Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Blaðsíða 46
50
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
LífsstíU______________________________DV
íslendingar munu áfram fara
yarhluta af bjórmenningu
- rætt við áhugamann sem smakkað hefur 1000 tegundir af bjór
„Ég hef nú um átta ára skeið hald-
ið spjaldskrá yfir allan bjór sem ég
hef smakkað. Spjaldskráin telur í dag
tæplega eitt þúsund tegundir." sagði
Elvar Ástráðsson bjóráhugamaöur í
samtali við DV.
Elvar er vélstjóri á millilandaskip-
um og er því í betri aðstöðu en marg-
ur annar til þess að stunda þetta
áhugamál sitt. Auk þess hefur hann
ferðast mikið um meginland Evrópú
og á þeim ferðum hefur margt bæst
í spjaldskrána góðu.
Allt fært í spjaldskrána
„Hún er þannig uppbyggð," segir
Elvar, „aö hver ákveðin tegund á sitt
eigið kort. Á kortið eru skráðar allar
tæknilegar upplýsingar sem hægt er
að ná í um bjórinn. Nafn, fram-
leiðsluland, hvar hann er bruggaður
og af hverjum. Síðan eru skráðar
allar upplýsingar sem er að finna á
flöskunni eða hægt er að nálgast eft-
ir öðrum leiðum, s.s. styrkleika, lit,
hvemig hann bragðast og fleira. Þá
er skráð hvar bjórinn er keyptur,
■hvort hann er í flösku, dós eða kem-
ur úr tunnu eða þrýstikút og auðvit-
að dagsetning og ár.
í skránni eru bjórtegundir úr öllum
heiminum, auðvitað mest úr Evrópu
en á þessu flandri rekst maður á bjór
víða að.“
Elvar er þekktur á mörgum sérbör-
um í Evrópu sem þjóna bjóráhuga-
mönnum og þá einkum fyrir að vera
fúlltrúi bjóráhugamanna frá landi
þar sem ekki er leyfður bjór.
Hann er félagi í bresku félagi um
bjór sem hefur það að aðalmarkmiði
að berjast fyrir varðveislu hefö-
bundins bjórs í Bretlandi. Hann er
auk þess áskrifandi að hollenskum
og amerískum blöðum sem fjalla
sérstaklega um bjór. Fyrir þá sem
áhuga hafa á að kynnast þessu
áhugamáli vill hann sérlega benda á
Bierland, Þúsund bjóra barinn i Ant-
werpen. Sá staður er í heimsmetabók
Guinness. Víða í Hollandi og Belgíu
er að finna bari þar sem til eru fleiri
en hundrað tegundir
„Fæstir átta sig á því að bjór er
matvara og geymist því ekki mjög
lengi. Flestir bjórar þola að standa í
verslun í um þaö bil sex mánuði. Það
fer að vísu eftir því hvaö er sett mik-
ið af rotvamarefnum í þá og hvað
þeir eru sterkir. Bjór eins og íslend-
ingar kalla bjór er yfirleitt stimplað-
ur ár fram í tímann. Þá er átt við
venjulegan lager eða pilsnerbjór.
Þetta gerir mönnum erfitt að hggja
með mjög fjölbreyttan lager.“
- Áttu þér einhver uppáhaldsbjór?
Ómögulegt að segja
aðeinn
sé bestur
„Nei,“ segir Elvar, „það eru marg-
ar tegundir sem ég hef dálæti á en
það er gjörsamlega ómögulegt að
segja að einn bjór sé bestur. Einn
sjaldgæfasti bjórinn, sem er í minni
skrá, er frá Kína. Hann er ekki al-
gengur. En sjaldgæfur er afstætt
Fiaskan lengst til vinstri er undan frekar sterkum Heilags Bernharðs bjór
frá Elsass i Frakklandi. Næst kemur flaska undan einni af sjaldgæfustu
bjórtegundum heimsins, það er Rauchbier frá Suður-Þýskalandi. Við fram-
leiðslu hans er tekin sérstakur steinn, glóðhitaður og hent út i mjöðinn á
ákveðnu stigi. Við þetta myndast sérstætt reyk- og karamellubragð. Þessi
aðferð er gamalþekkt frá þeim tíma er eingöngu tréílát voru notuð.
Næst er venjulegur bjór i sérstæðri flösku. Þetta er Jubelbier frá Sailer-
brau, það er litil ölgerð í Markoberdorf í Suður-Þýskalandi. Þá kemur flaska
undan Stropken. Sá er tramleiddur af pínulitilli ölgerð i borginni Ghent i
Belgíu. Hann er af ale-gerð um 8% sterkur og þykir harla góður fyrir sinn
hatt. Þá kemur MacFarland bjór frá italiu rauðleitur, þokkalegur mjöður.
Lengst til vinstri er bikar undan Royal Ale frá Wieze í Belgíu sem þeir álíta
sína bestu tegund. Næst kemur stórt glas undir munkabjór frá Belgíu. Það
var framleitt sérstaklega fyrir afmælisútgáfu af öli sem aftur var framleitt
i tilefni 2000 ára afmælis borgarinnar Tongeren, og eiga þeir þó engan
Davið. Þar næst kemur glas undan Rodenbach sem er ein af sérstæðari
bjórtegundum. Hann er eldrauður og er lageraður á eikarámum í allt að
tvö ár. Framleiddur í Roeselare í Flandern i Belgiu. Afskaplega góður og
sérstakur bjór.
Þar fyrir aftan er krús með fjórum handföngum. Þetta er undir premium
útgáfu af Karls fimmta bjór frá Primus Hacht ölgerðinni í Belgíu. Síðan
kemur venjuleg þýsk ölkrús, bierstein, því næst norskt pilsnerglas frá Fryd-
enlund og síðan eins litra krús frá bjórhátíð í Belgíu og framleidd fyrir
hátíðina sértaklega. Sú hátíð er árlega í Wiese í Austur-Flandern. Þetta
var ein stærsta bjórhátíð í Belgíu en var að heita aflögð í tvö ár eftir slysið
á Heisel leikvanginum. Það var einkum gert til að losna við frekari heim-
sóknir breskra „hooligans". Nú er byrjað að halda hana aftur í kyrrþey.
DV-mynd Sveinn
hugtak og sennilega er íslenskur bjór
einhver sá sjaldgæfasti í veröldinni.
Hann er að finna á einstaka sérbar
í Evrópu".
- Hvernig stenst íslenskur bjór
samanburð við aðra?
„Hann er svona drykkjarhæfur.
Telst vera í sæmilegu meöallagi en
ilinn í hattinum sínum á leiðinni.
Carlsberg setti síðar á stofn rann-
sóknastofu árið 1871 og þar tókst
honum að hreinrækta lagergeril sem
er nefndur eftir honum og heitir
Saccharomyces Carlsbergensis.
Hann trúði og á það aö bjórgerð ætti
að styðja menninguna og setti á stofn
slíkan bjór er frá Chimay, þeir fram-
leiða þrjár tegundir af munkabjór.
Þetta er yfirleitt hefðbundinn dökkur
bjór, mikið malt. Maltölið okkar er
bruggað með þessari aðferð og í Dan-
mörku eru til bjórtegundir sem eru
nær alveg eins á bragðið og maltöl.
í þýskum bjórlögum, Reinheits-
í-
■ ;
ifvri
1 fkmiíniH
Elvar Ástráðsson við hluta af bjórmottusafninu. Það fylgir gjarna áhugamáli eins og þessu að safna öliu sem
viðkemur bjór. DV-mynd Svéinn
ekkert til að sækjast eftir. Það er afar
auðvelt að nefna klassískar tegundir.
Sá bjór sem er meðal bestu lager-
bjóra er Carlsberg Gull, eins og hann
er framleiddur í Danmörku.
Bylting i bænum Pilzen
Síðan er náttúrlega upphafsbjórinn
að öllum ljósum bjór sem er Pilsner
Urquell (urquell þýðir upphaflegur)
frá bænum Pilsen í Tékkóslóvakíu
en hann er hægt að fá mjög víða og
nú síðast í vor fór hann að fást á
barnum í Fríhöfninni á Keflavík og
þar er nú hægt að gæða sér á þessum
fræga miði.
Hann er sérstakur fyrir þær sakir
að hann var fyrstur bjóra bruggaður
með botngersaðferð sem markaði
þáttaskil í bjórgerð. Vatnið í Pilsen
er gott og samgöngur við nágranna-
löndin voru góðar á þessum tíma um
1842 og allar ytri aðstæður hagstæð-
ar. Á þessum tíma taldist Pilsen til
Bohemia og dreifðist fyrst um það
landsvæði og Bæheim. Þaðan er
komiö nafnið á bjórnum eins og við
þekkjum hann í dag. „En bajer“ segja
Norðurlandabúar, annars staðar er
hann kallaður pilsner og kenndur
við bæinn Pilsen.
Brautryðjandi í bjórgerð
Það var síðan árið 1845 sem Daninn
J.C. Carlsberg flutti heim til Kaup-
mannahafnar tvo potta af botngeri
sem hann hafði með miklum erfiðis-
munum flutt með sér frá Múnchen
en þar hafði hann verið á ölgeröar-
skóla. Faðir Carlsbergs rak lítið
brugghús í Kaupmannahöfn en það
var J.C. Carlsberg sem lagði grunn-
inn að því stórveldi sem Carlsberg
verksmiðjurnar eru í dag. Þetta var
erfitt ferðalag, með hestvagni, því
gerillinn mátti ekki ofhitna. Þjóðsag-
an segir aö Carlsberg hafi geymt ger-
Carlsberg sjóðinn 1876 í því skyni.
Sá sjóður styrkir ríflega hvers kyns
menningarstarfsemi.
í dag á Carlsberg bæði Tuborg og
Ceres verskmiðjurnar í Danmörku
auk þess að eiga brugghús og hluta
í brugghúsum um allan heim, allt frá
Grænlandi til Hong Kong. Það er
tæknikunnáttu og framsýni Johanns
Carlsberg að þakka að Danmörk
varð að stórveldi í bjórheiminum.
Fleiri kunna að brugga bjór
Aörar Norðurlandaþjóðir kunna
auðvitað líka að brugga bjór og mér
Tíðarandi
finnst til dæmis afar góður Arctic
Beer bjór frá Mack ölgerðinni í
Tromsö sem er nyrsta ölgerð í heimi.
Afar ferskur og skemmtilegur mjöð-
ur.
Norðurlöndin utan Danmörk
máttu þola bannár og það fer afar
illa með alla bjórmenningu. Hafta-
stefnan í Svíþjóð hefur og dregið úr
framgangi bjórmenningar þar.
Elstu neytendalög í heimi
í dag er allur lagerbjór bruggaður
með botngersaðferð sem byggir á þvj.
að gerið botnfellur og bruggun fer
fram undir 10 gráðum, en áður hafði
verið notast viö ger sem flaut upp
og gerjaðist við um 20 gráður. Þess
konar bjór var hér áður kallaður öl,
er í Englandi kallaður „ale“ og þar
er hann enn bruggaöur að meiri-
hluta. Af þessari tegund er líka
munkabjórinn dökki sem víða er
framleiddur í Belgíu. Gott dæmi um
gebot, er kveðið á um að ekki sé leyft
að nota annað en bygg, humla, ger
og vatn til bjórbruggunar. Víöa tíðk-
ast hins vegar að nota ýmislegt ann-
að kom til þess að drýgja maltið. Það
er ódýrara og gefur önnur áhrif.
Bjórinn sem þannig fæst er mun síðri
að gæðum. Reinheitsgeboten eru lög
frá 1516 og stundum nefnd elstu neyt-
endalög í heimi með nokkrum rétti.
Lögin eru í fullu gildi í dag í fjölmörg-
um löndum.
Nokkrir frægir bjórar
Ef á að nefna frægar tegundir má
nefna Múnchener Löwenbrau ögn
dekkri en venjulegur lagerbjór.Ann-
ar frægur Múnchenarbjór er Ur-
Marchen frá Spaten ölgerðinni í
Múnchen. Við þá ölgerð lærði
J.C.Carlsberg hjá Johann Sedlmay-
er.
Þýskur hveitibjór er frægur og í
Freising, austan við Múnchen, er
Weihenstephan ölgerðarháskólinn
og í ölgerðinni þar, sem er talin ein
elsta ölgerð í heimi, frá 1040, er
bruggaður sérlega góður hveitibjór.
Einnig þykir Enfinger weizen afar
góður.
íslendingar vilja
verða fullir strax
Þá era þýskir bock bjórar mjög
frægir og sérstakir. Upphafsbjór af
þeirri gerð er frá borginni Einbock.
Bock bjórar era sterkir, yfirleitt rúm
sjö prósent, og frekar dökkir.
Allur bjór sem fer yfir 6% er talinn
sterkur. Venjulegur hvunndagsbjór
víðast hvar í heiminum er tæplega
5% og þaðan af minna. Danskur
pilsnér til dæmis er um 4,6%.
íslendingar verðleggja hins vegar
bjór'eftir styrk. Þeir vilja að bjórinn
sé sterkur svo þeir verði tiltölulega
fljótt fullir af honum.