Þjóðviljinn - 24.12.1949, Blaðsíða 38

Þjóðviljinn - 24.12.1949, Blaðsíða 38
ÞJÓÐVILJINN k fúlin 1949 Téklcncski verkfrættingurinn Norak hefur fundiS upp þennan rafknúða barnabíl, sem nú er hafin framleiðsla á í A8AP-verksmiSjunum í Miaga Bole- slav. Bílnum er hæ.gt að aka með 4 til 30 kílómetra hraða á klukkustund og straumurinn frá rafgeyin- unum, sem eru 12 volta, endist í 25 kílómetra ferða- lag. Bíllinn er enn sem komið er aðeins framleiddur i'yrir tékknesk barnaheimili. Og hitinn var svo mikill, að flestir gengu í stuttbuxum einum klæða, nema hvað kvenfóikið vafði litlum dulum um brjóst sín. Eg reikaði um í borginni. Og inná hótelunum sátu feitir auðmenn og uppskrælnaðar kerlingar, og höfðu blævængi og átu ís. Þeir áttu gott, sem áttu aura fyrir is. Á morgnana, þegar ég kom út, var mjólkurmaðurinn að fara með vagninn framhjá, og hófaskellirnir á grjótinu voru eins og líksöngur morgunsins —-------- Eg leitaði vinnu. Og á hverjum morgni, þegar ég komfyrir hornið, sat lítill drengur á brún gangstéttarinnar og lék sér að ryðguðum dósum og þornuðum hrossaskít. Þetta var gömul gata, húsin há, gatan mjó. Eg leitaði vinnu. Og á hverju kvöldi, þegar ég kom til baka, var litli dreng- urinn horfinn — og gatan einsog eyðimörk, ofurseld vonzku fúllvaxinna manna. V' 'Eg hafði ekki talað við nokkurn mann svo vikum skipti, nérha rétt það nauðsynlegasta. Og ég hafði ekki talað við börn í marga mánuði. Einn morguninn hugsaði ég um litla bróður minn heima á:íslandi, um öll litlu börnin heima á íslandi, því það er svo gaman að horfa á lítil börn og tala við lítil börn. Og ég stanzaði hjá litla drengnum, sem sat á gangstéttinni — og sagði: t, ■ .... — Sæll, litli drengur. Og hann leit upp, — og augu hans voru brún, hár hans dökkt. Hann skildi mig ekki. Eg reyndi aftur, en hann skildi ekki. Það var sælgætisbúð þar rétt hjá, og ég keypti sleikjupinna og rétti honum. Og ég sagði á íslenzku: — Gerðu svo vel, vinur minn, — og klappaði á óhreina, dökka kollinn hans. Hann leit á mig þakklátum augum, og sagði eitthvað, sem ég skildi eklci. Og svo hélt hann áfram að leika sér að sín- um ryðguðu dósum, sínum þurra hrossaskít. Eg gekk áfram upp í borgina. Og ég. var glaður, því að nú átti ég einn vin í þessari stóru borg, En það var engin vinna. A hverjum degi leitaði ég vinnu í hitanum og svækjunni, ber innanum alla bera. En það var ekkert að gera. Á hverju kvöldi kom ég heim, þreyttur og vansæll og gat varla sofnað vegna hitans. Á hverjum morgni hitti ég vin minn og gaf hunum sleikju- pinna. Og hann sýndi mér dósirnar sínar og hrossaskítinn. Hann var vinur minn. Hvað er varið í að eiga vini, sem eru —-..orðnir? Vinur minn var einn af öllum þeim skara, sem nefnist einu nafni börn. Og börn eru það bezta í heiminum. Og hversvegna skyldi ég þá ekki vera glaður, þótt ég fengi enga vinnu og talaði aldrei við neinn? ------ -------_______ J________
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.