Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1987, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1987.
Fréttir
Valgarður Jónsson heldur hér á einum hnullungnum sem spýttist í gegnum
dúkinn á skemmunni við sprenginguna.
DV-myndir gk
Bókalisti DV1987:
„Get ekki kvartað
yfir undirtektunum“
„Ég get vissulega ekki kvartað yfir
undirtektunum sem bók mín núna
hlýtur," sagði Eðvarð Ingólfsson en-
bók hans, Pottþéttm- vinur, hafnar í.
4. sæti DV-listans eftir að hafa verið
á stöðugri uppleið síðustu tvær vik-
ur.
„Þaö er vissulega hvetjandi fyrir
mig að halda áfram á sömu braut á
meðan bækur mína fá þennan hljóm-
grunn,“sagði Eðvarð. Bækur Eð-
varðs hafa ávallt náð mikilli sölu en
þetta var hans níunda bók sem eru
ótrúleg afköst hjá ekki eldri manni.
Hann gaf, sem kunnugt er, sína
fyrstu bók út þegar hann var 19 ára.
En'þrátt fyrir mikla sölu hefur
Eðvarð ávallt verið umdeildur meðal
Eðvarð Ingólfsson er kominn í 4.
sœti bókalista DV með bók sina
Pottþéttur vinur. DV-mynd KAE
gagnrýnenda. Því lá beint við að
spyrja hann hvaða áhrif gagnrýni
hefði á hann. „Ég tek alltaf tillit til
gagnrýni ef hún er vinsamleg og ég
hef nær eingöngu fengiö góða gagn-
rýni á þessa bók mína. Hins vegar
tek ég ekkert mark á skítkasti eins
og til dæmis mátti sjá í Þjóðviljanum
um daginn. Mér finnst ég bara vaxa
við skítkast eins og það að ætla mér
að ég sé að eyðileggja lestrarþekk-
ingu íslenskra unglinga. Ég spyr þá
bara: Er ég sterkari en íslenska
skólakerfið? Eðvarö taldi einnig að
sumir gagnrýnendur htu ungl-
ingabækur allt of alvarlegum augum
og horfðu til dæmis algerlega fram-
hjá afþreyingargildi þessara bóka.
En ætlar hann aö skrifa fyrir aðra
aldurshópa í framtíöinni?
„Rithöfundur má aldrei útiloka
neitt. Ég gæti vel hugsað mér að fitla
við leikritagerð eða alvarlegri skáld-
sögin' en það má segja að ég hafi
ekki ráðið ferðinni að öhu leyti. Það
er erfitt aö kúpla sig frá unglingasög-
unum.“
Það fær enginn hnikað Höhu Link-
er úr fyrsta sætinu en hún hefur
verið þar síðustu þijár vikumar -
stefnir greinilega í metsölu þar.
Guðrún Helgadóttir er ennþá í 3.
sæti en Gorbatsjov fikrar sig niöur
listann. í 10. sæti er bók HaUdórs
Laxness, Dagar hjá múnkum, og hef-
ur að sögn tekið mikinn kipp síðustu
dagana. SMJ
Mikið tjón
í sprengingu
á Akureyri
Klappirnar sem verið var að sprengja þegar óhappið varð.
Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyii
Hús nötruðu í Glerárhverfi á Akur-
eyri í gær og rafmagn fór af stórum
hluta hverfisins þegar unnið var við
sprengingar í klöppunum fyrir ofan
fiskimjölsverksmiðjuna í Krossa-
nesi. Starfsmenn frá Norðurverki hf.
vom þar að vinna við sprengingar
og eitthvað fór úrskeiöis með þeim
afleiðingum aö mikið tjón hlaust af.
„Þetta er ljótt og ég fæ ekki betur
séð en að báðar vöraskemmur okkar
séu ónýtar,“ sagði Pétur Bjarnason,
markaðsstjóri hjá ístess hf. í Krossa-
nesi. Þar hefur aö undanfomu verið
unnið við að reisa tvær stórar vöra-
skemmur sem era byggðar úr
jámgrindum og þykkur plastdúkur
klæddur yfir. Fjöldi manna var að
vinna í skemmimum í gær en mesta
mildi var að menn vora í mat þegar
sprengingin varð.
„Ég var að stafla fóðri í annarri
verksmiðjunni og á nákvæmlega
þeim stáð sem ég hafði verið að vinna
fyrir hádegi kom grjót, aUt að 40-50
kílógrömm að þyngd, í gegn, beyglaði
grindina og reif dúkinn. Ef ég hefði
verið kominn úr mat þegar þetta átti
sér staö væri ég dauður núna,“ sagöi
Valgarður Jónsson, starfsmaður hjá
ístess.
Ljóst er að gífurlegur kraftur hefur
verið í sprengingunni, en um 200
metrar era frá þeim stað þar sem hún
varð og að vöraskemmunum. Víöa
vora þykkar jámgrindur brotnar og
beyglaðar og dúkurinn, sem skemm-
urnar vora klæddar með, er víða eins
og gatasigti á aö Uta.
Pétur Bjarnason hjá ístess sagði að
tjónið væri mikið. Um eina og hálfa
milljón króna hefði kostað að reisa
hvora skemmu og nú væru þær ónýt-
ar. Helst var að heyra á mönnum að
reynt yrði að selja fyrir götin á dúkn-
um til bráðabirgða, en ljóst er að
skipta þarf um dúkinn auk þess sem
fyrirsjáanlega verður mikil vinna við
að laga jámgrindumar.
Starfsmenn Norðurverks sögðu við
DV í gær að ekki hefði veriö notað
meira sprengiefni en venjan er en á
staðnmn, þar sem sprengt var í gær,
hefur mikið af klöppum verið
sprengt að imdanfömu. Þeir sögðu
að svo virtist sem klöppin hefði verið
lausari í sér á einum staðnum og
þaöan hefðigrjótið, sem lenti á vöra-
skemmum ístess, spýst út.
Útvegsbankamótið:
Allir þeir
bestu með
Jólahraðskákmót Útvegsbankans
verður haldiö í afgreiöslusal aðal-
bankans sunnudaginn 27. desember.
Mótið hefst klukkan 14 og meðal þátt-
takenda verða íslensku stórmeistar-
amir svo og Hannes Hlífar,
heimsmeistari sveina, og Héðinn
Steingrímsson, heimsmeistari bama.
Alls verða keppendur átján og tefla
allir við alla, samtals 17 umferðir.
Vegleg verðlaun verða í boði.
-ATA
Menntamálaráð:
Einar Laxness
framkvæmda-
stjóri
Einar Laxness cand. mag. hefur
Verið ráöinn framkvæmdastjóri
Menntamálaráös og Bókaútgáfu
Menningarsjóðs. Fjórtán umsækj-
endur vora um starfið en Mennta-
málaráð mælti samhljóða með
ráðningu Einars.
Einar hefur haft kennslu að aöal-
starfi frá árinu 1961 en hann hefur
stundað ritstörf og gefið út nokkur
framsamin verk auk þess sem hann
hefur annast ritstjóm ýmissa verka.
Þá hefur Einar átt sæti í Mennta-
málaráði um árabil.
-ATA
Minna keypt
af rjúpu
Minna ér keypt af rjúpu fyrir
þessi jól en áöur, aö sögn Sigurðar
Gunnarssonar, verslunarstjóra í
Hólagarði, en sú verslun hefur ætið
selt mikiö af ijúpum. Verðið fyrir
rjúpuna til neytenda er í kringum
300,krónur og hafa veiðimenn feng-
ið um 250 krónur í sinn hlut. Þeir
vildu hins vegar fá 300 krónur fyrir
rjúpuna en kaupmenn neituöu að
greiða það verð og sögðu markað-
inn ekki þola það verð.
„Viö erum búnir að kaupa um 4
þúsund rjúpur fyrir þessi jól en
höfum aðeins seit um eitt þúsund.
í fyrra seldum viö 2 þúsund ijúpur
fyrir jólin og áttum ekki eina ein-
ustu að morgni Þorláksraessu-
dags,“ segir Sigurður.
Hann segir að fleiri kaupmenn
hafi sömu sögu aö segja um minni
ijúpnasölu. „Þaö er hins vegar
greinileg aukning í sölu á svína-
hamborgarhryggjum og þeir era
greinilega jólamaturinn á aðfanga-
dagskvöld." -JGH
Listi DV yfir 10 söluhæstu
bækurnar síðstu viku
1. Uppyjör konu
2. Helsprengjan
3. Sænginni yfir minni
4. Pottþéttur vinur
5. Ásta grasalæknir
6. Ný hugsun, ný von
7. Á besta aldri Jóhanna
8. Skuldaskil
9. Skrifað i skýin III
10. Dagar hjá múnkum
Halla Linker
Alistair MacLean
Guðrún Helgadóttir
Eðvarð Ingólfsson
Atli Magnússon
Mikail Gorbatsjov
Sveinsdóttir og Þuríður Pálsdóttir
Hammond Innes
Jóhannes Snorrason
Halldór Laxness