Þjóðviljinn - 24.12.1949, Blaðsíða 1
N N
Jólin 1949
Guðmundur Böðvarsson:
Fjallbaksvegur
Nu veiztu — nú veiztu hver arfleifð aldanna var
til íslendingshjartans á grýttum förumannsvegi:
sú freisting að velja scr skjól undir skútanum, þar
, sem skaflinn mun vcrða mestur á næsta degi.
%
Nú grunar þig hversvegna er reimt þegar rökkvar, í fönn
og rjúkandi bylurinn ærist að Iúðri sínum,
nú skilur þú líka hversvegna sagan er sönn
um svcfninn í snjónum cr lokaði augum mínum.
Ég reisi mín bein upp við dogg í dynjandi hrið.
Þá drcgst ég á fót og sveima á öræfaleiðum,
ég leita að sporum, ég lcgg við hlustir og bíð —
og lcngi er þó nokkur fengsvon á íslenzkum heiðum.
Því til eru þeir sem streitast með bogin bök
þó bjóðist þeim uppgjöf í skjóli og lokkandi friður,
hvað tæpt scm þcir standa, hvað krappt sem þeir verjast
þá vilja þeir samt ekki grafa sig lifandi niður. [í vök,
Og bylurinn æðir og felur hið fölnaða lyng
og frostsins helkaldi eldur í myrkrinu brennur,
og vei og vei — samt ganga þcir heldur í hring
á holtinu, þar til dagur í austri rennur.
Trúðu þeim ckki! Þeir trássast við dauða sinn
og tönnlast á því að fögur sé morgunsólin.
— En fylgdu mér fast í dimmunni, drengur minn.
í Dauðsmannsgili skuluin við lialda jólin.
ÞJOÐV LJ