Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Page 24
24
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
Bónstöð í Framtíð
Þar sem framtíðin er
þar erum við.
Fljót og góð þjónusta
með úrvals efnum.
Hjá Jobba
Bónstöö 1
húsi Framtíðar
Faxafeni 10
Sími fiRSiOft H49)
LEIKFANGAHÚSIÐ AUGLYSIR
Nýjasta bensínstöðin frá Matchbox með rafstýrðum
bílskúrshurðaopnara.
Verð kr. 1.995,-
KÆRU VIÐSKIPTAVINIR
I samanburði verðkönnunar Verðlagsstofnunar er Leik-
fangahúsið með hæsta verð á einni vörutegund. Saman-
burður er ekki raunhæfur, tekið er mið af útsöluvöru í
einni búð (kannski í miður fallegum umbúðum).
Nú ætla ég að biðja fólk að lesa skýrslu Verðlagsstofn-
unar og bera saman verð.
Auk þess ætla ég að bjóða fólki upp á afslátt dagana
16.-20. desember. Afslátturinn er 10-70%
Póstsendum
Virðingarfyllst,
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10, sími 14806
TILVALIN JÓLAGJÖF
LECTROSTATIC SP0T BLASTER
SANDBLÁSTURSTÆKI
Lectrostatic Spot Blaster er tilvalið verkfæri fyrir bíla-
verkstæði, bílasprautuverkstæði í bílskúrinn o.fl.,
þegar unnið er við ryð, viðgerðir eftir steinkast eða
aðrar skemmdir á lakki bifreiðar.
A) Lokað kerfi, ekkert ryk.
B) Hreinsar vel yfirborösflöt undir blettun eða sprautun.
C) Góð nýting og hringrás á sandi.
D) Tengist við loftpressu 60-550 l/mfn.
Hœgt að fá aukaspfssa til aö blása huröarföls og rennur.
Verð 5400,- m/sölusk.
ÞYRILL HF.
Skemmuvegi 6, sími 641266
Fréttir
Heimsóttu íslenska
starfsbræður sína
Heilbrigðisfulltrúarnir, taldir frá vinstri: Lars Ericson, Eva Sönnerberg-Ekman, Georg Anderson, Monica Johans-
son, Kerstin Gilborne, Þorhallur Halldórsson, Stina Öberg, Hilkka Einbeigi, Monika Karlsson, Anette Insulan, Dag
Mathiesen. Á myndina vantar Rune Olsen. DV-mynd S
Sænskir heilbrigðisfulltrúar:
Ellefu heilbrigðisfulltrúar, frá
Gautaborg í Svíþjóð, komu nýverið
hingað til lands á vegum Hollustu-
vemdar ríkisins. Þetta er í fyrsta
sinn sem erlendir heilbrigðisfulltrú-
ar koma hingað í kynnisferð.
Hollustuvernd ríkisins sá um
tveggja daga dagskrá fyrir gestina.
Þeim var boðið aö skoöa fiskiðnaðar-
fyrirtæki í Hafnarfirði, Mjólkursam-
söluna, Vatns- og Hitaveitu Reykja-
víkur og Stofnun Árna Magnússon-
ar. Auk þess ræddu þeir við starfs-
bræður sína á höfuðborgarsvæðinu.
Gestimir voru ánægðir'með ferð
sína og létu í ljósi óskir um aö þessi
ferð yrði upphafið að öðru meira í
samskiptum þeirra sem starfa að
heilbrigðis- og mengunarvarnarmál-
um.
-sme
Kjólar í öllum stærðum
Regína Thoiarensen, DV, Selfossi:
í Lindinni á Selfossi fást kjólar í
öllum stærðum, hvort heldur fyrir
grannar og penar konur eða þybbnar
og vel í skinn komnar og einnig fyrir
þær sem bera mörg aukakíló og hálf-
vanskapaðar eins og ég.
Eigandi verslunarinnar, Bryndís
Brynjólfsdóttir, er ekki alltaf á flakki
eriendis eins og ráðherramir. Hún
fer haust og vor að velja og kaupa
kjóla og barnafót í Danmörku.
Bryndís flytur kjólana sjálf inn og
því er alltaf hægt aö gera hagstæö
kaup hjá henni. Ég veit ekki til þess
aö hún taki mál af neinni konu en
eins og áður greinir passa kjólarnir
vel á allar konur og geta þær farið
beint úr versluninni á hvaða mann-
fagnað sem er.
Bryndís er í bæjarstjórn og at-
hafnasöm þar og greinilegt að hún
vill hafa konur og börn vel til fara.
Fötin fara vel á fólki þegar enginn
framsóknarsvipur er á flíkunum.
Einnig hefur Bryndís veriö hótel-
stjóri á Hótel Selfossi síðasthðna tvo
mánuði og hefur hótelið aldrei verið
betur rekið.
Bryndís, ásamt Kolbeini Kristins-
syni, framkvæmdastjóra í Höfn, Haf-
steini Kristinssyni, framkvæmda-
stjóra og eiganda Kjöríss í Hvera-
gerði, og Alla ríka á Eskifirði, eru
þær manneskjur sem ég treysti til
aö stjórna landinu best og að skað-
lausu mætti reka þingmenn og ráð-
herra heim.
Að vísu vil ég taka fram að Ólafur
Ragnar Grímsson fjármálaráðherra
hefur vaxið í áliti upp á síðkastið
fyrir góða framgöngu. Jón Baldvin
er hins vegar of mikið á ferðalögum
fyrir minn smekk.
Selfoss:
Söngur barn-
anna hreif alla
Regína Thorarensen, DV, Selfosa:
Eldri borgarar á Selfossi komu
saman í Tryggvaskála sl. funratu-
dag eins og vanalega. Þar var
mikið um skemmtiatriði - kórinn
okkar söng glæsOega undir stjóm
Regínu Guðmundsdóttur organ-
ista. Kórinn hefur æft vel að und-
anfömu fyrir komandi jóla-
skemmtanir.
Svo kom Dagfríður Finnsdóttir
með 40 börn, 11 og 12 ára, úr
bamaskólanum á Selfossi og
mikil var hrifning okkar eldri
borgaranna að sjá og heyra böm-
in syngja svo vel. Dagfríöur ann-
aöist undirspil á gítar. Aldurs-
forsetinn þarna í Tryggvaskála
var Ámi Jónsson, 93 ára, og hann
sagði rólegur að vanda. Svona á
þetta að vera, böm og gamal-
menni eiga að vera meira saman
og það mundi spara okkar nútíma
þjóöfélagi verulegar fjárhaföir,
Ekki aðskilinn eins og nú er að
mestu leyti.
Inga forstöðukona ias úr bók
Ólafs Ketilssonar rútubílstjóra og
ég tel aö það geti veriö góð
kennslubókfyrir ýmsa
Sigursælt lið sendibílastöðvarinnar Þrastar í fyrirtækjakeppninni í keilu
1988. Frá vinstri: Gunnar Hersir, Alois Raschoffer, Halldór Sigurðsson, Björn
Baldursson og Stefán Þorvaldsson. Stóri skjöldurinn er fyrir sigur í fyrir-
tækjamótinu, stóri bikarinn fyrir íslandsmeistaratitilinn og hinir verðlauná-
gripirnir fyrir aðra sigra ársins í keilu.
Fyrirtælgamótiö 1 keilu:
Sendibflastöðin Þröstur
vann þriðja skiptið í röð
hefur sent lið í keppnina öU árin sem
hún hefur verið haldin og hefur aUt-
af farið með sigur af hólmi. Teppa-
land hefur þurft að láta sér lynda
annað sætið öll þrjú árin ogmun Uð
þeirra teppamanna vera langþreytt á
að sjá á eftir verðlaununum í hendur
Þrastarmönnum.
Besta leik einstaklinga átti Gunnar
Gunnarsson úr Uði Vegagerðarinn-
ar, 245 stig, sem þykir afar glæsUegt
skor. -hlh
Helgina 10.—11. desember var fyrir-
tækjamótið í keUu haldið í þriðja
sinn. Keppnin fór fram í keUusalnum
í Öskjuhlíð og var jöfn og spennandi
aUt til síöustu umferðar. Sendibíla-
stöðin Þröstur sigraöi á lokasprettin-
um, fékk 137 stig. í öðru sæti var
Teppaland með 120 stig og í þriðja
sæti kom ÖskjuhUð sf. með 119 stig.
12 Uð mættu til keppni, aUs 60 kepp-
endur, en ný lið bætast í keppnina á
hveiju ári. Sendibílastööin Þröstur