumenn fóru oft á kostum í Hölhnni í gærkvöldi og mörg
marka þeirra vora sérlega glæsileg. Sigur þeirra skáeygðu var mjög öruggur
og sanngjam og íslenska liðið náði aldrei yfirhöndinni í leiknum.
Mestur munur í fyrri hálfleik var sjö
mörk og um tím, þegar staðan var 5-12
var mönnum ekki farið að lítast á blik-
una. Okkar menn réttu þó úr kútnum
og í leikhléi munaði þremur mörkum,
13-16.
• í upphafi síðari hálfleiks virtist
íslenska liðið vera að taka við sér, Siog-
urður Gunnarssc.n skoraði 14. mark
íslands og Guðmmdur Hrafnkelsson
varði vítakast. En leikm: íslenska liðs-
ins hrökk ekki saman og Kóreumenn
náðu aftur öraggu forskoti sem engin
leið var að minnka.
Fyrst og fremst hörmulegur
varnarleikur
Aðalástæðan fyrir þessu slæma tapi
var sú að íslenska hðið lék ekki vöm
í gærkvöldi. Leikmenn virtist skorta
einbeitingu og kraft og ef til vih spila
gífurlega erfiðar æfingar að undanf-
örnu hér inn í. Leikmenn íslenska
hðsins, og þá eru þeir sterkustií ekki
undanskildir, gerðu mikið af slæmum
mistökum.
Málið að vinna réttu leikina
Það er engin ástæða til að leggjat í
þunglyndi þótt leikurinn í gærkvöldi
hafi tapast. Nú er stefnt að toppárangri'
á stórmótinu í Svíþjóð í janúar og við
það mót hefur undirbúningur lands-
hðsins undanfarnar vikur miðast.
Auðvitað hefði verið skemmtilegra að
sigra Kóreumennina í báðum leikjun-
um en meðan að á erfíðu æfmgatíma-
bih stendur má búast við alls kyns
úrshtum.
Réttindalaus dómari
Norskir-dómarar dæmdu leikinn í
gærkvöldi og voru skrautlegir svo ekki
sé meira sagt. Og annar þeirra haföi
ekki réttindi til að dæma landsleiki.
Flest öll vafaatriði vora dæmd Kóreu-
mönnum í hag og raunar kom það ekki
svo mikið á óvart þar sem Norðmenn
áttu í hlut. Þeir hafa alltaf litið okkur
hornauga og öfundin vegna glæsilegrar
frammistöðu okkar manna á meðan
norska landshðið hefur ekkert getað
aUtaf skinið í gegnum allar þeirra gerð-
ir á íþróttasviðinu, hvort sem átt er við
,Ég er mjög ánægður, bæöi meö minn
hlut og einnig leik kóreska liðsins i
heild sinni,“ sagði Joe-Won Kang, ein
skærasta stjarnan í handknattleUcs-
heiminum í dag.
„í gær töpuöum við fyrir íslandi en
í kvöld réttum við okkar hlut. Þjóðirn-
ar standa nú jafnar eftir leikina tvo,
bæði hvað varðar sigrana og mörkin."
- Hvað finnst þér um íslenska liðið?
„Það er óneitanlega sterkt og miklu
betra nú en þegar það lék heima í
Kóreu fyrr á þessu ári. íslensku leik-
mennimir eru bæði fljótari núna og
sneggri í öUu því sem þeir taka sér fyr-
ir hendur.
- Nú er hver leikur ykkar liður í
dómara eða niðurröðun leikja í þeirra
heimalandi. Þó veröur tapið í gær-
kvöldi ekki rakið eingöngu til dómar-
anna og vissulega hafði hundléleg
dómgæsla þeirra ekki úrslitaáhrif. ís-
lensku leikmennirnir gerðu því miður
enn fleiri mistök en þeir norsku.
undirbúningi fyrir ólympíuleikana á
næsta ári. Hverja telurðu möguleika
ykkar í þeirri keppni?
„Gull... Ég er sannfærður um að S-
Kórea vinnur gull á ólympíuleikunum.
Sigurður Gunnarsson:
„Leikurinn einkenndist öðru fremur
af mistökum af okkur hálfu. Vörnin
var mjög léleg í þessum leik enda áttum
viö í vandræðum með þá. Þetta var
bara slæmur dagur hjá íslenska Uðinu,
einn af þeim sem fylgir oft í kjölfar
góðra leikja. í sjálfu sér er engin ein-
hlít skýring á þessum ósigri. Við áttum
bara allir slæman dag hvað sem veldur.
-JÖG
Valdimar og Guðmundur bestir
í íslenska liðinu bar mest á Valdimar
Grímssyni sem skoraði 8 falleg mörk
og hefur vart leikið betri landsleik.
Einnig varði Guðmundur Hrafnkels-
son vel í síðari hálfleik eða 9 skot, þar
af eitt víti. Einar Þorvarðarson varði
markið í fyrri hálfleik og varði þá 7
skot og eitt víti. Þá átti Sigurður Gunn-
arsson þokkalegan leik en aðrir
brugðust.
Mörk íslands: Valdimar Grímsson 8,
Sigurður Gunnarsson 5, Þorgils Óttar
4, Kristján Arason 4/1, Jakob Sigurðs-
son 2, Karl Þráinsson 1, Ath Hilmars-
son 1, Geir Sveinsson 1, Guðmundur
Guðmundsson 1 og Júlíus Jónasson 1.
• Hjá Kóreumönnum var Kang
markahæstur með 10 mörk, Li fyrirhði
skoraði 8 og Kim 6 en aðrir minna.
• Einn maður úr hvoru hði var rek-
inn út af í tvær mínútur.
-SK
íþróttamaður ársins 1987
Nafn íþróttamanns:
íþróttagrein:
1.
2.
3.
4.
5.
Nafn:
§ími:
Heimilisfang:_
Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverholti 11-105 Reykjavík.
„Við vinnum gullverðlaun
á ólympíuleikunum í SeouF
- sagði Joe-Won Kang, skærasta sljama S-Kóreu