Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.1988, Síða 39
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ARMULA
ARMULA 10—12, 105 R. SIMI 84022
Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla
Nemendur eiga að koma í skólann mánudag-
inn 5. september klukkan 10.00. Þá verður skólinn
settur og bókalisti, nýr námsvísir og stundatöflur af-
hentar gegn greiðslu 3000 króna nemendagjalds.
. Kennsla hefst skv. stundaskrá þriðjudaginn 6. sept-
ember.
Kynning fyrir nýnema verður í skólanum mánudaginn
5. september klukkan 11.00.
Eldri nemendur eru beðnir að hafa með sér bækur í
bóksöluna, en hún verður opnuð mánudaginn 5.
september klukkan 9.00.
Almennur kennarafundur verður fimmtudaginn 1.
september klukkan 10.00.
Skólameistari
FRÁ BORGAR-
SKIPULAGI
Auglýsing um breytt skipulag reits 1.242.0.
Byggingarfélagið Ármannsfell hf. hefur fariö fram á
breytingu á samþykktu skipulagi reits við Laugaveg
148 sem afmarkast af Laugavegi, Stakkholti,
Mjölnisholti og nýrri götu að sunnan. Uppdrættir
og líkön ásamt upplýsingum verða aimenningi til
sýnis á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3,
virka daga kl. 9.00-16.15, næstu 4 vikur.
Þeir sem vilja koma athugasemdum á framfæri geri
það skriflega til Borgarskipulags fyrir föstudaginn
23. september nk.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartúni 3
105 Reykjavík
LAX]G!ÁRDAGUR':2'/.rÁGO'Stí988
IþróttapistiU
• Kristján Arason stendur hér i ströngu í landsleik á dögunum gegn Vestur-Þýskalandi. Kristján og félagar
hans í íslenska landsliöinu þurfa að hugsa sinn gang þessa dagana. Símamynd/Reuter
Þurfum að
hugsa
okkar gang
Spánverjum olli ómældum von-
brigöum. Ástæöan fyrir spænskum
sigri var ekki glæsileikur Spán-
veija heldur afspyrnuléleg
frammistaöa okkar manna. Fyrri
hálfleikurinn var mjög slakur og
þaö aö vera 6-12 undir gegn Spán-
verjum í Laugardalshöll er allt
annað en glæsilegur árangur.
Mistök Bogdans
Það er ekki á hverjum degi sem
hægt er að koma auga á bein mis-
tök hjá Bogdan Kowalczyk lands-
liösþjálfara. Svo virtist í leiknum
gegn Spánverjum sem hann væri
ekki í fullkomnu jafnvægi frekar
en leikmenn íslenska liösins. Inná-
skiptingar hans voru af skornum
skammti og einnig var leikaöferð
íslenska liðsins einkennileg aö ekki
sé meira sagt. Langtímum saman
lék íslenska liðiö meö tvo línu-
menn, svokallaöa 4-2 leikaöferð, á
meöan Spánverjarnir léku flata
vörn, 6-0. Það er mín skoðun aö
ekki hafi verið rétt að málum staö-
iö og árangurinn varö eftir því.
Til hvers er Sigurður Sveins-
son í landsliðinu?
Staða Sigurðar Sveinssonar í ís-
lenska landsliðinu er einkennileg.
Nær alltaf situr hann á vara-
mannabekk þó svo að Kristján Ara-
son nái ekki aö sýna nokkurn skap-
aðan hlut inni á vellinum. í leikn-
um gegn Spánverjum kom Sigurö-
ur ekki inn á fyrr en langt var liðið
á leikinn. Strax gaf Siguröur tvær
gullfallegar línusendingar sem
gáfu mörk og skoraði sjálfur eitt
mark aö auki. Eftir leikinn viður-
kenndi Bogdan aö þaö hefðu veriö *
mistök af sinni hálfu aö setja Sig-
urö ekki fyrr inn á.
Það má gagnrýna Bogdan
Bogdan Kowalczyk er án efa besti
handknattleiksþjáífari sem starfað
hefur á íslandi. Þaö þýðir þó ekki
að hann sé yfir alla gagnrýni haf-
inn. Staðreyndin er hins vegar sú
aö Bogdan hefur náð einstökum
árangri og hann á mestan þátt í
þeim glæsta árangri sem landslið
okkar hefur náö á undanfórnum
árum. Oft hefur gengið á ýmsu í
undirbúningi landsliðsins fyrir
stórmót. Leikir hafa tapast í undir-
búningi og allir hafa fyllst svart-
sýni. Sannleikurinn er hins vegar
sá aö Bogdan hefur alltaf skilaö
toppárangri þegar í lokaslag er
komið og af hverju skyldi sú saga
ekki endurtaka sig á ólympíuleik-
unum í Seoul?
Þáttur fjölmiðla
Fjölmiölar hafa veriö gagnrýndir
fyrir að hafa ekki tekið á Bogdan
Kowalczyk. Að mínu viti hafa ís-
lenskir íjölmiölar sýnt mikla skyn-
semi í allri umfjöllun sinni um ís-
lenska landsliöið í handknattleik.
Og þaö að fjölmiðlarnir hafa látiö
Bogdan og leikmenn landsliösins í
friði í undirbúningi fyrir stórmót
hefur án efa skilað sér í enn betri
árangri. Rétt er að bíöa úrslitanna
í Seoul. Það hefur engan tilgang að
ausa svívirðingum og skömmum
yfir menn sem eru á fullu við að
búa sig undir mikilvæga keppni.
Þaö á að láta þessa menn hafa
vinnufrið. Tími gagnrýni og
skamma rennur upp eftir ólympíu-
leikana ef á annað borð verður
þörf fyrir slíkt.
Stefán Kristjánsson
Misjafn árangur islenska lands-
hösins í handknattleik á Flugleiða-
mótinu á dögunum hefur komið af
staö miklum taugatitringi. Árang-
ur liðsins er ekki til aö hrópa húrra
fyrir, en það skal tekið fram að
þegar þetta er skrifað á íslenska
liðið eftir að mæta Sovétmönnum
í síðasta leik mótsins.
Glæsileikur gegn Tékkum
íslenska liðiö byrjaöi með mikl-
um glæsibrag á mótinu. Leikur
hðsins gegn Tékkum var svo glæsi-
legur að menn muna vart annað
eins. Menn höfðu á orði að íslenska
hðið hefði sýnt handknattleik eins
og hann gerist bestur í heiminum.
Og ílestir sem sáu leikinn geta ör-
ugglega tekið undir þau orð.
Hrikalegt gegn Sviss-
lendingum
Næsti leikur íslands á mótinu var
gegn Svisslendingum sem eins og
flestir vita eru B-þjóð í handknatt-
leik. Að tapa þeim leik var gífurlegt
áfall. Ekki verða uppgötvaðar hér
einhverjar ástæður fyrir tapinu en
ég er þess þó fullviss að vanmat
hefur ráðið för og úrslitin bera þaö
með sér, svo og allur leikur ís-
lenska liðsins. Menn höfðu á orði
eftir leikinn að það væri svo leiðin-
legt að leika gegn Svisslendingum,
þeir lékju svo leiöinlégan hand-
knattleik, sóknir þeirra væru svo
langar og margt annað var tínt til.
Auövitað eru þetta magrar afsak-
anir. Staðreyndin var sú að leik-
menn okkar náðu sér alls ekki á
strik og leikur þeirra var léleg-
ur.
Enn verra gegn Spánverjum
Leikur íslenska liðsins gegn
Meinatæknir
Meinatæknir óskast til starfa á rannsóknarstofu
Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum. Upplýs-
ingar gefa Gunnar í síma 97-11386 og Guðrún í
síma 97-11400.
Útboð Vestfjarðavegur í Dalasýslu, Víðir - Bessatunga
V m Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum í ofan- r greint verk. Lengd vegarkafla 4,3 km, fylling
og burðarlág 94.000 m3.
Verki skal lokið 15. júli 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rikisins í Borgarnesi og í Reykjavik (aðalgjaldkera) frá og með 30. ágúst 1988. Skila skal tilboðum á
sömu stöðum fyrir kl. 14.00 hinn 12. septemb- er 1988. Vegamálastjóri