Þjóðviljinn - 24.12.1967, Side 10

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Side 10
ÆVINTÝRIÐ UM EMILJAN OG RÁÐSNJÖLLU KONUNA HÁNS INNAN- TÓMA TRU MBAN Daglaunamaður að nafni Emiljan var dag nokkurn á leið til vmnu sinnar, þegar svo bar til að við nærri lá að hann stigi ofan á frosk, sem á vegi hans varð. í sama bili heyrði hann einhvern kalla til sín. Hann leit þá við og sá fallega stúlku. og mælti hún svo tii hans: „Hversvegna giftist þú ekki, Emiljan?" „Hvernig ætti ég að geta það, fallega stúlkan mín, ég þekki enga. sem mundi vilja mig.“ „Þá skaitu eiga mig.“ Emiljan leizt afar vel á stúlk- una. „Það mundi ég vilja, en hvar ættum við að vera?“ „Hafðu engar áhyggjur af því,“ sagði stúlkan. „Við skulum vinna mikið og sofa lítið, þá tekst okkur ugg- laust að sjá okkur farborða." „Gott og vel, þá skulum við taka saman,“ svaraði hann. „En hvert eigum við að fara?“ „Við skulum fara til borgar- innar.“ Síðan fóru þau, Emiljan og stúlkan, til borgarinnar. Þau settust að í litlum kofa í út- jaðri hennar, og giftust og fóru að bolloka þarna. Þá bar það við einn dag, að konungur landsins fór þarna hjá. Kona Emiljans kom út úr kofanum til þess að horfa á hann. En þá er konungurinn sá hana, varð hann mjög undrandi. „Hvaðan getur hún verið hing- að komin, þessi fallega kona?“ hugsaði hann. Síðan stöðvaði hann vagn sinn, kallaði á konu Emiljans og ávarpaðj hana. „Hver ert þú,“ sagði hann. „Ég er kona Emiljans bónda“. svaraði hún. „Hvernig stóð á því, að þú, svona falleg kona, fórst að giftast bónda? — Þú ættir að vera drottning!“ „Þakka yður fyrir þetta 10 - JÓLABLAÐ hrós“, svaraði konan, „en ég er ánægð með manninn minn“ Konungurinn talaði meira við hana, og ók síðan leiðar sinnar. Hann fór til hallar sinnar, en gat ekkj gleymt konu Emiljans. Alla nóttina lá hann vakandi, og hugsaði ráð sítt. Engin ráð, sem honum duttu í hug, þótti honum mundu duga, og því kallaði hann á þjóna sína og bað þá að ráða fram úr þessu. Þjónarnir sögðu svo: „Kallið á Emiljan hingað til hallar- innar. og fáið honum verk að vinna. svo erfitt. að það verði hans bani. Þá verður kona hans ekkja, og þá getið þér, konungur gifzt henni“. Þetta þótti konungi þjóðráð. Hann lét kalla Emiljan fyrir sig og skipaði hann verkmann sinn og bauð honum að búa i höllinni ásamt konunni. En kona Emiljans sagði við hann: „Farðu til hallarinnar og taktu að þér verkið, en komdu heim til mín á hverju kvöldi". Emiljan fór, og er hann kom til hallarinnar, sagði bryti kon- ungsins: „Hvers vegna kom kona þín ekki með þér?“ „Á hún nokkurt erindi hing- að. Hún þarf að gæta heimilis- ins“. Síðan var Emiljan fengið tveggja manna verk, og meira en það, og þóttist hann ekki mundu geta lokið því. En þeg- ar kvöld var komið. var því samt lokið, Brytinn sá þetta og fé’ k honum helmingi meira verk næsta dag. Emiljan fór nú heim, og var þar góð að- koma, allt í röð og reglu, eld- ur í ofni, matur á borði, og konan sat við sauma sfna og var að bíða eftir honum. Hún bauð hann velkominn og spurði tíðinda. „Ekki er gott að frétta,“ sagði hann. „Mér var fengið erfiðara verk en svo, að ég þyldi það. Þeir ætla að þrælka mig til dauða". „Hafðu ekki áhyggjur af verki þínu,“ sagði konan. „Líttu ekki upp úr neima til að sjá hve miklu er lokið og hve mikið er eftir. Stattu aldrei við og sjáðu svo til.“ Emilja fór síðan að sofa. En morguninn eftir fór hann aft- ur að sinna verki sínu, og leit nú aldrei upp. Og sjá! Því var öllu lokið um kvöldið, og þeg- ar rökkvaði, gat hann farið heim til sín. Með hverjum degi var hon- um fengið meira og meira að gera, en aldrei fór svo, að hon- um tækist ekki að ljúka því. Þegar vika var liðin, sáu þjón- ar konungs, að honum mundi aldrei verða ofboðið með strit- verki, og fengu honum nú vandasamari verk. En hvort sem hann var skipaður til tré- smíða, múrsmíða eða að þekja hús, lék þetta allt í höndum hans, og hann náði heim til konu sinnar fyrir nóttina. Og svona leið önnur vika. Þá kallaði konungur þjóna sína fyrir sig og sagði við þá: „Ekki koma ykkar ráð að gagni, og vil ég nú helzt segja ykkur upp allri þjónustu. Tvær vikur eru liðnar, og við erum jafn nær. Þið sögðust mundu geta þrælkað Emilja til dauða, en ég sé úr glugganum mínum hvar hann gengur heim til sín á hverju kvöldi, kátur og syngj- andi. Eruð þið að draga dár að mér?“ Þjónarnir fóru að afsaka sig: „Við gerðum allt, sem í okkar valdi stóð til þess að þreyta hann, en hann stóðst það allt. Það er eins og hann sé óþreyt- andi við erfiðisverk. Þá reynd- um við að fá honum vanda- söm verk, sem við héldum hann. væri óvanur, en hann kunni skil á þeim öllum. Það er sama hvað honum er fengið afl í 1 ■i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.