Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Síða 35
LAUGARDAGUR 27. AGÚST 1988! nS 51 Skýrsla úr pappírshöllinm Þaö elskast aldrei neinn í þessu húsi. Ég veit þaö; ég heföi heyrt þaö. Arkitektinn sem hannaöi blokk- ina okkar hefur átt von á aö Stóra- Bróður-kerfiö skylli á hið bráðasta. Blokkin er ekki aðeins byggö í hring og hljómburður svo nákvæmur að aliir geta fylgst með hinum heldur hafði hönnuöurinn líka veggina næfurþunna. Ef ske'kynni að ein- hverjar leyndar athafnir færu fram fyrir lokuðum gluggum. Því veit ég að maðurinn í sjötta uppgangi héðan,- fimmtu hæð, fór í sturtu klukkan 6.13 í morgun og maðurinn á fjórðu hæðinni í þriðja uppgangi í hina áttina fór i vinnuna klukkan 6.28. Og að hjónabandið á hæðinni fyrir neðan fór í hundana klukkan 11.00 á fimmtudagskvöldi í síðasta mánuði. Þá lá ég á hnjánum og þrýsti vanganum að sjónvarpsskermin- um (því skiljanlega er öll háreysti bönnuð eftir kl. 9 á kvöldin). Skóku þá hamarshögg mikil bygginguna. Ég kippti mér ekkert upp við það, í þessari orwellsku blokk gilda ekki sömu reglur fyrir alla. Andartaki síðar drynur dyra- bjallan okkar. Þar er kominn dokt- orinn af hæðinni fyrir neöan, náfól- ur af niðurbældri reiði og þrýstir með erfiðismunum út á milli blá- leitra varanna: „Ég veit ekki hvort þér gerið yöur grein fyrir því, en úr hinzta her- berginu á ganginum hjá yður, sem er herbergið fyrir ofan svefnher- bergi mitt, doktors Magrí, berst slíkur dómadagshávaði, aö ég get ekki sofið.“ Ég játa samstundis aö hafa ekki gert mér grein fyrir þessu og segist nú þegar kanna fyrirbrigðið, svo og biðjist ég afsökunar sé þessi dómsdagur af okkar völdum. Þaö snörlar í doktornum þegar hann valhoppar þreytulega niður tröpp- urnar. Hinzta herbergi á ganginum er mannlaust eins og það á aö vera. í hinum sofa unglingaplágurnar sem dauöar séu. Þá eigum við ekki þennan hávaöa. Heldur, álykta ég og byggi á reynslu, unghngurinn sem hefur afdrep sitt handan veggj- ar svefnkamess doktorsins. Þeim semur illa, dreng þessum og foður hans. í hvert sinn sem meiri háttar ágreiningur berst í gegnum pappírsskilrúm blokkar- innar, má strax á eftir heyra hvem- ig drengurinn fær útrás meö því að skreyta heimilið. Hann neglir í veggina. Hætti faðir hans ekki að þrasa i honum þá endar með að hrökkbrauðsveggurinn gefur sig og unglingurinn og læknishjónin eignast sameiginlegt svefnher- bergi. Áður en ég legg vangann aftur að sjónvarpinu hugsa ég sem svo að doktorinn sé óvenju stressaður. Svo allt annað fas á honum í fyrra þegar þau hjónin komu heim úr sumarleyfinu og fundu 8 tonn af baðvatninu okkar á baðinu sínu. Þá bað hann broshýr um að við létum laga lekann áöur en við þvæðum okkur frekar. Og ég legg bara ekki að jöfnu, óhreina baðvat- nið okkar í þijár vikur og örfá hraustleg hamarshögg. Það er náungakærleikur minn sem veldur því að morguninn eftir hef ég enn áhyggjur af andlegri velferð doktors Magrí. Því er það að ég tek eftir að áöur en Marta í talfæri Auður Haralds læknisdóttir fer í bamafangelsið um morguninn ná bæði faðir henn- ar og móðir að öskra á hana. Þetta er með mesta móti óvenjulegt. Á átján mánuðum hefur svæfandi rúmstokksrödd doktrosins aldrei borist upp til okkar. Og nú orgar hann svo upp heyrist. Mörtu er ekið á barnaheimilið og móðir hennar snýr heim í tóma íbúðina. Þá, því læknisfrúin þjáist af þeirri sjálfsblekkingu að hún hafi slaghörputalent, er hún vön aö kasta sér á píanóborðið og meiða nóturnar til hádegis. En nú bregð- ur svo við að ég heyri smellina í háhæluðu skónum (læknisfrúin smokrar sér' í háhælana klukkan sjö að morgni og sparkar þeim mæðulega af sér á miðnætti. Hún svæfi í þeim, ef hælarnir ættu það ekki tfi að rífa damskið) inn gang- inn að geymsluhurðinni. Þar búa skópör hennar og fyrirstríðsmask- ína að nafni Húver. Og í stað þess að níðast á nok- túrnum og sónötum, ryksugar frú- in í hólf og gólf. Þessar stórtæku aðgerðir endurtekur hún morgun- inn eftir, laugardag. Á sunnudags- morguninn er Húver dreginn úr fylgsnum sínum kl. 8.47. Það er bannað með lögum að ryksuga í íjölbýlishúsum fyrir kl. ellefu á sunnudögum. Á mánudagsmorgni er vítisvélin virkjuð enn á ný og nú heyri ég hvernig læknisfrúin, lítil og mögur eins og hún er, sviptir til mub- lusamstæðunum. Nú, hugsa ég, hlýtur að vera orðið hreint hjá þeim. En ekki, nei. Klukkan fjögur sama dag þrumar Húver urrandi um alla íbúðina. Og samt er allt útbíað á þriðjudagsmorgni og grimmdargrenjið í þessum raíkn- úna skratta yfirgnæfir alla hugsun á hæðinni fyrir ofan. Á miðviku- deginum æðir Húver öskrandi um alla íbúðina og húsgögnin kastast á milli veggja á flótta sínum undan djöfullegu tækinu. Svo kemur skyndilega þögn. Er orðið þokkalega hreint þarna niðri? Eöa er Húver farinn í gegn- um hljóðmúrinn? Eða: Hefur Hú- ver snúist gegn læknisfrúnni? Stendur Húver, móöur og þrútinn um belginn, blóöpollur við fætur hans og í pollinum tveir háhælaðir skór? Þessi von er tekin af mér andar- taki síðar og Húver hamast til há- degis. Á einni viku ryksugar frúin niðri tiu sinnum, þar af þrjár vor- hreingerningar, og næsta sunnu- dagsmorgun er Húver kominn í ham klukkan 8.36. Þá veit ég að hljónabandið er í hættu. Alla vikuna hefur frúin ekki snert á slaghörpunni (og af tvennu illu), Marta orgar stöðugt, doktor- inn byrstir sig og þau eru hætt að taka póstinn. Doktorinn er áskrif- andi að svo mörgum læknablöðum að gangurinn niðri er að lokast. Og fótatak háu hælanna verður sí- fellt reiðilegra. Þetta ryksugu-umsátur stendur í mánuð. Daglega sigrast ég á ólg- andi löngun: Hringja á dyrabjöll- unni, ganga orðalaust inn, bregða vírklippunum á snúru Húvers og út aftur. Þá, loksins, þegar slaghörputa- lent frúarinnar hefur hrapað um mörg sæti á sjálfsmorðslista mín- um og vítisvélin Húver er að sölsa undir sig efsta sætið, gjörist það að í stað ragnaroks ryksugunnar ber- ast upp ómar slaghörpunnar. Hljómar stálhælanna mýkjast, Marta hættir að gelta á hundinn okkar úr stofuglugganum (og mað- urinn á fimmtu hættir að kvarta við mig yfir hundgánni), doktorinn hljóðnar og blaöahraukarnir hverfa af ganginum niðri. Hjónabandið sighr lygnari sjó. Læknisfrúin fær nýjan bíl og rit- höfundurinn á hæðinni fyrir ofan hugsar lengi um af hverju konur drekki sorgum sínum í hreingern- ingum. Auður Haralds Og þrotinn hver áfengisdropi Vísnaþáttur Torfi Jónsson Haustið 1966 birtist svohljóðandi frétt í dag- blaðinu Vísi: Baltika vínlaus eftir tvo daga. íslendingarnir 400 drukku 5 daga skammt á tveimur dögum. Hin rúmlega 400 glaölegu andlit íslenzku farþeganna á rússneska skemmtiferðaskipinu Baltika þyngdust all mjög, þegar skipið var_. komið 2ja sólarhringa siglingu í suðurátt frá landinu. Ástæöan var sú, að skipið þornaði algjörlega upp eftir sólarhringana tvo, hver víndropi var þorrinn og farþegarnir gengu þynnkulegir um þiljur og létu sér leiðast. - Hélzt templarastemmning um borð þar til skipið kom aö Miöjarðarhafinu. Þá hafði skip- ið verið vínlaust í tvo sólarhringa og sá skip- stjórinn sér ekki annað fært en að sigla inn til Gíbraltar til að taka auknar birgðir. Skipið átti ekki að koma neins staðar við fyrr en í Alsír. Vínafgreiðslumenn biðu með vínið á bryggj- unni, þegar skipið lagðist upp að. Var það tekið snarlega um borð, en síðan lagt frá þeg- ar í stað. Segja menn að fyrstu kassarnir hafi horfið, eins og þegar þerripappír er lagður á blautt borö, en síðan varð neyzlan jöfn og þétt. Þegar skemmtiferðin með íslendingana um Miðjaröarhaf og Svartahaf var skipulögð, var reiknað með því, að jafnvel fyrir íslendinga væri nóg að hafa hálfa flösku af sterku áfengi á mann á dag. Þar varð skipuleggjurum hrap- allega á í messunni, þvi fjögurra til fimm sól- arhringa skammtur hvarf eins og dögg fyrir sólu á tveimur sólarhringum. - Hver maður mun því að meðaltali hafa drukkið meira en flösku af sterku á dag. Nokkru eftir að þessar fréttir bárust birtist eftirfarandi ljóö í Vikunni: í haust lagði fagnandi flokkur af stað með farkosti rússneskum héðan, og menn höfðu vafalaust vonir um þaö aö verð’ ekki edrú á meðan, í ofvæni margur þar ölduna steig og innsigli skjótt voru brotin, er dagurinn fyrsti að djúpinu hneig hver dropi af sprútti var þrotinn. Á mannúð og umhyggju mikils er vapt og margir í skugganum gista, og varla er sovézkum sérlega annt um sönghneigða kapítalista, þeim bregður víst naumast þó nafnfrægur kór af nábít og ógleði ropi ef þrútið er loft og þungur sjór og þrotinn hver áfengisdropi. En þegar sú frétt barst að þetta mikla vanda- mál hefði veriö leyst á farsælan hátt var kveð- in hér heima: Bragarbót við Baltikaferð Hér heima við vorkenndum hópnum sem fór. Nú harmfregn í gleymsku má lenda, því til voru þrotlausar birgðir af bjór og brennivín ferðina á enda. Höfundur mun hafa verið hinn sami í báð- um tilvikum: Guðmundur Sigurðsson,- revíu- og gamanvísnahöfundur með meiru. Þótt landsfeður vorir geri það sem í þeirra valdi stendur til að halda í hemilinn á okkur hinum og beiti lögum í þeim tilgangi fer ekki alltaf að vilja þeirra. Fimmtudaginn 1. apríl 1954 fékkst skýring á þeim vanda í Morgun- blaðinu: Sjö hundruð og fimmtíu manna ráð Svo er ráð fyrir gert í hinni nýju áfengislög- gjöf, að skipað verði ráö sjö hundruð og fimm- tiu manna, sém hafi með höndum og sjái um æskilega áfengisnautn þjóðarinnar. Eftirlitsleysið í áfengismálum vors lands, var éitt af því sem drykkjuskap vorum háöi. En til þess að efla nautnalíf náungans á nú að skipa hálft áttunda hundrað manns, sem helzt skulu vera með réttu (áfengis)ráði. Og vonandi fjölgar þeim embættismönnum enn, svo áfengisneyzlan bíði sem minnstan hnekki. Og eitt er það sem vér þurfum að gera senn, og þaö er að skipa í viðbót eftirlitsmenn til eftirlits því, aö eftirlitsmennirnir drekki. Hrólfur Þaö er víst óhætt að taka undir með Guð- mundi Sigurðssyni sem kvað: Það leynist hér naumast neinum hið norræna ættarmót og enn ríða hetjur um héruð og halda sín þorrablót. Á laun hefur landinn blótað löngum, að fornum sið og norræna eldinn 1 æðum \ með áfengi lífgað við. Hér hösluöu víkingar vaskir sér völl fyrir leika og starf og vér tókum dáðir og drauma og drykkjuskap þeirra í arf. Og það er víst óhætt aö segja að lengi muna börnin, en hver orti: Man ég tvennt sem mér var kennt á Fróni, og minnkun ekki þótti þá, það var að drekka og fljúgast á. En eftirköstin verða oft önnur en aö er stefnt eins og næsta vísa greinir frá, höfundur ókunnur: Oft hef ég drukkið eins og svín og í sukkið gengiö, því hefur lukka lífsins mín ljótar hrukkur fengið. Sumum virðist seint of langt gengið, öðrum ofbýður feigðarflanið. Haukur Sigtryggsson í Hafnarfirði: Ekki veldur áfengið ennþá nógum skaða, því er bezt 'að bæta við bjómum heittelskaða. Torfi Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.