Þjóðviljinn - 24.12.1967, Page 62

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Page 62
Hefurðu meitt þig? ð bláinn sagt, þegar ég segi að það verði að fjarlægja strákinn eða loka hann inni áður en hann verði sjálfum sér eða öðr- um að meira tjóni en orðið er. — tlver veit nema hann lagað- ist, ef hann væri lokaður inni, einhvern smá tfma. Mútta: Ég er anzi hrædd um það, að of seint sé að hefja valdbeitingu þegar börn eru svo til uppkomin. Hufa. — Hann að verða átján ára. Stjúpinn: Eitthvað verður að gera. — Hann er að eyðileggja fyrirtækið. Fjórar konur hafa hringt í morgun og tilkynnt að þær hætti viðskiptum við verzlunina ef strákurinn verði ekki fjarlægður úr hverfinu. Og ein þeirra bætti við með mikl- um þunga: — Ég skal sjá svo um að hér í hverfinu verði mynduð samtök um að öll viðskipti við þitt fyrirtæki verði þegar í stað lögð niður, og þú og fjölskylda þín hrakin burt. — Þetta rann upp úr henni eins og hún væri að lasa upp tillögu til að leggja fyrir fund. (Drengurinn gengur út að glugga) Mútta: Hjæja. Skárri er það nú siðavendnin. Það mætti segja mér að þetta hafi verið einhverjar bölvaðar kjaftakind- Stjúpinn: Svo, æpir hann upp í hvern sem er, að fyrirtækið ástundi bókhaldsfölsun og fjár- drátt, r—, svo ég nú ekki tali um skattsvikin. Þið sjáið þarna í bókinni hvernig hann ætlar sér að útfæra þetta til þess að koma mér á kné. Drengurinn (kallar): Pabbi pabbi. Nú veit ég að það var engill. Stjúpinn: Jæja elskan mín. — Ja, ég spyr bara. Hvað ann- að get ég gert en láta loka strákinn inni. Ég var hreint ekkert að leika mér, þegar ég rak hann burt úr fyrirtækinu. Mútta: Það hefði nú samt mátt bíða að reka hann burt af heimilinu, þó þú létir hann hætta í bókhaldsdeildinni. Full- orðið fólk verður að gera hærri kröfur til sín um sjálfstjórn en unglingar á erfiðasta aldurs- skeiði. Móðirin: Æi. Farið þið nú ekki að jagast aftur. — Hann minntist eitthvað á að hátolla- vörur væru færðar undir rang- an lið. Og söluskattinn. — Hvað sagði hann um söluskatt- inn? Stjúpinn: Það er ekki hafandi eftir. Eintóm stóryrði og níð. Drengurinn (kemur til föður síns): Pabbi. Er guð pabbi engl- anna? Móðirin: En hvernig stendur á þessu. Var eitthvað að? Eða finnur hann þetta upp hjá sjálfum sér? — Þú sagðir: Þetta er aðeins smávægileg bófchaldshagnæðing. Stjúpinn: Já. Og nnsskilning- ur. Ég sagði það. — Bókhalds- ha-ha-hag- Já, það er óþarfi að glápa á mig. Ég sagði. Bók- haldsha — Mútta: Maður verður þó lík- legast að hugsa um hag fyrir- tækisins sagðirðu. (Hlær). Hó- hjá, ha ha. — Einhversstaðar verður ríkið að taka peningana til þess að halda öllu gangandi, sjávarútvegi, landbúnaði, — Drengurinn: Er guð pabbi englanna? — Pabbi. — Er guð — Hvar annarsstaðar en hjáverzl- uninni tekur ríkið tekjur sínar. — Guð, pabbi, ha? Já já. Guð er pabbi allra, elskan. Móðirin: Svo fóruð þig að jagast eins og venjulega Mamma sagði. (Hugsar). Æ. Ég ey búin að gleyma hvað þú sagðir mamma. Stjúpinn: Hún æsti hann enn meir upp á móti mér, eins og hún er vön. Ætli að orsökin fyrir þessum ósköpum liggi ekki þar. Hún hefur alltaf tek- ið hans máli, og æst hann upp, ef ég hef ætlað að aga hann. Mútta: Það sem ég sagði kom drengnum ekkert við. Ég sagð- ist bara aldrei geta skilið það að undirstöðuatvinnuvegirnir væru þyngstu ómagarnir á þjóðinni. Þetta sagði ég og annað ekki. Stjúpinn: Og þá æsti hann sig upp í brjálsemi. Mútta: Tuff. Það má sjálf- sagt kalla það ýmsum nöfnum. En ég gat nú ekki fundið að það væri nein brjálsemi þó hann segði, að þetta ætti ekk- ert skylt við efnahagsmál. Stjúpinn: Hann öskraði. Móðirin: Hann sagði: Þetta er spurning um það, hvað er sannleikur? Hvað lýgi? Hvað réttlæti? Hvað ranglæti? Er þetta eklci rétt eftir honum haft? Stjúpinn: Jú. Og blessuð gleymdu ekki rúsínunni í pylsuendanum. Þetta var nefni- lega frá hans sjónarhóli spurn- ing um það, hvað væri glæp- ur og hvað ekki glæpur, þeg- ar hægt er að lifa í bíilífi á sínum eigin styrkþegum, sagði hann. Mútta (hlær): Og baða í rós- um. Ja,há, það sagði hann líka. Og þá slóstu hann, og rakst hann út. — Sagðist ekki vilja hlusta á neitt kommúnistaþvað- ur. Þú sleppir þér alltaf í hvert skipti sem lendir í brýnu á milli ykkar. Ætli orsökina sé ekki að finna einmitt þar. Móðirin: Svona, svona. Ekki að jagast. Reynið þið að ræða um drenginn án þess að vera með persónulegar ásakanir. Mútta: Ef enginn vill taka á sig sökina, verður sjálfsagt erf- itt að finna hana. Móðirin: Auðvitað er sökin hjá okkur öllum. Það er alveg þarflaust að ásaka neinn sér- stakan! Mútta (Dyrasími hringir): Það er Beggi. Móðirin (lítur á mann sinn): Hann er að koma að kveðja. Hann flýgur út klukkan tvö. (Drengurinn hverfur til móður sinnar). Æ, skelfing erbu eitt- hvað lítill núna vinur minn. (Tekur hann á kné sér). Beggi (gengur inn); Blessað veri fólkið (Kyssir móður sína). Mútta: Það er orðið mikið langt síðan þú hefur komið. Ég hef verið að reyna að rifja það upp fyrir mér hvernig þú leizt út síðast þegar þú komst. Beggi: Bef þyngzt um eitt HAPPDRÆTTI DAS óskar öllum landsmönnum GLEÐILEGRAJÓLA og farsældar á komandi ári. HAPPDRÆTTI DAS Stjúpinn: Og ég sagði lika: KAUPFÉLAG HÚNVETNiNGA SÖLUFÉLAG A-HÚNVETNINGA Blönduósi. Öskum öllu.m viðskiptavinum gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýárs og þökkum viðskiptin á liðna árinu. 62 — J ÓLABLA0

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.