Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988.
Fréttir
Miðstjóm Alþýðusambands íslands:
Alþýðubandalagsmenn urðu
undir og eru einangraðir
- fundur með verkalýðsforingjum og þingmönnum Alþýðubandalagsins í gær
I gærkvöldi voru alþýöubanda-
lagsmenn í miöstjórn Alþýöusam-
bands íslands ásamt öðrum flokks-
mönnum í launþegahreyfmgunni
kallaðir til fundar við þirigflokk og
forystu Alþýðubandalagsins.
Ástæðan var sú að alþýðubanda-
lagsmenn urðu undir í miðstjórn
Alþýðusambandsins þegar þar var
tekin ákvörðun um afstöðuna til
tilboðs ríkisstjórnarinnar um sam-
starf um niðurfærslu.
Alþýðubandalagsmenn, undir
forystu Asmundar Stefánssonar,
vildu hafna tilboðinu. Þeir voru
hins vegar hafðir undir af öðrum
miðstjórnarfulltrúum sem annað-
hvort kusu heldur niðurfærsluleið-
ina en gengisfellingu eða töldu Al-
þýðusambandið ekki hafa efni á
öðru en taka tilboði ríkisstjórnar-
innar um samstarf. Alþýðubanda-
lagsmenn einangruðust á fundin-
um.
„Það er auðséð að ríkisstjórnin
hefur menn innan miðstjórnarinn-
ar sem vinna fyrir hana. Okkar
menn höfðu hins vegar allir lýst
því ytlr opinberlega að þeir væru
andsnúnir þessari leið. Á fundin-
um í kvöld munum við ráðfæra
okkur um hvernig staðið verður
aö áframhaldandi baráttu flokks-
ins gegn kjaraskerðingaráformum
ríkisstjórnarinnar,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Al-
þýðubandalagsins, í gærkvöldi.
Á fundi miðstjórnar Alþýðusam-
bandsins með formönnum stjórn-
arflokkanna í gær kom einangrun
alþýðubandalagsmanna skýrlega í
ljós. „Það var talað yfir þá,“ eins
og einn heimildarmanna DV orðaði
þaö.
Með þessum klofningi innan mið-
stjórnar Alþýðusambandsins koma
í fyrsta skipti brestir í samkomulag
sem gert var seint á síðasta áratug
og leiddi til þess að Ásmundur Stef-
ánsson var kjörinn forseti og Björn
Þórhallssori varaforseti.
Tilboð ríkisstjórnarinnar, sem
miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands samþykkti í gærmorgun, fól
í sér afnám 2,5 prósent launahækk-
unar 1. september, verðstöðvun
sem yrði afturvirk frá 10. ágúst og
lækkun nafnvaxta um 10 til 12 pró-
sent. Miðstjórnin samþykkti einnig
þátttöku í verðlagseftirliti stjóm-
valda'*
-gse
Kvennalistakonur attienda forsætisráðherra kökukefli i gær.
DV-mynd KAE
Kvennalistinn:
lög til að hækka
laun en ekki lækka
Kvennalistakonur vilja beita lög-
um til að hækka laun en ekki lækka,
og hækka skattleysismörk til sam-
ræmis. Þær vilja afnema matarskatt
og frysta verðlag. Þá vilja þær koma
á 6 stunda vinnudegi.
Þetta kom fram í tillögum sem
kvennalistakonur færðu Þorsteini
Pálssyni forsætisráðherra í gær
ásamt kökukefli til áréttingar.
I tuttugu liða tillögum Kvennalist-
ans kemur fram að hann vill lækka
vexti niður í 3 prósent, uppræta
„gráa markaðinn", stöðva hömlu-
laust innstreymi erlends fjármagns,
einfalda bankakerfið og draga úr
yfirbyggingu, afnema lánskjaravísi-
tölu og taka upp launavísitölu, herða
upplýsingaskyldu banka, hætta póli-
tískri skipan bankaráða og skatt-
leggja fjármagnstekjur.
Kvennalistinn vill að kannað verði
hvernig standi á misjafnri afkomu
sams konar fyrirtækja, athuga eign-
araðild erlendra aðila að íslenskum
fyrirtækjum og gera strangar kröfur
um aðhald, spamað og endurskipu-
lagningu fyrirtæltja.
Kvennalistinn vill takmarka inn-
flutning til samræmis við þær tak-
markanir sem gilda í sjávarútvegi
og landbúnaði, styðja íslenskan iðn-
að og setja reglur um nýtingu’tnn-
lendra hráefna og einnota umbúða.
Kvennalistinn vill fjölga skatt-
þrepum og stórbæta innheimtu og
eftirlit, afnema matarskatt og hætta
við hégómlegar framkvæmdir eins
og ráðhús, þinghús, hringsólandi
veitingasali og hallir. Kvennalistinn
vill einnig stöðva lánveitingar til
hótela, verslanahalla og annarra
óarðbærra fjárfestinga.
Þá vill Kvennalistinn hækka laun
með lögum, hækka skattleysismörk
og minnka launabil þar fyrir ofan.
Hann vill koma á 6 stunda vinnudegi.
-gse
Enn stækkar gatið í fjáriögum næsta árs
Forsætisráöuneytið ekki búið að skila áætiun um fjárþörf
Á fyrri fundi ríkisstjómarinnar í
gær lagði Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra fram ný drög að
fjárlögum með tæplega 4 milljarða
gati.
í þessum drögum em óskir fag-
ráðuneytanna, sem fengið hafa náð
fyrir augum fjármálaráðuneytisins,
settar inn í uppreiknuð fjárlög þessa
árs. Þessar óskir stækkuðu gatið um
rúmlega 1 milljarö.
Eitt ráðuneytanna hefur enn ekki
skilað áætlun fyrir næsta ár. Það er
foraetisráðuneyti Þorsteins Pálsson-
ar. í drögunum er því hlutur þess
einungis uppreiknaður frá fjárlögum
þessa árs.
Samstarfshópar fagráðuneytanna
og fjármálaráðuneytisins vinna nú
að því að skera niður útgjöld. Hópur-
inn, sem fjallaði um heilbrigðis- og
tryggingamál, hefur skilað af sér en
enn hafa niöurstöður hans ekki verið
reiknaðar.
Niðurskurðarhópur, sem í eiga
sæti Vilhjálmur Egilsson, Jón Magn-
ússon, Björn Friðfmnsson, Þórðm-
Ingvi Guðmundsson og Þröstur Ól-
afsson, hefur enn ekki lokið við end-
anlegar tillögur sínar. -gse
Þorsteinn Pálsson:
Sættist á niðurtalningu á
miðnastti á fimmtudag
- Hörð skoðanaskipti á miðstjómarfundinum
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
samþykkti á fundi sínum í gær að
veita ráðherrum flokksins fullt um-
boð til þess að vinna að niðurfærslu-
leiðinni að höfðu samráði við verka-
lýöshreyfinguna. Með þessa sam-
þykkt fór Þorsteinn Pálsson á ríkis-
stjórnarfund í gærkvöldi þar sem
gengið var frá bráðabirgðalögum um
afnám 2,5 prósenta launahækkunar
og afturvirka verðstöðvun. Einnig
var gengið frá bréfi til stjórnar Seðla-
bankans um lækkun nafnvaxta.
Það varð ekki ljóst fyrr en á mið-
nætti á föstudag hver afstaða Þor-
steins Pálssonar til niðurfærsluleið-
arinnar var. Þá fyrst fengu sam-
starfsflokkar hans í fíkisstjórn vissu
fyrir því að hann væri tilbúinn aö
reyna þessa leið. Á tveimur ríkis-
stjórnarfundum haíði hann ekki tek-
ið einarða afstöðu. En um miðnættið
á fimmtudag, eftir fund Þorsteins
meö áhrifamönnum innan Sjálfstæð-
isflokksins á fimmtudagskvöldið,
kom í ljós að sjálfstæðismenn voru
tilbúnir að freista þess að ná sam-
komulagi um niðurfærsluna.
Þrátt fyrir að afstaða formannsins
væri ljós urðu hörð skoðanaskipti á
tveggja og hálfrar klukkustundar
miðstjórnarfundi Sjálfstæðisflokks-
ins í gær. Á honum fékk Þorsteinn
Eyjólfur Konráð Jónsson og Þor-
steinn Pálsson hlæja að einhverju
með Halldóri Blöndal áður en mið-
stjórnarfundur Sjálfstæðisflokksins
hófst i gær. Kjartan Gunnarsson
fylgist með.
DV-mynd KEA
umboð til að vinna að útfærslu nið-
urfærslunnar.
-gse
Félag íslenskra iðnrekenda:
7 til 8 milljarða
viðskiptahalli 1989
í þjóðhagsspá Félags íslenskra iðn-
rekenda er gert ráð fyrir viöskipta-
halla sem jafngildir 3 prósentum af
landsframleiðslu. Miðað við verðlag
í dag samsvarar það um 7 til 8 millj-
örðum króna.
Ólafur Davíðsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, sem vann spána, ger-
ir ráð fyrir um 2 prósent samdrætti
í landsframleiðslu, 1,0 prósent sam-
drætti í útflutningi og 5,0 prósent
samdrætti í innflutningi.
Ólafur spáir 4 prósent meiri einka-
neyslu á næsta ári, að samneyslan
standi í stað en fjárfestingar dragist
saman um 5,2 prósent. í spánni er
gert ráð fyrir að atvinnuvegirnir
dragi saman um 10 prósent í fjárfest-
ingu en einstaklingar og hið opinbera
fjárfesti jafnmikið og í ár.
Þjóöhagsspá Félags íslenskra iðn-
rekenda fyrir yfirstandandi ár er
nokkuð „svartari" en spá Þjóðhags-
stofnunar sem birt var í síðasta mán-
uði.
Iðnrekendur gera ráð fyrir 1 pró-
sent samdrætti landsframleiðslu en
Þjóðhagsstofnun spáir hins vegar 0,2
prósent aukningu. Þjóðhagsstofnun
gerir ráð fyrir 0,3 prósent aukningu
í útflutningi en iðrekendur spá 0,5
prósent samdrætti. Iðnrekendur spá
1,0 prósent samdrætti í einkaneyslu
en Þjóðhagsstofnun spáir henni
óbreyttri. Þá spá iðnrekendur ívið
meiri viðskiptahalla eða 4,5 prósent
af landsframleiðslu á móti 4,3 pró-
sentum hjá Þjóðhagsstofnun.
-gse