Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
Útlönd
DV
Gandhi í Peking
Rajiv Gandhi, forsætisráöherra Þetta er fyrsta heimsókn indversks ár. Hann sagðist vona að nýr kafli anna.
Indlands, kom til Peking í morgun. leiðtoga til Kína i þrjátíu og fjögur væri að hefjast í samskiptum þjóð- Heimsókn Gandhis er hugsuð til
ENGIN JÓL ÁN MÖMMUSULTU!
Mömmusulta er vægast
sagt frábær bæði með
hátíðamatnum, í
baksturinn í
pönnukökurnar eða beint
á brauðsneiðina. Þú getur
valið um Mömmu
Rabarbarasultu, Mömmu
Jarðarberjasultu - og svo
má ekki gleyma hinu
vinsæla Mömmu
Appelsínumarmelaði.
Það er ekki sama
hvaða sultu
þú berð á borð með
jólamatnum.
Þess vegna skaltu velja
jólasultuna vandlega,
þegar þú kaupir inn.
Láttu ekki lélega
sultu eyðileggja
fyrir þér jólasteikina.
Fáðu þér Mömmusultu -
og nóg af henni!
JlÖMMl
Appvteinu
■S&melaði
Bókajól
rp
JHl w*
p
j&'
.•4 . . .
lijá Tákifi
V
Golfbókin. Hentar bæði byrjendum og meist-
urum i golfi. Saga golfsins rakin, reglur skýrð-
ar, kennsluatríði í tækní og aðferðum á veiiin-
um. Fjölmargar skýringamyndir, Ijósmyndir
af golfvöllum og auk þess óborganlegar gam-
ansögur ur golfinu.
Á miðjum vegi i mannsaldur - Ólafs saga
Ketílssonar. Guðmundur Danielsson skráir á
ljóslifandi hátt lifshlaup brautryðjanda sem
ávallt he.fur farið eígin Ieíðir - á eigin hraða.
Hnyttín tilsvör Ólafs hitta ávallt í mark ekki
siður en óvægin gagnrýni hans. Umtöluð og
umdeild metsölubók.
Ástvinamissir - eftír Guðbjörgu Guðmunds-
dóttur. Áhrifamiklar frásagnir tólf Islendínga
af þeirrí reynslu að missa nákominn ástvin eða
ættingja. Bók um sorg og sorgarviðbrögð, til-
fmningaþrungin og einlæg. Astvinamissir Qall-
ar um reynslu sem allir verða fyrir. Frásagnir
sem láta engan ósnortínn.
íslenskir nasístar. Hrafn og Illugi Jökulssynir
draga upp Ijóslifandi mynd af atburðum sem
Iegíð hafa í þagnargildi í marga áratugi. Hverj-
ir voru islensku nasistarnir, hvað vakti fyrir
þeim og hver voru tengslin víð Þýskaland Hitl-
ers? Höfundar komust yfir merk skjöl, einka-
bréf og mikinn fjölda Ijósmynda sem ekkí
hafa birst áður. Bók sem ýmsir vildu að kæmí
ekki ut. ^
Hvora hóndína viltu? - eftír Vítu Andersen.
Vita Andersen er ein kunnasta skáldkona
Norðurlanda og á marga aðdáendur á Íslandí.
Þessi nýjasta skáldsaga hennar gallar um von-
ína, hamingjuna og örvæntinguna, sögð af niu
ára gamalli stúlku. Mikið Iistaverk sem hlotið
hefur einróma lof. Bókin var tilnefnd til bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs af hálfu
Dana. Hrifandi skáldsaga
OÐRlM$I ILElíl Ii
TAIíiV
Simí 621720 - Kíapparstíg 25-27
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, kemur til Peking í morgun.
Símamynd Reuter
að græða sárin eftir landamærastríð
ríkjanna árið 1962.
Strax eftir komuna til Peking hélt
Gandhi til fundar við Li Peng, forsæt-
isráðherra Kína.
Leiðtogarnir virtust á frétta-
mannafundi vera sammála um að
engin ástæða væri fyrir óeiningu og
fjandskap þessara miklu þjóða.
Ríkin eiga enn í deilum vegna
landamæra sinna. Svæðið sem deilt
er um er ríflegá stærð íslands. Átta
sinnum hafa verið haldnir samn-
ingafundir vegna deilunnar en aldrei
fengist nokkur lausn.
Ekki er búist við því að lausn fáist
í þessu máli í þessari heimsókn.
Reuter
Mikill
viðbúnaður
vegna komu
Sévardnadses
Utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
Edvard Sévardnadse, hóf i morgun
tveggja daga viðræður við japanska
ráðamenn í Tokýo á meðan þrjú þús-
und lögreglumenn umkringdu fund-
arstaðinn. Hægrimenn í Japan hafa
að undanfórnu kallað slagorð gegn
Sovétríkjunum fyrir framan sovéska
sendiráðið. Þeir hafa hins vegar
haldið sig í fjarlægð það sem af er
heimsókn Sévardnadses.
Talsmenn hægri manna segja að
þeir hafl haft hægt um sig af virðingu
við Hirohito keisara sem verið hefur
alvarlega veikur síðastliðna þrjá
mánuði. Heilsu hans hrakar nú dag
frá degi. Sévardnadse hóf Japans-
heimsókn sína í gær á því aö fara í
keisarahöllina. Þar ritaði hann í bók
óskir um bata til handa keisaranum.
Talsmaður japanska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að fyrstu við-
ræður sovéska utanríkisráðherrans
og Sosuke Uno, utanríkisráðherra
Japans, hefðu snúist um alþjóðleg
málefni.
Reutei
IRA-leiðtogar
handteknir
Fjórir menn, sem taldir eru vera
leiðtogar í írska lýðveldishernum,
IRA, hafa verið handteknir, að því
er lögregluyfirvöld á írlandi til-
kynntu í gær.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
fjórmenningarnar hefðu verið meðal
ellefu manna sem teknir voru á
fimmtudaginn eftir að stór sprengja
fannst í um fimmtíu metra fjarlægð
frá barnaskóla fyrir norðan Belfast.
Ellefumenningarnir veröa ákærðir í
dag fyrir samsæri um að fremja
morð.
Yfirmenn hersins og lögreglunnar
óttast að IRA eigi eftir að fremja
mörg sprengjutilræði á næstunni. í
yfirlýsingu, sem gefm var út á föstu-
daginn, tilkynnti IRA að breska
stjórnin heföi viku til að íjarlægja
fjölskyldur breskra hermanna frá
Norður-írlandi. Eftir það bæri
breska stjómin ábyrgö á þeim slys-
um sem fyrir kynnu að koma.
Reuter.