Þjóðviljinn - 24.12.1949, Blaðsíða 33
þjóðvi-ljinn
tflin 1949
MYRKHRÆÐSL A
E í t i r
■
ð
* ,sJ a
Gunnar Benedikfsson
«
Lögreglan var látin tilkynna, að þingmönnum væri leyfi-
legt að yfirgefa þinghúsið. Sumir létu ekki segja sér það
tvisvar og fóru samstundis út, en aðrir fóru sér hægt að oflu.
Meðal þeirra var }ón bóndi í Koti. Honum datt í liug að fá
sér kaffi hérna í húsinu, en þar sem enginn annar þeirra, er
inni voru, sýndi tilburði í þá átt, þá vildi hann heldur ekkert
við það eiga. Hann yrti ekki á neinn, af því að honum þótti
það svo undarlegt, að enginn skyldi yrða á hann. Og þó voru
Frambald á bls. 34
Allmargir af ferðafélögunum sóla sig í gamalli rúst niðri
við á, rétt hjá Tungufelli, birgðaskála F. A. Þeir bíða — eftir
bílunum! Svo koma þeir og setjast í sæti sín. Það er ekið af
stað út dalinn. Staðnæmzt aftur: Sigurður Þórarinsson hefur
týnzt! Nei, þarna kemur hann hlaupandi, hann hafði bara
skroppið út í hlíðina til að grafa eftir gosösku. Meðan við
bíðum lítum við til baka, upp í Hafrárgljúfrin. Á barmi
þeirra liggur vegurinn niður í dalinn. ,,Eg hefði ekki einu
sinni þorað að ganga þarna hefði ég vitað á hvílikum glot-
unarbarmi við vorum“, varð einhverjum að orði. Jóivm; es
Kolbeinsson dregur fleyg úr vasa sínum, hann er vinur vina
sinna og kann að koma þeim á óvart. Við fögnum unnum
sigri. Við sem sóluðum okkur aftan á vörubílnum alla leið
frá Hveravöllum, teljum þetta eina skemmtilegustu bílrerð,
er við höfum farið. Það gerir gæfumuninn að hafa sólskin og
útsýn til allra átta.
Þegar bíllinn brunar af stað út dalinn hotfum við enn upp
á brúnina, í átt til öræfanna. Sennilega verður það ekki fyir
en á næsta ári að við böðum okkur í tæru heiði þeirra, hlusc-
um á þögn þeirra-----------Og allir munum við taka undir
orð Hallgríms Jónassonar: v
Það er margt, sem byggðin ber,
blóm, í skarti sínu,
en auðnin bjarta ávann sér
ást í hjarta mínu.
Hér eru bílstjórarnir í ferðinni, en þeir voru fararstjórar
ásamt Einari Magnússyni menntaskólakennara. Þeir eru,
talið frá vinstri: Egill Kristbjörnsson — hann var bílstjóri í
baeði skiptin, sem ekið hefur verið á Dyngjujökul. Guð-
munclur Jónasson, hann er landskunnur fyrir. óbyggðaferðir
sínar. Einar Magnússon menntaskólakennari, en þeir Sigurð-
ur frá Laug fóru fyrstir manna í bíl til Hvitárvatns 1930,
árið eftir fórn þeir fyrstir manna langleiðina í Landmanna-
laugar og 1933 óku þcir einnig fyrstir yfir Sprengisand. Yzt
til hægri er Ingimar lngimarsson bílstjóri, en hann mun hafa
átt hugmyndina að því að fara Eyfirðingaveg í bilum. ,
k