Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 20
20 VERNDAÐUR VINNUSTAÐUR Á AKRANESI Tilboð óskast í að fullgera að innan hús fyrir verndað- an vinnustað og dagvistun á Akranesi. Húsið er ein hæð, 526 m2. Verkinu skal að fullu lok- ið 1. ágúst 1989. Útboðsgögn verða afhent á skrif- stofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, og hjá Verk- fræði- og teiknistofunni, Kirkjubraut 40, Akranesi, til og með 30. des. nk. gegn 10.000 kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Innkaupastofnunar miðvikudaginn 4. janúar 1989 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK GEFIÐ NYTSAMA M ■■ TÖLVU JOLAGJOFl Tölvuborð og stóll saman. Stgr. verð aðeins kr. 9.950,- UHDIID HUGBUNADUR V klHVII SKRIFSTOFUTÆKI SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175 VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, Hverfisgötu 26 RÚLLUKRAGABOUR Efni: 100% bómull. Litir: svart, hvítt, dökkblátt. Stærðir: M, L, XL. Verð kr. 795,- MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988» Fréttir dv Djúpivogur: Flotbryggjan komin að höfninni Sigurður Ægisson, DV, Djúpavogi: Eins og greint var frá hér í DV í haust tóku 25 smábátaeigendur sig til síðastliðið sumar og skrifuðu bréf til hreppsnefndar Búlandshrepps, þar sem þeir skoruðu á hana að hefj- ast þegar handa við gerð smábáta- bryggju á Djúpavogi, en sú aöstaða, sem fyrir er, er löngu orðin ófull- nægjandi, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Buðust þeir jafnframt til að koma inn í þetta dæmi með því að greiða fyrirfram aðstöðugjöld til fjög- urra ára; skyldi hver um sig greiða 60 þúsund krónur. Þetta hlaut góðar viðtökur í hreppsnefnd og var boðið út. Um er að ræða flotbryggju sem í eru fimm einingar og er hver um sig 3 metrar á breidd og 7 á lengd, alls 35 lengdar- Flotbryggjan liggur nú tilbúin við höfnina, vinstra megin á myndinni, en verður ekki látin á sjó fyrr en næsta vor. DV-mynd S.Æ. metrar. Er smíðinni nú lokiö og búið en þó er ekki gert ráð fyrir að setja aö koma einingunum niður að höfn, bryggjuna á sjó fyrr en að vori. Bókin skoðuð. Frá vinstri: Albert, Hafsteinn, Agúst og Magnús. Bókarkafli um lam- aða íþróttamanninn Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Margir hafa hjálpað og stutt Ágúst Matthíasson, lamaða íþróttamanninn á Suðumesjum, í þau 39 ár sem liðin eru frá því hann Íamaðist fyrir lífstíð á íþróttaæf- ingu í Garðinum. Frímann heitinn Helgason var sá sem veitti Ágústi mesta aðstoð, en mikið hafa einnig lagt að mörkum þeir Albert Guömundsson og Haf- steinn Guðmundsson. Nýlega er komin út bókin Lífsreynsla og þar er einn kafli um Ágúst, slysið og þá lífsreynslu sem hann hefur öðl- ast eftir aö hann missti máttinn fyrir neðan mitti. Æskuvinur hans, Magnús Gíslason (emm) í Garðin- um, skráði. Þessir fjórir hittust nýlega og notuðu þá tækifærið til að rifja upp gömul samskipti enda hittast þeir ekki á hverjum degi. Ágúst færöi þessum tveimur vinum sínum, gömlu landshðsköppunum úr knattspymunni, Albert og Haf- steini, eintak af bókinni. Gefur út Ijóðabók fyrir ellilaunin - Þorbergur, bróölr Indriöa G., sest á skáldabekk Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: „Þetta er eiginlega hefndarráð- stöfun hjá mér. Það var hirt af mér handrit fyrir nokkrum árum og ég veit auðvitað alveg hver þaö gerði. Sá reiknaði með aö ég væri orðinn svo gamall að ég mundi ekki gera mikið fleiri vísur. En þar skjátlaðist honum og þetta hefur verið að tinast til núna síðustu misserin." Þetta sagði Þorbergur Þorsteinsson frá Sauðá en þessa dagana er að koma út ljóðabók eftir hann er ber nafniö Ruslakistan. Þess má geta að Þorbergur er hálfbróðir rithöfundar- ins kunna og Tímaritstjóra, Indriða G. „Það er nú meira hvað þeir eru búnir að tæta til þessir bókaormar sem ég kalla prófarkalesarana. Þeir eru einir 5 sem búnir eru aö lesa prófórk en mér flnnst þaö hinn mesti Þorbergur Þorsteinsson. DV-mynd Þórhallur. óþarfi. Eins og ég hef sagt þá er þetta ruslakistan og þaö á ekkert að vera að fægja það dót sem þar er, birta þetta bara eins og það kemur út úr kjaftinum á mér.“ Þorbergur sagði að það hefði staðið til í npkkurn tíma að hann gæfi út bók. Útgáfuna kostar hann sjálfur og segir að elhlaunin dugi að miklu leyti. Að þessu sinni eru gefm út 150 eintök af Ruslakistunni sem prentuð er hjá Sást á Sauðárkróki. í inngangsorðum bókarinnar segir Guðmundur Sigurður Jóhannsson ættfræðingur, en hann hefur reynst Þorbergi mikil hjálparhella við út- gáfuna: „Þorbergur hefur getið sér gott orö sem hagyrðingur þótt fátt eitt af kveðskap hans hafi birst á prenti fyrr en nú 'og mun ekki of- mælt aö sumar lausavísur hans séu landíleygar."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.