Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Side 6
6
LAUGARÐAGUR'27-.ÁGÚST 1988.
Útlönd
Grænfriö-
ungar mót-
mæla mengun
Norðursjávar
Grænfriðungar efndu til mót-
mæla gegn mengun í Norðursjó
í Noregi í gær.
Nokkrir meölimir samtakanna
ásamt nokkrum umhverfis-
verndarsinnum í Noregi gripu til
þess ráös að klífa 160 metra háan
reykháf Borregaard-verksmiðj-
unnar í sðurhluta Noregs til að
leggja áherslu á kröfur sínar.
Grænfriðungarnir segja að við-
ræður yfirvalda og fulltrua
mengunarvarna séu tilgangs-
lausar og á meðan eyöileggist líf-
ríki sjávar.
Þeir kölluðu loforð yfirvalda
um hreinan sjó innantóm og
sögöu að nú væri kominn timi til'
aðgeröa.
Grænfriðungar opnuðu skrif-
stofur í Noregi í síðustu viku.
Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 20-25 Bb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 22-25 Bb
6mán. uppsögn 23-26 ' Bb
12mán. uppsögn 24-28 Ab
16 mán. uppsogn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 8-12 Bb
Sértékkareikningar 10-25 Bb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 4 Allir
Innlán meðsérkjörum 20-34 Sb
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7,25-8 Vb
Sterlingspund 9,75-10,50 Vb
Vestur-þýsk mörk 4-4,50 Vb.Sp
Danskarkrónur 7,50-8,50 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv) 33-34 Sp.Úb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 34-41 Sp
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 35-38 Sp
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 9-9,50 Sp.Bb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 34-37 Úb.Lb,- Sb.Sp
SDR 9-9,75 Lb.Úb,- Sp
Bandaríkjadalir 10,25-11 Úb.Sp
Sterlingspund 12,75- 13,50 Úb.Sp
Vestur-þýsk mörk 7-7,50 Allir nema Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 56,4 4.7 á mán. |
MEÐALVEXTIR
óverðtr. ágúst 88 41,0
Verðtr. ágúst 88 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala ágúst 2217 stig
Byggingavísitala ágúst 396 stig
Byggingavísitala ágúst 123,9 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 8% 1 júlí.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,7526
Einingabréf 1 3,239
Einingabréf 2 1,858
Einingabréf 3 2,069
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,511
Kjarabréf 3,228
Lífeyrisbréf 1.628
Markbréf 1,695
. Sjóðsbréf 1 1,555
Sjóðsbréf 2 1,379
Tekjubréf 1,545
Rekstrarbréf 1.2718
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip 269 kr.
Flugleiðir 240 kr.
Hampiðjan 116 kr.
Iðnaðarbankinn 168 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr.
Verslunarbankinn 120 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankiiin, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Fara fram á neyðaraðstoð
Stjórnvöld í afríska ríkinu Burundi
hafa farið fram á neyðaraðstoð til
hjálpar eitt hundrað þúsund flótta-
mönnum í kjölfar fjöldamorðanna
sem áttu sér stað í landinu í síðustu
viku. Fjöldamorðin hófust í kjölfar
blóðugra ættflokkadeilna.
Upptök deilnannna eru óljós en
talið er að þær hafi hafist í byrjun
ágústmánaðar þegar einn meðlimur
hutu-ættbálksins var hengdur vegna
gruns um morð. Flóttamenn af hutu-
ættbálkinum hafa sagt að hermenn
tutsi-ættbálksins, sem ræður ríkjum
í landinu, hafi gripið til fjöldamorða
gegn óvopnuðum hutu-mönnum.
Utanríkisráðuneytið i Burundi
sagði að aðstoðar væri þörf í þrjá
mánuði til að lífið færðist í eðlilegt
horf á nýjan leik. Átökin áttu sér stað
í norðurhluta landsins en erlendum
eftirlitsmönnum hefur ekki verið
leyft að kanna aðstæður.
Talsmaður flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna segir að 47 þús-
und íbúar Burundi hafi flúið yfir
landamærin til nágrannaríkisins
Rwandi. Hann sagði að eitt þúsund
manns bættust í hópinn daglega.
Sameinuðu þjóðirnar og Rauöi
krossinn hafa sent starfsfólk til
Rwanda til áð aðstoða flóttafólkið.
Erlendir stjórnarerindrekar í Buj-
umbura, höfuðborg Rwanda, sögðu
fréttamönnum í gær að allsendis
Flóttamannastraumnum frá Burundi linnir ekki, að sögn talsmanna flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóöanna, og
bætast eitt þúsund flóttamenn við á degi hverjum. Símamynd Reuter
óvíst væri að fjöldamorðunum hefði landsins um að svo væri. Samkvæmt und manns í átökunum.
linnt þrátt fyrir yfirlýsingar forseta opinberum tölum létust fimm þús- Reuter
Herferð gegn
skrifræði
og sköttum
Sumarliði isleifsson, DV, Árósum:
Danska stjórnin hefur lofaö að
beita sér fyrir herferð gegn skrifræði
í landinu. Að sögn forsætisráðherr-
ans er stjórnkerfið í Danmörku bæði
þunglamalegt og allt of dýrt. Tuttugu
prósent af öllum útgjöldum ríkisins,
eða 60 milljarðar danskra króna,
ganga til opinberrar stjórnsýslu.
Hefur forsætisráðherrann boðað
róttækar lausnir á þessum vanda. í
þeim felst m.a. að endurskipuleggja
stjórnsýsluna með það að markmiði
að hún verði einfaldari. Ætlunin er
að flytja sem mest af verkefnum frá
ríkinu til sveitarfélaga. Þannig er t.d.
fyrirhugað aö sveitarfélögin sjái um
málefni grunnskólanna að mestu
leyti.
Þá er gert ráð fyrir að einhverjar
ríkisstofnanir verði hreiniega lagðar
niöur. Þó verður séð um aö starfs-
mönnum þeirra verði boðið upp á
endurmenntun til þess að þeir geti
snúið til annarra starfa.
Stjórnin vill einnig beita sér fyrir
lækkun skatta. Hefur hún bent á að
vænleg leið að því marki sé að neyt-
endur borgi í auknum mæli fyrir
þjónustu hins opinbera. Hefur veriö
rætt um aö hlutdeild þeirra geti orð-
ið allt aö tuttugu og fimm prósent á
sumum sviðum. Verða lagöar fram
tillögur þar að lútandi nú á næst-
unni.
Jafntfylgi
hægri og vinstri
flokka í Israel
Niðurstöður skoðanakönnunar,
sem birtar voru í ísrael í gær, sýna
að hægri og vinstri öflin í landinu
standa svo að segja jöfn að vígi fyr-
ir þingkosningarnar sem fram fara
þann 1, nóvember nk.
Samkvæmt niðurstöðmn könn-
unarinnar, sem gerð var á vegum
Dahaf stofnunárinnar í ísrael,
myndu hægri flokkamir hljóta alls
61 af 120 sætum á þinginu, Knes-
set, en vinstri flokkarnir myndu
hljóta alls 59 sæti.
Flest þingsæta hægri flokkanna,
eða ails 40 sæti, myndu falla í skaut
Likud-bandalaginu sem Yitzhak
Shamir forsætisráðherra er í for-
svari fyrir. Verkamannaflokkur
Shimon Peres utanríkisráðherra
myndi hljóta meirhluta þingsæta
vinstri manna eða alls 42 sæti.
Samkvæmt annarri könnun, sem
birt var nýlega, fá vinstri flokkam-
ir íviö fleiri sæti eða 63 á móti 57
sætum hægri flokkanna. Likud-
bandalagið fengi 38 þingsæti en
Verkamannaflokkurinn 43 sam-
kvæmt niðurstööum þeirrar könn-
unar.
Likud-bandalagið og Verka-
mannafiokkurinn ráða nú ríkjum
í Israel. Forystumenn beggja von-
ast til þess aö fá hreinan þingmeiri-
hluta í kosningunum en slíkt hefur
aldrei gerst i Israel.
Reuter
franar leggja línumar
Utanríkisráðherra Irans skýrði frá forsendum þjóðar sinnar fyrir varan-
legum friði í átta ára styrjöld íraks og írans. Símamynd Reuter
Utanríkisráðherra írans, Ali Ak-
bar Velyati, kynnti á blaðamanna-
fundi í gær, á öðrum degi friðarvið-
ræðna deiluaðila í Persaflóastríð-
inu, forsendur írana fyrir varan-
legum friði. Þetta er í fyrsta sinn
síðan viðræðurnar hófust að full-
trúi annars hvors ríkisins ræðir
við blaðamenn.
Velyati sagði að frið yrði að
byggja á ályktun Sameinuðu þjóð-
anna nr. 598 sem báðar þjóðir hafa
nú samþykkt. Helsta krafa írana
er sú aö landamæri ríkjanna miðist
við samninga ríkjanna sem undir-
ritaðir voru í Algeirsborg árið 1975.
írak hafnaði þessum samningi í
upphafi stríðsins. Samkvæmt þess-
um samningi eru landamærin við
miðlínu Shatt al-Arab vatnaleiðar-
innar við botn Persaflóa.
Einnig krefjast íranar þess að til-
lögur Peres de Cuellar, aðalritara
Sameinuðu þjóðanna, um fram-
kvæmd vopnahlésályktunarinnar
verði samþykktar af báðum aðil-
um. De Cuellar hefur ekki birt til-
lögur sínar opinberlega en að sögn
embættismanna SÞ fela þær í sér
tímasetningar fyrir framkvæmd
allra Uða ályktunarinnar. Vopna-
hlésályktunin kallar m.a. á að her-
ir beggja ríkja dragi sig til baka og
að skipst verði á stríðsfóngum.
Engin viðbrögð fulltrúa íraka í
viðræðunum hafa enn borist í kjöl-
far ummæla Velyati. Vestrænir
stjórnarerindrekar telja að for-
sendur írana sýni fram á að við-
ræðurnar veröi langar og strangar.
Reuter