Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Qupperneq 54
58
MÁNUDMiUR J9. DESEMBBR 1088.
Afmæli
Svanborg Sæmundsdóttir
Svanborg Sæmundsdóttir húsmóðir
og vefnaðarkennari, til heimilis að
Furugrund 34, Kópavogi, er sjötíu
ogfimmáraídag.
Svanborg fæddist að Hjöllum í
Barðastrandarsýslu og ólst upp í
Staðardal í Steingrímsfirði.
Hún stundaði nám við Húsmæðra-
skólann á Blönduósi og lærði þar
m.a. vefnað en hélt síðan til Noregs
og lauk þar kennaraprófi í vefnaði
vorið 1940. Svanborgkenndi vefnað
í Húsmæðraskólanum í Reykjavík
og síðan nokkur ár að Varmalandi.
Svanborg giftist 1948, Bjarna Pét-
urssyni Waien, f. 22.3.1913, d. 2.3.
1987, b., búfræðingi og bústjóra, af
norskum ættum.
Svanborg og Bjarni hófu búskap í
Borgarfirðinum og bjuggu síðan á
Hjarðarnesi á Kjalarnesi. Þau fluttu
í Kópavoginn 1959 þar sem Svan-
borgbýrenn.
Svanborg og Bjarni eignuðust tvö
börn. Þau eru Magni, f. 1948, doktor
í lífeölisfræði, en hann starfar á
vegum SÞ í Mexíkó, kvæntur Bar-
böru af þýskum ættum og eiga þau
einn son, og Elísabet Berta, f. 1950,
félagsráðgjafi í Reykjavík, en hún á
tvö börn.
Svanborg átti fjóra bræður og eina
systur sem komust til fullorðinsára
en hún á nú einn bróður á lífi, Jó-
hann. Sytkini hennar: Jón, f. 1900,
hreppstjóri á Hólmavík og síðar
starfsmaður hjá Kaupfélaginu á
Hólmavík; Katrín, starfsstúika á
sjúkrahúsum í Reykjavík; Albert
Benedikt, f. 1908, b; Guðmundur, f.
1909, sjómaður á Hólmavík og síðast
í Reykjavík; Jóhann Kristján, f. 1912,
b. á Stað.
Foreldrar Svanborgar voru Sæ-
mundur Jóhannsson, b. í Aratungu
og Staðardal, f. 9.1.1879, og kona
hans, Elísabet Jónsdóttir, f. 1871, d.
1944.
Elísabet var dóttir Jóns, b. á
Skarði í Bjarnarfirði og síðar á
Svanshóli, Arngrímssonar, b. í
Krossnesi, Jónssonar, b. á Munað-
arnesi og síðar á Krossnesi, Jóns-
sonar, í Ingólfsfirði, Alexíussonar, á
Munaðarnesi, Jónssonar. Móðir
Alexíusar var Þorbjörg Halldórs-
dóttir, prests í Árnesi, Magnússon-
ar. Móðir Jóns í Munaðarnesi var
Þorbjörg Guðmundsdóttir, b. í Mun-
aðarnesi og í Krossanesi, Finnboga-
sonar. Móðir Arngríms var Þórunn
Arngrímsdóttir, b. í Munaðarnesi,
Árnasonar. Móðir Jóns á Skarði var
Elísabet, dóttir Jóns, b. í Litlu-Ávík,
Jónssonar og Ingibjargar blindu
Guðmundsdóttur, prests í Árnesi,
Bjarnasonar. Móðir Elísabetar var
Guöríður Pálsdóttir, b. á Kcddbak,
Jónssonar.
Föðurforeldrar Svanborgar voru
Jóhann Hjaltason í Aratungu og
kona hans, Svanborg Helgadóttir.
Svanborg Sæmundsdóttir.
Svanborg verður heima á afmæl-
isdaginn og verður með kaffi á
heimili sínu fyrir vini og vanda-
menn.
Þorvaldur Sveinsson
Feðgarnir Þorvaldur Sveinsson og
Hreinn Þorvaldsson eiga báðir stór-
afmæli í dag, auk þess sem dóttir
Hreins, Eygló Ebba, verður þrjátíu
og átta ára sama dag.
Þorvaldur, sem nú er búsettur að
Hrafnistu í Reykjavík, er níræður í
dag. Hann fæddist að Hvalnesi í
Stöðvarfirði og ólst þar upp í for-
eldrahúsum en flutti tii Fáskrúðs-
fjarðar þar sem hann stundaði sjó-
mennsku til þrítugs en slasaöist þá
á hendi og kom í land. Hann stund-
aði almenn verkamannastörf um
skeið þar til hann hóf að starfa viö
múrverk sem hann stundaði síðan
allan sinn starfsaldur. Þorvaldur
starfaði lengi hjá Þóri Bergsteins-
syni múrarameistara og var löngum
eftirsóttur í arinhleðslur og annað
vandasamt múrverk.
Þorvaldur fluttist til Reykjavíkur
1954 ásamt fiölskyldu sinni og hefur
búið þar síðan.
Þorvaldur tók virkan þátt í sveit-
arstjórnarstörfum allan þann tíma
sem hann var búsettur á Fáskrúðs-
firði og sat í hreppsnefnd í áraraðir.
Kona Þorvalds er Sigurborg Vil-
bergsdóttir húsmóðir, f. 27.4.1906.
Foreldrar hennar voru Vilbergur
Magnússon, b. á Hvalnesi, og kona
hans, Ragnheiður Þorgrímsdóttir.
Þorvaldur og Sigurborg eiga fimm
börn. Þau eru: Guðrún, f. 31.12.1926,
húsmóðir á Eyrarbakka, gift Bjarna
Jóhannssyni útgerðarmanni, hún á
tvær dætur; Hreinn, f. 19.12.1928,
múrarameistari, kvæntur Sigur-
borgu Jónasdóttur frá Lýsudal í
Staðarsveit, hann á fimm börn;
Ragnar, f. 8.12.1930, vélvirki á
Reykjalundi, kvæntur Þóru Gunn-
arsdóttur, þau eiga þrjá syni; Jóna,
f. 23.6.1935, gift Eiríki Grétari Sigur-
jónssyni, bifvélavirkja í Mosfells-
sveit, þau eiga fimm börn; Magnús,
f. 12.1.1942, skipstjóri í Mosfellsbæ,
kvæntur Katrínu Hjartardóttur,
húnáeinnson.
Þorvaldur átti einn bróöur sem
látinn er fyrir mörgum árum. Sá var
Þorvaldur Sveinsson.
Ingi Björgvin, sjómaður í Reykjavík,
og átti hann einn son sem ólst upp
hjá Þorvaldi og Sigurborgu.
Foreldrar Þorvalds voru Sveinn
Jónsson, b. á Hvalnesi, ættaður úr
Suðursveit, og kona hans, Jónína
Magnúsdóttir frá Fossárdal í Beru-
firði.
Þorvaldur verður aö heiman á af-
mælisdaginn.
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar
um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur
dögum fyrir afmæliö. Munið að senda okkur myndir
Fólk í fréttuin
Ólafur Ketilsson
Eins og getið var um í DV á dögun-
um er nú komin út ævisaga Ólafs
Ketilssonar áætlunarbílstjóra, Á
miðjum vegi í mannsaldur, en Guð-
mundur Daníelsson skrásetti.
Ólafur er búsettur í Svanahlíð á
Laugarvatni. Hann fæddist að Álfs-
stöðum á Skeiöum 15. ágúst 1903 og
ólst þar upp en fór alfarinn úr for-
eldrahúsum tuttugu og fimm ára.
Ólafur var á togurum nokkrar vetr-
arvertíðir en hann var eftirsóttur
hásetí enda þrekmaður, rammur að
afli. Ólafur tók bílpróf 1928 og keyptí
sér vörubifreið það vor en hann hóf
þá akstur fyrir kaupfélagið á
Minni-Borg í Grímsnesi. Hann fékk
sérleyfi fyrir fólksflutninga til Laug-
arvatns 1932 og ók milli Reykjavíkur
og Laugarvatns í áratugi. Hann er
löngu orðinn góðkunn þjóðsagna-
persónafyrir glaðværð sína, hnyttin
tilsvör og gætilegan akstur.
Kona Ólafs var Svanborg Þórdís
Ásmundsdóttir, f. 11. febrúar 1905,
d. 4. apríl 1988. Foreldrar Svan-
borgar voru Ásmundur Eiríksson,
b. og oddviti á Neðra-Apavatni í
Grímsnesi í Árnessýslu, og kona
hans, Guðrún Jónsdóttir frá Skóg-
arkoti.
Ólafur og Svanborg eignuðust
þrjár dætur og einn kjörson. Börn
þeirra eru: Ásrún, f. 11. júní 1931,
skrifstofumaður hjá Trygginga-
stofnun ríkisins, gift Þórhalli Jóns-
syni, f. 10. desember 1927, starfs-
manni á Borgarspítalanum, en þau
eiga tvö böm: Katla, f. 10.10.1934,
gift Frosta Bjamasyni, flugstjóra í
Kópavogi, þau eiga fiögur börn; Elfa,
f. 23. janúar 1938, gift Sigurði Sig-
urðssyni, skrifstofumanni hjá
Sjóvá, þau eiga þrjú börn, og Börk-
ur, f. 15. febúar 1949, bifreiðarstjóri
á Laugarvatni, sambýliskona hans
er Björg Hansdóttir, þau eiga einn
son.
Systkini Ólafs urðu níu en átta
þeirra komust á legg. Þau em:
Brynjólfur, f. 26. september 1901
lengi starfsmaður hjá Reykjavíkur-
borg, kona hans var Elinbjörg Sig-
urðardóttir, d. 28. janúar 1986; Val-
gerður, f. 29. mars 1905, fyrrv. hús-
freyja á Álfsstöðum, nú búsett á
Selfossi; Helgi, f. 20. ágúst 1906, d.
29. ágúst 1987, b. á Álfsstöðum; Sig-
urbjörn, fyrrv. skólastjóri í Ytri-
Njarðvík, kvæntur Hlíf Tryggva-
dóttur kennara; Ellert Helgi, f. 17.
júní 1913, d. 10. apríl 1973, sjómaður
í Reykjavík, kona hans var Guð-
munda H. Siguröardóttir, d. 18. apríl
1969; Kristín Ágústa, f. 6. ágúst 1914,
d. 3. febrúar 1985, gift Sigurjóni
Kristjánssyni, b. oghagleiks- og
hugvitsmanni í Forsæti; Hafiiði, f.
16. ágúst 1916, fyrrv. b. á Álfsstöð-
um, nú búsettur á Selfossi; Guð-
mundur, f. 10. september 1919,
mjólkurfræðingur hjá Mjólkurbúi
Flóamanna, kvæntur Ingilaugu
Jónsdóttur. Uppeldisbróðir Ólafs er
Helgi Ólafsson, f. 27. júní 1924, fast-
eignasali í Rvík, fyrri kona hans var
Anna Pálsdóttir, f. 7. júni 1918, d. 10.
maí 1961, og seinni kona Kristín
Olafur Ketilsson.
Einarsdóttir, f. 1. maí 1924.
Foreldrar Ölafs voru Ketíll Helga-
son, b. á Álfsstöðum, f. í Skálholtí
11.10.1871, d. 11.3.1965, og kona
hans, Kristín Hafliðadóttir frá
Birnustöðum á Skeiðum, f. 26.6.
1874, d. 18.1.1943. Faðir Ketils var
Helgi, b. í Skálholtí og Drangshlíð
undir Eyjafiöllum, Ólafsson, b. í
Skálholti, Helgasonar. Móðir Helga
var Ingiríður Einarsdóttir, b. á
Bryðjuholti og konu hans, Guðrún-
ar, systur Halldóru, langömmu
Bjarna Þorsteinssonar, prests og
tónskálds á Siglufirði. Guðrún var
dóttir Kolbeins, prests og skálds í
Miðdal, Þorsteinssonar. Móðir Ket-
ils var Valgerður Eyjólfsdóttir, b. í
Vælugerði í Flóa. Foreldrar Kristín-
ar voru Hafliði Jónsson, b. á Birnu-
stöðum, frá Auðsholti í Biskupst-
ungum, og kona hans, Sigríður
Brynjólfsdóttír frá Bolholtí á Rang-
árvöllum.
Til hamingju með daginn
Skólagerði 24, Kópavogi. Hann verður ekki heima á afmælis- daginn.
85 ára
Elín Siguijónsdóttir, Reykjavegi 24, Reykjavík.
50 ára
80 ára Yngvi Örn Guðmundsson, Jófríðarstaðavegi 7, Hafnarfirði.
Bára Jónsdóttir, Raftholti I, Holtahreppi. Sigurður Magnússon, Nýbýlavegi 38, Kópavogi.
75 ára 40 ára
Ragnar Marteinsson, Meiri-Tungu II, Holtahreppi. Sigurþór Þorleifsson, Skólavegi 9, Keflavík. Arnar Magnússon,
70 ára Stóragerði 16, Reykjavík. Ellen Þorvaldsdóttir, Lönguhhð 20, Akureyri. Guðný Sigurðardóttir, Hólabraut 10, Kefiavík. Ásmundur Karlsson, írabakka 20, Reykjavík. Smári Júlíusson, Skólavegi 48, Búðahreppi. Örn F. Kjartansson,
Bragi Haraldsson, Bleiksárhlíð 16, Eskifirði. Ragnheiður Valdórsdóttir, Boðaslóð 14, Vestmannaeyjum.
60 ára
Aðalheiður Árnadóttir, Rekagranda 2, Reykjavík. Sigþrúður Pálsdóttir, Mávahlíð 37, Reykjavík. Lilja Jónsdóttir, Árlandi 8, Reykjavík. • Ingimar Sigurtryggvason, Freyjugötu 50, Sauðárkróki. Sigurður Ásgeirsson, Háaleitísbraut 15, Reykjavík. Guðmundur Stefánsson, Hraungerði, Hraungeröishreppi. Hjörieifur Gísiason, Þingvallastrætí 32, Akureyri.
Hreinn Þorvaldsson
Hreinn Þorvaldsson múrarameist-
ari, til heimilis að Kleppsvegi 82,
Reykjavík, er sextugur í dag.
Hreinn er fæddur að Búðum í Fá-
skrúðsfirði og ólst þar upp til sautj-
án ára aldurs í foreldrahúsum en
flutti til Reykjavíkur og hóf þar nám
í múrverki. Hann lærði hjá Einari
Sveinssyni múrarameistara og lauk
sveinsprófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1952.
Hreinn starfaði síöan við múrverk
frá 1952-62 en hóf þá störf hjá Mos-
fellsbæ, fyrst sem verkstjóri og síöar
byggingafulltrúi og byggingastjóri
hreppsins.
Hreinn hefur unnið að ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Múrarafélag
Reykjavíkur. Hann sat í stjórn fé-
lagsins um árabil og ýmsum nefnd-
um þess, auk þess að vera gjaldkeri
elli- og sjúkrasjóðs félagsins um
tíma. Þá hefur hann setíð í stjóm
Félags Fáskrúðsfirðinga í Reykjavík
í áraraðir auk fiölda trúnaðarstafa
á vegum Mosfellsbæjar.
Kona Hreins var Fjóla Svandís
Ingvarsdóttir frá Laxámesi í Kjós,
f. 6.6.1930, d. 17.1.1970. Foreldrar
Fjólu: Ingvar Jónsson, b. í Laxár-
nesi, en hann er látinn, og kona
hans, ÚrsúlaÞorkelsdóttir, en hún
dvelst nú á Reykjalundi.
Hreinn er nú giftur Sigurborgu
Jónasdóttur, f. 3.5.1936, frá Lýsudal
í Staðarsveit. Foreldrar hennar
voru Jónas Guðmundsson, b. þar,
og kona hans, Ásgerður Ágústs-
dóttír. Börn Hreins og Fjólu: Eygló
Ebba, f. 19.12.1950, búsett í Reykja-
Hreinn Þorvaldsson.
vík; Hrafnhildur, f. 11.5.1953, bóka-
safnsfræðingur í Kópavogi, gift
Birgi Sigurðssyni skipulagsfræð-
ingi, þau eiga tvö börn; Ingvar, f.
1.4.1957, múrari í Mosfellsbæ,
kvæntur Laufeyju Jóhannsdóttur,
þau eiga tvo syni; Þorvaldur, f. 29.2.
1960, múrari i Reykjavík, sambýlis-
kona hans er Oddný Kjartansdóttir
og eiga þau eina dóttur; Jóhanna
Hrund, f. 11.6.1962, iðnverkakona í
Reykjavík.
Hreinn á fiögur systkini sem öll
eru á lífi.
Foreldrar Hreins eru Þorvaldur
Sveinsson múrari og kona hans,
Sigurborg Vilbergsdóttír.
Hreinn verður að heiman á af-
mælisdaginn.