Þjóðviljinn - 24.12.1967, Síða 39

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Síða 39
Jón í sveitinni barniö Ó, hamingjan góða, er viðreisnin komin í vaskinn? Verðbólguskrattinn heldur enn gildi sínu, hjá vinnandi stéttum er lítið að láta 1 askinn, svo lífsvonin hefur dofnað í hjarta mínu. Og það sem ég borða er annað hvort skyr eða skata. Mér skammtar nú kvíðinn margar andvökunætur, en væri ég skyldur háttsettum hægri-krata, þá hefði ég reynt að svindla út fjölskyldubætur. Ég skattana borga með ellistyrknum hans afa, já, erfitt er sumum með greiðslur í dýrtíðinni, en framleiðslustyrki þótti ekki hentugt að hafa handa þeim mönnum, sem bíða eftir ómegðinni. Að klófesta styrkinn ég reyni með einhverjum ráðum. Refseðlið fylgir yfirleitt mannlegum hjörtum. Það á að smygla inn börnum úr harðplasti bráðum, nú bý ég mig undir að kaupa grisling á svörtum. En margur sem bíður er gremju og vonleysi gripinn. Það glepur þó fyrir að æskan er sífellt að djamma. Þegar fréttist um krakkann varð húsfreyjan hýr á svipinn og hrópaði í sífellu: Ég er að verða mamma! En verðbólgan eykst og lánsfjái'skorturinn líka, ég leysi út barnið með tilstyrk flokksbræðra minna, ég er að hugsa, hvað gerir þá ríku ríka, reyna ekki greyin að bjargast á kostnað hinna? í Framkvæmdabankanum endaði lánsfjárleitin, loksins gat heimurinn séð mig andlega brattan. Ef beljurnar mjólkuðu líkt og Huppa mín heitin, þá hefði ég sjálfur borgað út krakkaskrattann. Húsfreyjan ta-utar: Já, það get ég sagt með sanni, nú svekkti mig ekki níu mánaða hóstinn. En þegar hún fagnar nýkeyptum myndarmanni mér varð á að spyrja- Hvar eru gervibrjóstin? Langþráða drenginn fengum við fallega skaptan, til föðurhúsanna kemur hann tveggja vetra. Ó, blessað krúttið með augu og kollvik að aftan, þetta er abstrakt maður, ég hef ekki vitað það betra. Ekki þarf matinn, svo drengurinn okkar dafni. Það er dálítið skrítið, hann stækkar víst aldrei neitt. En strákurinn heitir afar auðsælu nafni, að öllum líkindum kemst þá greyið í feitt. Sýslumann varð ég formsins vegna að finna, því flestir vilja nú hlynna að drengnum sínum, og þjóðin sem hefur gefið með grislingum hinna gæti nú eitthvað borgað með stráknum mínum. En sýslumaður var þungur á brúnina og þyrkinn. Já, þeir fá verðlaun sem eignast börnin með konum. En ægilegt verður að fá ekki fæðingarstyrkinn, þvi fjölskyldubæturnar koma á eftir honum. Kvennamaðurinn tryggingarpyngjuna plokkar, peninga rrkisins ætti ekki þjóðin að spara. En styrkjavana er aðkeypta barnið okkar, ég ætla mér bráðum hina leiðina að fara. JÓLABLAÐ - 39

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.