Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1988, Page 56
60
MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 1988.
Andlát
Sigurður Ágúst Hermannsson hús-
gagnabólstrari, Bollagötu 6, Reykja-
vík, lést á heimili sínu fimmtudaginn
15. desember.
Jarðarfarir
Jón Símon Kristjánsson varð bráð-
kvaddur á heimili sínu 10. desember.
Útfórin hefur farið fram í kyrrþey.
Útför Guðrúnar Andrésdóttur fer
fram frá Fossvogskapellu þriðjudag-
inn 20. desember kl. 10.30.
Útför Ólafs Vigfússonar, Austurvegi
17b, Seyðisfirði, sem lést mánudag-
inn 12. desember, fer fram frá Seyðis-
íjarðarkirkju í dag, 19. desember, kl.
-A4.
Anna Ó. Johnsen, fyrrum yfirhjúkr-
unarkona, Túngötu 7, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 20. desember kl. 13.30.
Útfór Eyjólfs Jónssonar, sem andað-
ist 12. desember, fer fram frá Ás-
kirkju í Reykjavík í dag, 19. desem-
ber, kl. 13.30.
Ingibjörg Jóna Guðlaugsdóttir, Nóa-
túni 24, verður jarðsungin frá Há-
teigskirkju þriðjudaginn 20. desem-
ber kl. 13.30.
Herdís Gróa Karlsdóttir lést 9. des-
ember sl. Hún var fædd á Gunnfríð-
arstöðum í Austur-Húnavatnssýslu
23. júlí 1915, dóttir Guðrúnar Sigurð-
ardóttur og Karls Jónssonar. Fyrri
sambýlismaður Herdísar var Sigur-
hjörtur Pálsson. Þau eignuöust sam-
an tvo syni. Síðari sambýhsmaður
hennar var Guðni Skúlason, en hann
lést fyrir tæpu ári. Útför Herdísar
verður gerð frá Fossvogskirkju í dag
kl. 13.30.
Tilkyimingar
Á sjóræningjaslóðum,
ný barnaplata
Út er komin barnaplatan Á sjóræningja-
slóöum, þar sem aöalsöguhetjan er Afi
er afar skemmtilegt leikfang.
Bíllinn gengur fyrir rafhlööum
en framan ábrautinni
er stýri og gírar,
sem hægt er aö
Laugavegi 164
iwiiynrw$i¥nr
egi 164, sími 21901 1
gamli á Stöð 2, sem löngu er orðinn kunn-
ur af sögum, sprelli og ljúfmannlegri
framkomu, í barnatíma Stöövar tvö. Örn
Árnason, leikari og grínisti með meiru,
leikur Afa gamla og samdi hann einnig
allt efnið og öll lögin á plötunni, alls átta
lög, og flytur þau. Jónas Þórir annaðist
útsetningar. Platan var unnin í Hljóð-
smiðjunni. Mikil gleði og bjartsýni ríkir
í þessu ævintýri, enda var ekki ástæða
til annars, eins og segir í máltækinu
„Gleði er betri en gallsúr ijómi". Útgáfu
og dreifmgu annast Taktur hf.
•. 'y' ' i-.SS'-.S&jgS&gðií.íMttflMggKSðjMMMg
Gunnar Björnsson leikur
sellósvítur Bachs
Gunnar Björnsson hefur sent frá sér
hljómplötu með sellóeinleik sínum. Á
henni leikur hann dansasvítur nr. 1 og 2
eftir Johann Sebastian Bach. Hljóðritun
fór fram stafrænt í Fríkirkjunni í Reykja-
vík á vegum Halldórs Víkingssonar. Plat-
an er beinskorin (Direct Metal Master-
ing) og framleidd hjá Teldec í V-Þýska-
landi.
Ný hljómplata frá
Fóstbræðrum
Karlakórinn Fóstbræður hefur nú sent
frá sér hljómplötu meö 11 íslenskum
sönglögum á léttu nótunum. Heiti plöt-
unnar er Fóstbræður syngja vinsæl ís-
lensk lög. Hér eru á ferðinni vinsæl og
alþekkt íslensk sönglög með nýstárlegu
sniði sem ekki eru á hefðbundinni efnis-
skrá kórsins. Val laganna er viö það mið-
að að sem flestir geti notið þeirra. Það
eru félagar úr Sinfóníuhljómsveit íslands
og hrinsveit með Árna Scheving, Grétari
Örvarssyni og Birgi Baldurssyni sem
leika með í flestum laganna. Einnig leika
þau Jónas Ingimundarson og Helga B.
Magnúsdóttir á píanó í tveimur laganna.
Gylfi Gunnarsson tónlistarmaður
raddæfði og stjómaði söngmönnum í öll-
um lögunum nema laginu á Sprengi-
sandi. Því stjórnaði söngstjóri Fóst-
bræðra, Ragnar Björnsson. Lögin voru
tekin upp í Studíó Stemmu nú í haust.
Bókaútgáfan Öm og Örlygur sér um
dreifmgu á plötunni.
TILVALIN JÓLAGJÖF FYRIRÞÁ SEM ALLT EIGA:
Hægt er að hafa kortið upp á ákveðna upphæð
eða greiða það eftir á með Visa og Euro.
NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 18833.
Hljómplata með kór
Keflavíkurkirkju
Út er komin hljómpiatan Drottins dýrð-
arsól á vegum Kórs Keflavíkurkirkju. Á
henni syngur kórinn þekkta hátíðar-
sálma og önnur kirkjuleg verk er sum
hafa ekki áður komiö út á hljómplötu.
Undirleik annast félagar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Tónlistarskóla
Keflavíkur. Dr. Orthulf Pmnner leikur á
orgel. Einnig koma fram einsöngvararnir
María Guðmundsdóttir, Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, Sverrir Guðmundsson
og Steinn Erlingsson. Stjórnandi er Sig-'
uróli Geirsson. Hljóðritun fór fram með
stafrænni tækni í Keflavíkurkirkju á veg-
um Halldórs Víkingssonar. Hljómplatan
er beinskorin (Direct Metal Mastering)
og framleidd hjá Teldec í V-Þýskalandi.
Fólk getur pantað plötuna í símum
92-11905, 12417, 12275 og 12416.
Tilkyimingar
Jólagleði framhalds-
skólanna1988
veröur haldin á Hótel íslandi þriðjudag-
inn 20. desember. Þar mun fjöldinn allur
af tónlistarmönnum flytja lög af nýjum
plötum þeirra. Meðal þeima sem fram
koma eru Sálin hans Jóns míns, STRAX,
Síðan skein sól, Stjómin, Eyjólfur Kristj-
ánsson, Geiri Sæm & Hunangstungliö,
Bjartmar Guðlaugsson, Sh. draumur, Ný
dönsk o.fl., o.fl. Miðar fást við innganginn
og í flestum hljómplötuverslunum á
Reykjavíkursvæðinu. Eirrnig verða seldir
miðar á útvarpsstöðinni Útrás (Hljóðver-
ið er í FB undir sundlauginni) þriðjudag-
inn 20. des. Miðaverð kr. 1.000. Tónleik-
arnir heQast kl. 21 og standa til 03.00.
Húsið verður opnað kl. 20.
Litlu jólin
Út er komin jólaplatan Litlu jólin. Á
henni em 18 ekta íslensk jólalög. Á plöt-
unni syngur flmm ára stúlka, Anna Júlía
Eiríksdóttir einsöng. Einnig eru börn á
öllum aldri og Guðmundur Rúnar. Sér-
stakur gestur kemur fram en það er Guð-
laug Helgadóttir. Hljóðfæraleikarar em
ekki af verri endanum. Stefán P. sá um
gítar, hljómborð, útsetningar og fl. Ás-
geir Öskarsson um trommur og Sigurður
Ingi Ásgeirsson um rafbassa. Platan er
tekin upp í stúdíó Gný. Þessi hljómplata
er ekta fjölskylduplata þar sem yngri
kynslóðin getur lært jólalögin fyrir jóla-
ballið. Platan fæst í öllum hljómplötu-
verslunmn. Útgefandi er Hljómleiti GRL.
Eru jólin
hátíð barnanna
eða Bakkusar?
Hugsaðu málið