Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Page 7
LÁUG'ÁÍIÖÁG W’ K'ÁGÚ&f r198á.
Fréttir
Itarleg skoðun á lögreglubílimi:
Áttundi hver bíll
fékk rauðan miða
- Ekki við starísmennina að sakast, segir lögregiustjórí
„LÖgreglubflar eiga að vera til
fyrirmyndar, bæði hvað varöar
búnað, atgervi og hegðun í um-
feröinni. Þetta eru þær kröfur sem
ég vil gera til þeirra," sagði Böðvar
Bragason, lögreglustióri í Reykja-
vík.
Fyrr í vikunni fór fram skoðun á
vegum Bifreiðaeftirlitsins og að ósk
lögreglunnar á öllum lögreglubíl-
um í Reykjavík. Fimm bílar af rúm-
lega fjörutiu reyndust í svo slæmu
ástandi að notkun þeirra var bönn-
uö þar -til lagfæringar hafa farið
fram.
„Það eru margar samverkandi
ástæður fyrir þessú sem eiga sér
langan aðdraganda. Bílakosturinn
hefur verið að eldast á síðustu
árum. Þegar ég byrjaði hér var
ákveðið að snúa þróuninni við.
Ráöuneytið féllst á að reyna að
endurnýja þessa bfla á íjórum
árum. Það hefur staðist. Við höfum
fengið um tíu bíla á ári. En það
hefur komið í ljós að það dugir
ekki til. Álagiö á þessa bíla er mik-
ið. Þeim er það mikið ekið.
Ég hef það markmið að koma
þessum málum í svipað horf og hjá
Kaupmannahafnarlögreglunni.
Þar eru, eftir því sem ég best veit,
engir bílar notaðir umfram 100
þúsund kflómetra. Mest eknu bíl-
unum hjá okkur hefúr verið ekið
. \ls . * I
. 3^^ 7j & *
Tveir af fimm lögreglubilum sem bönnuð hefur verið frekari notkun á.
Fimm lögreglubílar fengu rauðan miða víð skoðun. Bílarnir eru gamlir
og mikið notaðir. Of fáir starfsmenn eru á verkstæði lögreglunnar. Þeir
anna ekki nauðsynlegu viðhaldi. DV-mynd S
580 þúsund kflómetra. Svo þú sérð
samanburðinn. Þaðþarf hvorkibif-
vélavirkja né aðra sérfræðinga tfl
að koma okkur í skilnng um það
. að slíkir bílar er u ekki ákj ósanlegir
fyrir lögregluna.'1
Tuttugu lögreglubflar voru skoð-
aðir í upphafi. Niðurstöður þeirrar
skoðunar leiddu til þess að ákveðiö
var að láta skoða alla bílana. Sú
skoöun, sem var mjög ítarleg, fór
fram síðastliðinn þriðjudag. Þá var
bönnuö frekaxi notkun á fimm bfl-
um. Þar á meöal var bíU víkinga-
sveitarinnar.
„Mér er engin launung á þessu,
borgaramir eiga kröfu á að vita
hvernig málin standa og hvernig
tæki við höfura. Vonandi fáum við
skjótar úrbætur."
- Er ekki slælegu viðhaldi xmi að
kenna?
„Við höfum fjóra tfl fimm menn
á verkstæði. Þeir vinna myrkranna
á milli eins vel og þeir geta. Þegar
bílakosturinn eldist stöðugt og erf-
iðara verður að gera við haxm og
ekki er hægt að fjölga starfsmönn-
um þá kemur einhvern tíma aö því
að þeir aima þessu ekki. Það er
ekki við starfsmennina að sakast.
Þeir hafa gert eins vel og þeir hafa
getað," sagði Böðvar Bragason.
-sme
Sirkustjaldið á Akureyri. DV-mynd
Spænski „sirkusinn“ á Akureyri: '
Fógetinn krafðist ís-
lenskra aðgöngumiða
Gylfi Kristjánsson, DV, Alcureyri:
Við verðum með 7 sýningar á Ak-
ureyri og sú gíðasta þeirra verður á
mánudagskvöld," sagöi Jörundur
Guömundsson, umboösmaður
spænska „sirkussins" sem nú er
kominn til Akureyrar frá Reykjavík
og hélt sína fyrstu sýningu nyrðra í
fyrrakvöld.
Jörundur sagöi að ferðalagið norð-
ur hetði gengið illa. Einn bíll „sirkus-
fólksins" ók á hest í Borgarfirði að-
faranótt mánudagsins og daginn eftir
valt tengivagn annars bíls þeirra í
Víðidal. Þegar til Akureyrar konx
neitaði síðan þæjarfógeti um leyfi
nema aögöngumiðar yrðu prentaðir
á íslensku og var Jörundur mjög
óhress með þá ákvörðun.
Sýningarnar á Akureyri eru á
kvöldin kl. 20 til mánudagskvölds og
einrng kl. 14 á laugai’dag og sunnu-
dag. Þaðan liggur leiðin til Vest-
mannaeyja þar sem sýningar verða
3. og 4. september. Þá verða sýningar
á Keflavíkurílugvelli en 9.-11. sept-
ember verða 5 sýningar í Keflavík
og verða það síðustu sýningarnar hér
á landi.
Jörundur sagði aö þessi „sirkus"
væri mun viðameiri en danski „sirk-
usinn" sem heimsótt hefur ísland
undanfarin ár og mun meira lagt í
sýningarnar. í hópnum eru um 40
manns og sýningarnar taka tvær
klukkustundir.
Nokkur kurr hefur verið í mönn-
um, bæði á Akureyri og víöa annars
staðar, vegna veggauglýsinga „sirk-
ussins" en þær eru stórar og mjög
áberandi. Jörundur sagði að tveir
aðilar á Akureyri hefðu krafist þess
að þessar auglýsingar yrðu teknar
niður og yrði það gert.
DAIHATSUÁ
HÁTÍÐAR AFSLÁTTU R
í TILEFNI OPNUNAR NÝS SÝNINGARSALAR í SKEIFUNNI 15
t
OPiÐ LAUGARDAG 10-17, SUNNUDAG 13-17
ERÐ TS 3 D. 4 G. FRA KR.
ÁGÖTUNA
422.000
BRIMBORG HF.
SKEIFUNNI 15, SÍMI 685870
INNIFALIÐ í VERÐI HÁGÆÐA ÚTVARP
OG SEGULBANDSTÆKI