Þjóðviljinn - 24.12.1967, Side 59
því ekki samúð, — skilning. ,
Dengsi: Tja, presturinn virð-
ist augljáslega kominn á aðra
eikoðun en hann hafði hið
jninnisstæða vor þegar hann
kom mér í kristinna manna
töiu. Eða fannst honum þá
ekki annað viðeigandi en hafa
á frammi fullyrðingar um einn
algildan sannleika af því hann
stóð frammi fyrir altari kirkj-
unnar og var að uppfræða
börn. Kannski það sé ófrávíkj-
aniegt regla kirkju Krists, að
andiegt fóður barna séu vís-
vitandi lygar presta. —
Prestur (réttir upp hendi):
Svona svona, hættu hættu —
Dengsi: Væri prestinum kann-
ski einhver fróun í því að ræða
við mig þróunarkenningu, sköp-
un heims og manns, að ég svo
ekki tali um syndafall. Finnst
prestinum ekki stórbrotið og
kennimannilegt að berja þetta
hugþekka ævintýri inn í opinn
hug barna, sem heilagan al-
gildan sannleika, tjáðan fyrir
munn guðs. (Þögn).
Prestur: Þetta eru hörmuleg
viðhorf. Mig hryggir óumræði-
lega mikið að hafa ekki tek-
izt að skapa hjá þér jákvætt
og kærleiksríkt hugarfar, þar
er að sjálfsögðu mín sökin. —
Dengsi (hlær): O, hafið engar
áhyggjur. Ykkar sérstæði sið-
gæðisheimur ferst varla þótt
stöku krakkar falli út úr þeim
þrúgandi vanskapnaði.
Prestur (eins og við sjálfan
sig): Ég hefi alltaf viljað leggja
áherzlu á kærleikskenningu
Krists og fagnaðarerindið. En
drengurinn virðist eingöngu
hafa tileinkað sér það nei-
kvæðasta.
Dengsi: Æ, æ, æ. Er þá líka
til eitthvað sem heitir nei-
kvætt guðsorð. Ohoho. Eigum
við ekki að hætta þessari
þvælu, og taka heldur til með-
ferðar það sem ég veit að þér
eruð alltaf að smjatta á í hug-
anum. Þetta sem þér kallið
vandræðaverknað og siðleysi?
Prestur: Upphaflega hafði ég
áhuga á því að ræða þau mál,
til þess að kynnast viðhorfum
þínum. Nú virðist mér vafa-
samt hvort það hefur nokkurn
tiigang. Þó skal ég Musta á þig
enn um stund. En vægðu mér
við siðilausum munnsöfnuði.
Dengsi: Þér þekkið söguna
prestur minn, Fugiar heimsins
eiga sér hreiður en mannsson-
urinn hefur hvergi höfði sínu
að að halla. Ég var rekinn út
úr þessu húsi í fyrradag. Ég
þarf ekki að fela ástarlífsat-
hafnir mínar og konu minnar,
þær eru framdar af hreinu hug-
arfari og ást. Læsta myrkra-
stofu þurftuð þér prestur minn
til þeirra athafna. En það er
yðar sök og yðar mál, en ekki
mín sök eða mitt mál.
Prestur: Guð hjálpi ykkur.
Stúlkan aðeins fimmtán ára
barn, og — og þið ekki gift. 1
einlægni tal —
Dengsi: Þegar þér prestur
hafið rifið utan af yður hina
þykku heimatilbúnu siðgæðis-
pöru, farið með konunni sem
þér e’skið upp á bílþak, og
njótið þar unaðar ástarlífs, skal
ég tala við yður í einlægni.
Prestur (réttir upp höndina):
Ohohoho, svona svona, hættu.
— Hugarfar þitt virðist hlaðið
sjálfbyrgingshætti þess sem tel-
ur sig hafa höndiað allan sann-
leik, —
Stjúpin-n (kemur inn fas-
mikill): Þú ert þá hér strák-
skepna (snýr sér að presti). Það
þýðir ek-kert að tala við þetta
eins og manneskju. Hér eftir
verða það aðgerðir. Hér eftir
þýða engin vettlingatök. Hann
verður að lokast inni í eitt
skipti fyrir öll, nú er mælir-
inn fullur.
Prestur: Hægan, hægan kaup-
maður. Ég hefi samúð með
þessum dreng, hér hafa átt sér
stað hörmuleg mistök.
Stjúpinn: Hvað segið þér
prestur. Hann er þegar langt
kominn með að eyðileggja þetta
heimili, já og ekki einungis
heimilið heldur líka fyrirtækið
(kreppir hnefa). Hann skal 1
tugthúsið. (Mæðgurnar koma).
Prestur: Þér verðið að reyna
að róa yður kaupmaður, og
reyna síðan að ræða þetta mál
rólega og af raunsæi.
Stjúpinn (opnar skáp, fær
sér vín í staup, drekkur).
Prestur: Hér hafa átt sér stað
mistök sem að sjálfsögðu eru
engum einum að kenna. Ef ttl
vill eru það trúmálin sem hafa
orðið honum aö ásteitingar-
steini.
Móðirin: Hann var mjög trú-
KLÆÐASKÁPAR
NÝ GERÐ
Sundurteknir, auðveldir í flutningum.
Standard stærðir: Br. 110 — 175 — 200
og 240 cm.
Smíðaðir einnig 1 öðrum stærðum.
— PÓSTSENDUM —
Biðjið um upplýsingar.
HÚSGAGNAVERZLUN
flXELS EYJÓLFSSONAR
Skipholti 7. — Símar: 10117 - 18742.
ef þér þurfið
á prentvinnu að halda, þá leitið
upplýsinga hjá okkur.
alls konar prenfun.
stor og smá, einiit og fjoiiit. prentsmiðjan O D D I h.f.
Greítisgötu 16. — Sími 20280 — 3 línur.
JÓLABLAÐ — 59