Þjóðviljinn - 24.12.1949, Síða 42
I
Þ JÓÐVIL JINN
42
lólin 1949
, . :
.
''i
.^Xvv ,
’'/Z$ZívÁ-,v.- w'/tf/p:
ýýý ■
ýý'ýýyýyy
mm
ý.'ýýýýý.
Danskur landmælingamaður á Grænlandi fær sér skemmtiferð í hundasleða á hafísnum milli þess sem
hann kortleggur landið úr flugvél.
sáu ekki. Hann var til dæmis orðinn sannfærður um að
þarna niðri voru ekki einungis stjörnur, tungl og sól, öfug-
ur himinn og titrandi fjöll, heldur jafnframt laufgrænir
skógar eins og sagt er frá í Þúsund og einni nótt, víðáttu-
mikil engi hvít fyrir fífu, rennislétt tún og glóandi demanta-
vörður á holtum og hæðum. Það spruttu fíkjur á trjánum
og matbaunir í hverjum varpa, en lifrauð fiðrildi á stærð
við álftir flögruðu án afláts yfir jurtum og gimsteinum. Og
á næturnar sungu blómin.
Hann þegir um stund og horfir á tjörnina eins og hann
sé að virðá fyrir sér dráttu ósýnilegrar myndar. Þorsteinn
tvístígur við hlið honum, trúir orðum hans mátulega, þyk-
ist jafnvel vita, að undir þeim búi einliverskonar herbragð,
en bíður þess öngvu að síður óþolinmóður að hann haldi
áfram að segja frá veröldinni niðri í tjörninni: Það hefur
ekki komið á hann jafnótvíræður sögusvipur síðan í hjá-
setunni í sumar, að hann fór að tala um undarlegt land
handan við sjö fjöll í austri, hlýtt land og bjart, þar sem
fullorðið fólk riði til kirkju á háfættum úlföldum, en börn
og unglingar tvíménntu á krókódílum og drekum.
Hvað varstu að segja Bjöggi, syngja blómin? spyr haniíi
varfærnislega þegar honum þykir þögnin vera orðin helzt
til löng.
Já á næturnar syngja blómin, rétt eins og þrestir og sól-
skríkjur, en þagna skömmu íyrir rismál og loka krónum
sínum, líklega vegna þess að þau eru íeimin í dagsbirtu eða
hrædd við kýrnar. Það heyrist aldrei blómasöngur niðri í
tjörninni meðan sól er á lofti. Aftur á móti kvaka marglitir
fuglar í trjánum þegar fólkið er komið á fætur og farið út í
skóg, að tína fíkjur og gimsteina.
Hvaða fólk Bjöggi?
Fólkið þarna niðri drengur! Fólkið í tjörninni!
Hvurnin ætti fólk að lifa í vatni? spyr Þorsteinn hróð-
ugur. Það mundi drukkna! 1
Aldrei skilur þú neitt, svarar Björgvin eftir nokkra um-
hugsun. Lifa ekki silungar í vatni?
Þeir eru ekki fólk.
Nei, þeir eru ekki fólk, það veit ég vel, en þeir drukkna
r