Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Síða 50
54 MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988. Lífsstm Greipaldin gegn kólesteróli Lengi hefur veriö talið að treí]aefni geti lækkað kólesteról í blóði. En trefjaefnin eru nokkuð mörg og ekki er víst að þau séu öll jafngóð til þess- ara hluta. Þó hefur verið sýnt fram á að ýmis trefjaefni geta lækkað kólesteról nægjanlega mikið til þess að koma að gagni við meðhöndlun sjúklinga. í nýlegri rannsókn frá háskólanum í Flórída var sýnt fram á að pektín (sultuhleypir) í greipaldinum geti lækkað fituefni í blóði þeirra sem hafa of hátt kólesteról. Skýrar niðurstöður í áðumefndri tilraun fengu 27 ein- staklingar með hátt blóðkólesteról 15 grömm af pektíni úr greipaldini á ' dag í einn mánuð. Þá var skipt yfir í platlyf eða hveitibelgi. Engar breyt- ingar aðrar voru gerðar á lífsstíl sjálfhoðahðanna. Á meðan á pektinmeðferðinni stóð lækkaði heildarkólesteról í blóði þátttakenda um 8%. „Slæma“ LDL kólesterólið lækkaði um 11% á með- an „góða“ HDL kólesterólið hélst í stað eins og þríglyseríðin. Þessar niðurstöður sýna fram á það að mati rannsóknarmannanna að greipaldin geti reynst árangursrík í baráttunni gegn sjúkdómum af þessu tagi. Svo vitnað sé í skýrslu þeirra: „Það getur verið réttlætanlegt að hvetja til þess að pektínrík matvæh séu í matarkúrum sem almenningi eru ráðlagðir til að fyrirbyggja kransæðasjúkdóma." Þess má geta að pektín hefur í matvælum auka- efnanúmerið E-440 en ólíklegt er að það sé í eins miklu magni og í fersk- um sítrusávöxtum. Borðum fjölbreytt um jólin Fleiri matvæli innihalda pektín í því magni aö þau gætu nýst okkur til lækkunar kólesteróls. Appelsínur, epli, bananar, sojabaunir, gulrætur, rófur og fleiri garðávextir innihalda einnig pektín. í raun greinir þessi rannsókn (og aðrar svipaðar) okkur nánar frá því með hvaða hætti fjölbreytt fæði getur verið hollt. En það er ekki nóg að kaupa nauta- hakk i matinn til að fá fjölbreytt fæði. Við ættum því að hafa fjölbreytni í vali okkar á ávöxtunUm um jólin sem og ööru og auka þannig hollustu mataræðisins. Ólafur Sigurðsson matvælafræðingur Sítrusávextir innihalda mikið af pektíni sem talið er geta lækkað kólesteról i blóði og þar með minnkað hættu á kransæðasjúkdómum. MYNDRÆN AHRIF Jóhann G. Jóhannsson Simi 91-12040 Heiidsala sími 91-17650 Til eigenda geislaspilara: Hljómplata Jóhanns G. Jóhanns- sonar er loksins komin út á geisla- disk. Tryggið ykkur eintak strax - takmarkað upplag fyrir jól. P.s. Þessi plata er lofuð fyrir vandaða tónlist og hljómgæði. „Myndræn áhrif er að mínum dómi ein hin áhugaverðasta sem hér hefur verið gefin út í langan tíma." MBL - Sv. Guðjónsson 0 Á jólatrésmarkaði Miklagarðs og Kaupstaðar fæst eingöngu normanns- þinur en á lægsta verði sem við höfum heyrt um. Ódýr normanns- þinur í Mikla- garði og Kaupstað Opnaður hefur verið jólatrésmark- aður Miklagarðs og Kaupstaðar í Mjódd. Salan fer fram við stórmark- aðina við Sund og vestur í bæ og við Kaupstað. Aðeins er seldur normannsþinur og verðið er ágætt miðað við þær upplýsingar sem fram komu í DV í síðustu viku um verð á jólatijám. Þannig kostar 75-100 cm tré 760 krón- ur, 100-125 cm kostar 1.200 krónur, 126-150 cm tré kostar 1.700, 150-175 cm tré kostar 2.100 og 175-200 cm tré kostar 2.800 krónur. 500 gramma grenibúnt kostar 150 krónur. Þetta er lægsta verð á jólatrjám sem neytendasíðan hefur heyrt um til þessa. í könnun DV á dögunum var kannað verð á jólatrjám hjá fjór- um stærstu söluaðilunum. Þetta verð er í öllum tilfellum lægra en lægsta verðsemþarsást. -Pá Niðurstöður úr rannsókn, sem dr. Laufey Steingrímsdóttir fram- kvæmdi á 37 fullorðnum íslending- um, benda til þess að sumir þeirra sem ekki taka lýsi reglulega hafi Neytendur óeðlilega lág gildi D-vitamíns. Ein til tvær teskeiðar af lýsi á dag eru taldar hæfllegur dagskammtur fyr- ir fullorðinn einstakling. Rannsóknin beindist einkum að því að kanna hvort merkja mætti einhver forstig D-vítamíneitrunar hjá fólki sem tekur lýsi að stað- aldri. Of stórir skammtar af lýsi geta kallað fram slík eitrunarein- kenni. Engin slík einkenni fundust hjá þátttakendum en stór hluti þeirra hafði tekið lýsi reglulega í fimm ár samfleytt eða lengur. í einni teskeið af þorskalýsi er um það bil ráðlagður dagskammtur af A og D vítamínum. Hætta á D- vítamíneitrun er ekki talin vera fyrir hendi nema menn innbyrði allt aö fimmfóldum dagskammti. -Pá Lýsi er hollt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.