Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Side 48
52
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
Lífsstíll
„Margir eru fordómaftdlir gagn-
vart heimspeki. Halda að þetta séu
loftkastalar og komi hversdagsleik-
anum ekkert við en staðreyndin er
sú að þetta er þveröfugt. Svo ég vitni
í Sigurð Nordal þá sagði hann að við
værum öll heimspekingar hvort sem
okkur líkar betur eða verr,“ sagði
Hreinn Pálsson, kennari á heim-
spekinámskeiði fyrir börn.
Hreinn er eini Islendingurinn sem
hefur lokið fullu námi í heimspeki
fyrir börn. Hann kláraði meistara-
próf frá Montreal State College en
þar kennir dr. Matthew Lippman
sem er frumkvöðull á þessu sviði.
Sögumar, sem lesnar eru í upphafi
hvers tíma, eru einmitt eftir hann en
Hreinn hefur þýtt þær yfir á ís-
lensku. Lippman hefur útbúið efni
sem hæfir öllum aldurshópum
grunnskólans og er hann upphafs-
maður að því að færa heimspekina
inn í grunnskólann.
„Það er verið að byggja upp rökvísi
með krökkunum. Hún felst í móður-
máh hvers og eins. Reynt er að draga
fram hvernig við notum orðin í mál-
inu og hvemig við getum notað það
betur. Við skoðum ráðgátur um hvað
eitthvað er; t.d. vinátta og fegurð og
hvað það er að vera manneskja.
Kennsluformið er afar mikilvægt.
Notuð er samræðuaðferð sem felst í
því að hlusta, taka tillit til þess sem
aðrir segja og vera viljugur til þess
að velta því fyrir sér og tengja við
það sem þú ert sjálfur að hugsa. Þeg-
ar ég byrja á þessari samræðuaðferð
þá er mjög algengt að krakkamir
hlusti ekkert, þeir reyna aö ná at-
hygh kennarans og þegar þeir em
búnir að tjá sig um viðkomandi at-
riði þá fylgjast þeir ekki lengur með.
Smám saman fara þau að tileinka sér
spumingarnar, hlxista hvert á annað
og spyija spuminga sem gerir leik-
inn miklu auðveldari.
Það er engin hefð fyrir þessu
kennsluformi í skólastaríinu og al-
sér beislinu við fótmennt eða eitt-
hvað er varðar skrokkinn. Þetta er
þröngur tnarkaður og bara orðið
„heimspeki" fæhr frá mér nemend-
ur. En ég vil samt ekki gefa það upp
á bátinn.
Þetta er auðvitað námsefni sem
ætti að vera inni í grunnskólanum,
en þar er nóg starfað fyrir og skóla-
dagurinn orðinn svo stuttur að ég
held að skólamenn vilji síst af öllu
bæta við nýrri námsgrein. Skólafólki
hættir til að hta á þetta sem auka-
grein eða hhöargrein, en heimspekin
eðh sínu samkvæmt gengur þvert á
aðrar greinar og getur komið að
gagni í þeim. Heimspekin á því tví-
mælalaust erindi í grunnskólana, en
ég á ekki von á því að hún fari inn
á næstunni.
Jákvæður árangur
Á bak við þessi námskeið hggur
mikh vinna, þýða þarf umfangsmikh
námsgögn 'og ég hef staðið einn í
því, eij viðbrögð nemenda og foreldra
hafa hjálpað mér mikið og haldið
mér gangandi. Einum þræði er þetta
auðvitað tilraunastarfsemi en árang-
urinn hefur staðfest að þetta er já-
kvætt og á rétt á sér.
Markmiðið er að efla hugleikni og
rökvísi og gera hugsunina markviss-
ari, sjáífstæðari og frumlegri. Böm á
aldrinum 4-5 ára og upp að 10-11 ára
eru mestu heimspekingarmr. Með
aldrinum hlaðast upp vamarmúrar
og þau verða ekki jafn-opin og ein-
læg. Þegar maður byijar með 12-13
ára krakka þá hefur maður á tilfinn-
ingunni að verið sé að opna fyrir eitt-
hvað sem búið var að loka. Það er
því spuming hvort þama er ekki
vídd í okkur sem kemur okkur tíl
góða að geta haldið opinni."
-Ade
heima við og átti auðveldara með að
tjá sig. Einnig nefndi hann dæmi um
stúlku sem var mjög feimin í tímum
en fleygði fram á rökleikniprófinu.
„Svona atriði halda manni gang-
andi,“ sagði Hreinn.
Ordið „heim-
speki" fælirfrá
„Ég ætla að reyna að beijast áfram
í þessu þrátt fyrir ýmsa erfiðleika.
Það er slegist um krakkana á nám-
skeiðamarkaðnum og flest ganga
námskeiðin út á að sleppa fram af
Hreinn Pálsson er sérmenntaður i að kenna börnum heimspeki.
gengt að kennarar prófi þetta í einn
tU tvo tíma en gefist síðan upp þegar
það gengur ekki upp strax. Það er
ekki hægt að ætlast tU að samræðu-
formið komi fyrirhafnarlaust, um-
hverflð er því fjandsamlegt og al-
gengt er að fóUc hækki raustina í stað
þess að hlusta á það sem viðmælandi
er að segja.
Ég reyni líka að koma til móts við
krakkana og vel umræðuefni sem
höfðar til þeirra eöa fæ þá th að
stinga upp á umræðuefni. Svo er
náttúrlega galdurinn að ýta við þeim
feimnu og skrúfa dáhtið niður í hin-
um sem tala mest.“
Hreinn leggur rökleiknipróf fyrir
eldri aldurshópana tíl að fylgjast með
Dægradöl
framfórum á því sviði. Nemanda ein-
um fór ekki mikið fram á þvi og tal-
aði Hreinn við foreldra hans sem
sögðu að mikU breyting til batnaðar
hefði-átt sér stað þrátt fyrir htlar
framfarir á rökleikniprófinu. Hann
var nú farinn að tala mikið meira
Við erum öll heimspekingar
„Lærum margt sem M-
orðnir vita ekki"
Heimspekinámskeið fyrir böm!
Hljómar undarlega, jafnvel fáránlega
með tilhti til þess að í hugum flestra
táknar heimspeki eitthvað sem bara
mikhr spekingar og sérvitringar fást
við. Að minnsta kosti finnst fólki
heimspeki vera eitthvað sem er ekki
á allra færi að skUja, síst bama.
En þaö er nú öðm nær. Böm eru
heimspekingar í eðh sínu og þau geta
kennt fuhorðnum mikið á því sviði.
Hugur þeirra er opinn og einlægur
og þau geta tekist á við vangaveltur
um lífið og tilveruna á ferskan hátt.
Heimspekinámskeið fyrir böm
heyrir til nýjunga hér á landi en
fyrsta sérhannaða heimspekiefnið
fýrir böm kom út í Bandaríkjunum
árið 1974. Maður að nafni Matthew
Lippman byijaði þá að semja sögur
fyrir böm, sérstaklega ætlaðar tU
æfinga í rökleikni og í siðfræðilegri
og þekkingarfræðUegri umræðu.
Blaðamaður sat tíma í heimspeki
fyrir böm og hófst hann á því aö
bömin, öh á aldrinum 10-11 ára, lásu
saman sögu úr bók eftir Lippmann
sem Hreinn Pálsson, kennari þeirra,
hefur þýtt. Eftir lesturinn gátu
krakkamir bent á punkta sem þeim
þóttu athyghsverðir og Hreinn lagði
líka fyrir þau spumingar er tengdust
sögimni beint eða óbeint. Umræð-
umar spuimust áfram og greinilegt
var að krakkamir vom komnir í
góða þjáifun, bæði við að tjá sig og
hlusta hvert á annað. Út úr samræð-
unum kom yfirleitt sameiginleg nið-
urstaða hópsins að vel ígrunduðu
máh.
Læri að hugsa
öðruvísi
„Ég byijaði á námskeiðinu í haust
og mér fmnst mjög gaman. Hérna
lærir maður um merkingu orðanna
og að sum orð geta þýtt margt. Það
er gaman að fá að tala og skemmti-
legast að taia um hlutina sem við
eram að lesa. Sumar sögurnar era
þannig að maður finnur stundum
ekkert og stundum alveg heilmikið.
Mér finnst ég læra að hugsa öðru-
vísi,“ sagði Þórann Sigurðardóttir
sem er 11 ára.
Krakkarnir voru allir sammála um
að námskeiðið væri mjög gagnlegt
og skemmtilegt og að kennarinn
þeirra, Hreinn Pálsson, væri alveg
einstakur. Þeim fannst spumingarn-
ar, sem hann leggur fyrir þau,
skemmtilegar þótt það væri stundum
erfitt að hugsa svona öðravísi. Þau
vildu garnan hafa svona tíma í skól-
anum en gátu samt ekki alveg
ímyndað sér hvemig það væri hægt.
„Við lærum margt sem fuhorðnir
vita ekki,“ sagði Eygló Benedikts-
dóttir en hún sagði að sér hefði ekk-
ert htist á þegar mamma hennar var
búin að innrita hana á eitthvert
„heimspekinámskeið“ sem henni
fannst vera svo asnalegt og hlæghegt
orð. Hún hélt að það væri speki um
alheiminn og stjömumar en komst
svo að öðra.
„Margir krakkar vita ekkert hvað
þetta er og segja bara að þetta sé leið-
inlegt án þess að vita- neitt. En svo
er heimspeki bara mjög skemmtheg,
hka fyrir krakka. Mamma segir að
ég tah miklu skýrar og betur en áður
og ég er fegin að ég fór á námskeiðið."
-Ade
Þórunni finnst skemmtilegast að tala um sögurnar sem þau lesa í upphafi
hvers tíma.
Sólveig, Eygló, Vigdís og Pálína eru sammála um að þær hafi lært margt sniðugt á heimspekinámskeiðinu.