Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Qupperneq 29
IiAUGARDA!GUR 27. ÁGUST19&.Í
Ekki efni á leikaraskap
„Þjóðin hefur ekki efni á neinum
leikaraskap núna,“ sagði Þorsteinn
Pálsson forsætisráðherra eftir
þingflokksfund sjálfstæðismanna á
Akureyri í vikunni.
Það er greinilegt á öllu aö ferð
Þorsteins til Bandaríkjanna, þar
sem hann hitti Reagan forseta, er
að skila sér.
Ekki nema málið sé póhtískara
og forsætisráðherra sé að klekkja
á Alþýðubandalagsmanninum
Ragnari Arnalds sem þessa dagana
er á kafi í leiklist hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
Ósiðlegir tilburðir
á Miklatúni
Miklatún kemst alltaf reglulega í
fréttirnar vegna manna með ýmsa
ósiði og tilburði. Einn var þar á
ferð í vikunni, samkvæmt fréttum.
Kona nokkur lá á túninu og varð
hún heldur betur vör við mann sem
gerði meira en að stunda nafla-
skoðun. Önnur kona varð vitni að
ósköpunum. Þær foröuöu sér báðar
i skyndi.
Samkvæmt fréttinni gáfu kon-
umar sér samt tíma á flóttanum til
að fylgjast með manninum áfram.
Það er annars merkilegt hvað
margir verða miklir um sig þarna
á Miklatúni.
Þingmenn niðurfærðir
Mál málanna í þessari viku sem
hinni fyrri er niðurfærslan rosa-
lega. Ýmsir telja að byrja eigi á að
niðurfæra þingmenn, enda sé bein
fylgni á milli efnahagserfiðleika og
fjölda þingmanna.
Húsi lögreglustjóra
mótmælt
íbúar í Litla-Skerjafirði, hvar sem
hann er nú á landakortinu, mót-
mæla nú byggingaframkvæmdum
lögreglustjórans í Reykjavík, Böð-
vars Bragasonar, við Skildinganes-
hóla.
Það verður nú að segjast eins og
er að það er vissara fyrir íbúana
að fara sér hægt og vera ekki með
neinar óeirðir. Þau eru nefnilega
hæg heimatökin hjá lögreglustjóra.
Mesti sigur í sögunni
„Mesti sigur í sögunni," sagði
Sigurður Sveinsson, landsliðsmað-
ur í handbolta, eftir sigur íslend-
inga á Sovétmönnum í vikunni.
Það fer nú að verða spurning um
lýsingarorð þegar út í sjálft „Kór-
eustríðið" verður komið í septemb-
er.
Færri rúmsenur,
segja Þjóðverjar
Þjóðveijar segjast nú vilja fá aö
sjá færri rúmsenur í sjónvarpinu,
en þess í stað fleiri þætti sem veita
ráðgjöf um kynlíf.
Margir muna eflaust eftir mynd-
Léttmeti á laugardegi
Jón G. Hauksson
inni Táknmál ástarinnar sem sýnd
var í Hafnarbíói viö metaðsókn fyr-
ir sextján eða sautján árum. Mynd-
in var hugsuð og sett fram sem
fræðslumynd um kynlíf.
Sú fræðsla var raunar stranglega
bönnuð innan 16 ára og furöaði
víst engan.
Hálf þjóðin á skólabekk
Yfir 65 þúsund manns setjast á
skólabekk í vetur að sögn Morgun-
blaðsins. Það er ekki hægt að segja
annað en þjóðin sé námfús. Það fer
samt að verða spurning hvort ein-
hverjir eru eftir til að vinna fyrir
þjóðinni.
Frelsið undir stjórn
„Ég lít svo á að verið sé að setja
frelsið undir stjórn," sagði Stein-
grímur Hermannsson utanríkis-
ráðherra um niðurfærsluleiðina.
Maður er miklu nær um niður-
færsluna eftir þessi orð. Það segir
sig sjálft.
Hönd-víti
Guðmundur Haraldsson, dómari
í knattspyrnu, skrifaði um dómara-
mál í vikunni. Yfirskriftin var
Hönd-víti. í greininni segir'dómar-
inn mikli: „Sem sagt, það er spurn-
ing hvort boltinn fer í höndina eða
höndin í boltann."
Það er augljóslega erfitt líf að
vera dómari.
Kartöflubændur
hressir
Páll Guðmundsson, formaður
Landssambands kartöflubænda, er
allt annað en óhress í viðtali við
Morgunblaðið í vikunni um útlitið
á kartöfluuppskerunni.
„Útlitið er ekki slæmt og líkur
eru á langtum minni uppskeru en
fékkst í fyrra,“ segir formaðurinn.
Miðaö við þessi orð formannsins
ættu bændur að sleppa því að taka
upp. Þá væri útlitið frábært og allir
bændur himinlifandi.
Þrumuréttir
„Útimarkaður í Reistárrétt: Rúg-
brauöið uppselt á fyrsta tíman-
um“, sagði í fyrirsögn á Akureyrar-
síðu Morgunblaðsins í vikunni.
Þessar réttir hafa ekki bara verið
fjörugar, þær hafa verið hreint
dúndur.
Sigrún selur rækjur
Sigrún Þorsteinsdóttir, fyrrver-
andi forstetaframbjóðandi, selur
nú rækjur grimmt og gengur ágóð-
inn upp í kosningaskuldir hennar
og til styrktar manngildishreyflng-
unni sem stendur aö baki Flokki
mannsins.
Það lætur nú eiginlega nærri að
breyta nafni flokksins í Flokk fisks-
ins.
4
Lögreglan með
forvarnadeild
Lögreglan í Reykjavík hefur
stofnað nýja deild um forvarnir.
Um þessa deild er það að segja að
ef von er á sams konar auglýsingu
og forvarna-auglýsingu landlækn-
isembættisins, þá er þessi deild í
góðu lagi.
ERÞAÐ1EÐAXEÐA2 17
. Tveir íslenskir ráðherrar eru sagðir ætla á ÓL. í Seoul. A Annar er Matthías Á. Mathiesen en hinn 1: SteingrímurHermannsson X: BirgirísleifurGunnarsson 2: GuðmundurBjarnason Bj arni riddari Sívertsen var þekktur frammámaður um ^ aldamótin 1800. Hann hefur verið nefndur „Faðir... “ • 1: Eskifjarðar i X: Vestmannaeyja 2: Hafnarfjarðar
B Mikil átök hafa verið um ráðningu sparisjóðsstjóra í Nes- kaupstað. Sveinn Árnason var ráðinn en við hann keppti um stöðuna 1: Karen Ingvarsdóttir X: Klaraívarsdóttir 2: ína Gísladóttir G aAA Þúsérðþettamerkiogveistþáaðþað i 1 ermerki ■ 1 1J 1: Ávöxtunar V 1 W X: Fjárfestingarfélagsins i 2: Glitnis
r Á Norðurlandamótinu í golfi varð Daninn Henrik Simon- sen efstur í einstaklingskeppni karla. íslendingur varð í 4. sætiogþaðvar 1: ÚlfarJónsson X: HilmarBjörgvinsson 2: Sveinn Sigurbergsson ' H Nýráðinn leikhússtjóri á Akureyri heitir 1: Inga Bjarnason | X< ViðarEggertsson 2: ArnórBenónýsson r 17 ! Sendandi | Heimili
„ Minnster núaldarafmælisHelgaHjör- , wT jM var. HannlasogþýddisögunaumBör | Börsson afstakri snilld. Bókin er eftir norska skáldið /jMj 1: JohanFalkberget W 2; Björnstjerne Björnson
-p íbikarkeppnikvennaiknattspyrnuiársigruðuValsstúlk- -L ur og er það reyndar.'... sigur þeirra í röð 1 Réttsvar: A 1 B 1 1 cl 1 D U 1: Fjórði 1 1 I& i E □ F □ G □ H □ |
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið réttar lausnir og
sendið okkur þær á svarseðlin-
um. Skilafrestur er 10 dagar. Að
þeim tíma liðnum drögum við
úr réttum lausnum og veitum
þrenn verðlaun, öll frá Póst-
versluninni Primu í Hafnarfirði.
Þaueru:
1. Töskusett, kr. 6.250,-
2. Vasadiskó og reiknitölva, kr.
2.100,-
3. Skærasett, kr. 1.560,-
í öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýj ar spurningar koma í næsta
helgarblaði.
Merkið umslagið: 1 eða X eða 2,
c/o DV, pósthólf5380,125 Reykja-
vík.
Vinningshafar fyrir 1 eða X eða
2 í fimmtándu getraun reyndust
vera: Garðar Karlsson, Klepps-
vegi 48,104 Reykjavík (tösku-
sett); Ingveldur Gunnarsdóttir,
Hólabraut 5,630 Hrísey (vasa-
diskó ogreiknitölva); Matthild-
ur Óskarsdóttir, Faxabraut 38
D, 230 Keflavík (skærasett).
Vinningarnir verða sendir
heim.
Rétt lausn var: X-1-2-X-X-1-X-2