Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Qupperneq 16
Breiðsíðan
DV-
myndbrot
vikunnar
Þær voru glaðbeittar Valsstulkurn-
ar er þær höfðu náð bikarmeistar-
atitlinum um síðustu helgi. Stelp-
urnar eru klarar i fótboltanum ekki
siður en strákarnir og þær geta
líka brugðið á leik. Þær fengu
nefnilega medaliur sem höfðu
hvorki borða né nælu þannig að
ekki var möguleiki á að festa þær
i sig. Ein Valsstúlkan átti því ekki
annað ráð en að nota medaliuna
sem platta fyrir annað augað.
Hvort stelpurnar hafa fariö í sjó-
ræningjaleik eftir verðlaunaaf-
hendinguna er ekki gott að segja
en það verður einhvern veginn að
vera hægt að sýna þessa fallegu
peninga...
ELA/DV-mynd EJ
Magnús Eiríksson tónlistarmaður:
tf
Strákurinn fór vel með lagið
éé
„Kom á óvart að heyra lagið mitt i
látúnsbarkakeppni," segir Magnús
Eiríksson tónlistarmaður en er vel
sáttur við flutninginn.
..Mér fannst strákurinn fara vel
með lagið,“ sagði Magnús Eiríks-
son tónlistarmaðUr er Breiðsíðan
spurði hvernig honum hefði litist
á flutning látúnsbarkans, Arnars
Freys, á laginu Reyndu aftur. ,.Ég
hafði ekki hugmynd unt að þetta
lag yrði í keppninni og það kom
mér mjög á óvart. Þegar maður
hefur sett lag á plötu er hverjum
manni heimilt að flytja það þann-
ig aö þeir þurftu ekki leyft, þótt
það væri kannski skemmtilegra,"
sagðiMagnús.
- Nú hefur lagið hljómað mikiö á
rás 2 eftir keppnina. Áttu kannski
von á að það komist á vinsælda-
lista?
„Það má guð vita. Ég geri mér
enga grein fyrir hvaða þýðingu
það hefur þótt lagið hljómi oft á
rás 2. Það gæti þó alveg verið
hugsanlegt. Ég reikna líka með
að lagið verði á látúnsbarkaplöt-
unni þegar hún kemur út,“ svar-
aöi Magnús.
- Fannstþérstrákurinnlíkur
Pálma?
„Nei, mér fannst hann allt ann-
ar karakter en ég var ánægður
með hvernig hann flutti lagið,"
sagði Magnús.
Hann sagðist vera að semja
nokkuð fyrir aöra tónlistarmenn
þessa dagana og þar á meðal eitt
lag fyrir hinn nýja látúnsbarka.
Þá er í undirbúningi plata frá
honum sjálfum einhvern tíma í
haust.
- Hvað með Söngvakeppni sjón-
varpsins. Ætlar þú að taka þátt í
henni næstaár?
„Það gæti vel farið svo ef ég fmn
rétta lagið í þá keppni."
Magnús s.agði ennfremur að
honum hefði litistvel á látúns-
barkakeppnina og þætti hug-
myndin sniðug ef vel væri að
henni staöið. „Þetta var allt mjög
frambærilegt fólk sem þarna kom
fram þótt suma hafi vantaö
reynslu sem er eðlilegt. Maður
tók tillit til þess.“
Magnús sagði aö hann hefði
ekki heyrt í hljómsveitinni Bún-
ingunum sem nú hefur að geyma
tvo látúnsbarka en taldi aö það
ætti að vera hljómsveitinni mikil
lyftistöng að hafa tvo látúnsbarka
innanhennar. -ELA
Leikkonan Meryl Streep hefur
einstaka leikhæfileika. Flestir
ættu að vera sammála um það.
Hún þykir allsérstæö persóna og
frábrugðin imynd stórleikaranna
i Hollywood. Þegar hún er ekki
að leika dvelur hún heima hjá
fjölskyldu sinni í Connecticut og
er þá að sögn eins og hver önn-
ur hversdagsleg móðir. Leikkon-
unni bjóðast ótal hlutverk en hún
tekur aðeins örfáum enda hefur
hún liklegast vel efni á að vera
heimavinnandi þriggja barna
móðir þegar henni dettur það í
hug.
Menn og konur eiga sér mis-
munandi áhugamái. Þessi
franska stúlka stundar til dæmis
klifur í frístundum - ekki í fjöllum
heldur i háhýsum. Oft þykja að-
ferðir hennar glannalegar og
jafnvel lifshættulegar. Stúlkan er
þó strengd i öryggiskaðal
enda ... ja, hvað á maður að
segja?
Hann heitir Bobby Ore og sló
nýlega nýtt heimsmet sem fólst
í því að aka tveggja hæða stræt-
isvagni á tveimur hjólum 30
metra án þess að velta. i leiðinni
safnaði hann peningum sem
hann gaf til barnahjálpar.
Hundurinn Bruno á sannarlega
þakkir skildar. Hann kenndi
þessari litlu stúlku að ganga.
Hún hefur verið fötluð frá fæð-
ingu en eftir mikinn uppskurð
átti hún að geta gengiö. Þá kom
Bruno til hjálpar en hann leyfði
stúlkunni að styðja sig við bak
hans og gekk siðan i rólegheitum
meö stúlkunni. Þannig æfðist
hnátan litla og fer vist fram með
hverjum deginum sem líður.
Þökk sé Bruno.