Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Side 4
4 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988. Fréttir Útflutningstaktnarkanir á ferskfiski: Fimm manna nefndin sprakk í gærdag fulltrúi LÍU gekk af fundi í gær sprakk samstarf helstu hagsmunaaðila sjávarútvegsins um takmarkanir á útflutningi á ferskfiski. Síðdegis í gær gekk full- trúi Landssambands íslenskra út- vegsmanna út af vikulegum fundi fimm manna nefndarinnar sem veitir útflutningsleyfm. Þetta gerist í kjölfar andófs út- flytjenda ferskfisks síðustu vikna gegn takmörkunum á útflutningi á ferskum þorski og ýsu á Bretlands- markað og útflutningi á karfa og ufsa á Þýskalandsmarkað. „Eg tók ekki þátt í úthlutuninni í gær vegna þess að við hjá LÍÚ teijum forsendur fyrir útflutnings- takmörkunum brostnar," segir Vil- hjálmur Vilhjálrasson, iiagfrasð- ingur LÍÚ, en hann hefur síðustu vikur setið fundi fimm manna nefndarinnar sem fulltrúi útgerð- armanna og sjómanna. Reglur sfjórnvalda eru þær að þeir sem fluttu út í fyrra skuli fá að flytja út helming þess magns núna. Margir þeirra sem fluttu út í fyrra eru þegar búnir með sinn helming og ekkert samkomulag hefur náöst um hvernig skiptingin skuli vera í framhaldi af því. Þetta atriði er meginmál í augum útgerð- armanna og sjómanna. Stefán Gunnlaugsson, deildar- stjóri viðskiptadeilar utanríkis- ráðuneytisins og formaöur fimm manna nefndarinnar, segir að í næstu viku verði haldinn fundur þar sem áframhaldandi útflutn- ingstakmarkanir verði ræddar. Þær reglur sem settar voru í júlí í ár gilda til septemberioka. Á þeim fundi ræðst framtíð útflutningstak- markananna. Hingað til hefur LÍÚ tekið þátt í úthlutun leyfa þótt sambandiö telji takmarkanirnar alltof strangar. Að sögn Vilhjálms er það álit LÍÚ að i gær hefði mátt leyfa 1200 tonn af þorski og ýsu á Bretlandsmarkað. Nefndin veitti leyfi til að flytja út tæp 400 tonn af þorski og ýsu í gám- um. Útflytjendur hafa gagrirýnt þær reglur sem liggja tfl grundvallar útflutningsleyfum. Reglurnar miða aðeins við það magn sem flutt var út í fyrra án tillits til þess hvort útgerðarmenn fengu hátt eöa lágt verð fýrir aflann. Opinbert markmið takmarkan- anna er að fá sem hæst verö fyrir íslenskan ferskfisk. Samt sem áður fæst svo að segja sama verð fyrir íslenskan fisk í Bretlandi í ár og fékkst í fyrra. Sumar vikur i sumar fékkst jafnvel lægra verð en á sama tíma í fyrra. pv Forseti á ferð í Húnaþingi Berjatínsla við Borgaivirki Haukur L. Hauksson, DV, Blönduósi: Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, hóf annan dag heimsókn- ar sinnar í Húnavatnssýslur í gær- morgun á því að planta þremur birki- hríslum fyrir framan félagsheimilið á Hvammstanga. Að því loknu ók hún ásamt fylgdarliöi, Kornelíusi Sigmundssyni forsetaritara og konu hans, Ingu Hersteinsdóttur, Jóni ís- berg sýslumanni og Þórði Skúlasyni, sveitarstjóra á Hvammstanga, um bæinn. Steinsnar fyrir utan Hvammstangabæ er Kirkjuhvamm- ur og þar skoðaði forseti Kirkju- hvammskirkju sem er friðlýst og í umsjá þjóöminjavarðar. Er kirkjan úr timbri og stendur á hlöðnum steingrunni. Frá Hvammstanga var haldið fyrir Vatnsnes og að klettnum Hvítserki sem sagan segir að sé steinrunnin nátttröll. Hvítserkur var styrktur neðan til með steypu fyrir mörgum árum en óttast var að hann hryndi. Eljusamt og heiðarlegt fólk Frá Hvítserki var haldið í opið hús í Vesturhópsskóla þar sem oddviti Þverárhrepps, Agnar J. Levý, bauð forseta velkominn. Sagði hann meðal annars að nú byggju aðeins rúmlega hundrað manns í hreppnum óg færi íbúum fækkandi. Væri þetta líklega í síðasta sinn sem svo háttsettur maður sækti hreppinn heim þar sem breytingar á skipulagi hreppa stæðu fyrir dyrum. Þarna byggi eljusamt og heiðarlegt fólk og þrátt fyrir mannfæð gætu hreppsbúar státað sig af ýmsu er aörir gætu ekki. Þar nefndi hann Borgarvirki, Hvítserk, að Bríet Bjamhéðinsdóttir hefði fæðst þar og alist upp, Vatnsenda- Rósa eða Skáld-Rósa hefði búið þar Vigdís forseti að tina krækiber við Borgarvirki. DV-myndir Brynjar Gauti Vigdis, Kornelius forsetaritari og>Jón ísberg sýslumaður. i baksýn er Hvítserkur. lengi og ort sum bestu kvæði sín þar og loks sóknarprestinn og heims- manninn, Róbert Jack. Forseti þakkaði fyrir sig og sagði meðal annars að hún áttaði sig æ betur á því hve mikfl sérréttindi þaö væru að geta farið svona um landiö og kynnast hvemig fólkið hefði þaö. Hefði hún farið víða áður, en það væri annað og meira að geta hitt fólk- ið jafnframt því sem landið væri skoðað. Bragðað á krækiberjum Borgarvirki var næst á listanum. Það er eins konar gígtappi þar sem náttúran og mannanna hendur hafa haldist í hendur við gerð virkis það- an sem sést langt til allra átta. Gat mannskapurinn bragðað á velþrosk- uðum krækibeijum við virkiö. For- seti virðist hafa komist á bragðið og varð úr að bílalestin stansaði við litla laut á leiðinni frá Borgarvirki .þar sem bragðað var almennflega á þess- um gæðum náttúrunnar sem berin eru. Úr berjalautinni lá leiðin að djúp- um og mikilfenglegum gljúfmm, Kolugljúfmm, þar sem Víðdalsá rennur framarlega í Víðidal, og þau skoðuð. Rj úkandi kaffi og meðlæti beið for- sem var opið hús í boði hreppsnefnd- seta í félagsheimilinu Víðihlíð þar ar Þorkelshólshrepps. Þar bauð Olaf- Lögreglumenn aðstoða Vigdisi við Borgarvirki. ur Óskarsson oddviti forseta velkom- inn. Fyrir kaffið var þremur trjám plantað austan við félagsheimihð. Eftir á var ekið í átt.til Blönduóss. Við Gljúfurá tók sýslunefnd Austur- Húnavatnssýslu á móti forseta. Eftir stuttan stans á Hótel Blönduósi hélt forseti til Skagastrandar þar sem Vigdis festi kaup á gúmmístígvélum og ullarsokkum í kaupfélaginu á Hvammstanga. Adolf Berndsen, oddviti Höfða- hrepps, tók á móti henni. Var þar kvöldverður í boði hreppsnefnda Höfðahrepps, Vindhælis- og Skaga- hrepps og opið hús og kaffiveitingar fyrir íbúa hreppanna á eftir. Blönduvirkjun skoðuð Forseti gisti á Hótel Blönduósi í nótt og í morgun var áætlað að aka í Húnaver til opins húss. Um hádegi verður forseti í Blönduvirkjun þar sem jarðgöng og stöðvarhús verða skoðuö og snæddur hádegisverður í mötuneyti starfsmanna í boði Lands- virkjunar. Seinna í dag verða Húna- vellir heimsóttir og í kvöld verður snæddur kvöldverður í boði bæjar- stjómar Blönduóss. Heimsókn for- seta í Húnavatnssýslur lýkur á morgun, sunnudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.