Þjóðviljinn - 24.12.1967, Page 70

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Page 70
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA Húsavík — Stofnað 1882. Þakkar öllum viðskíptavinum sínum og velunnurum fyrir liðinn tíma og óskar þeim gæfu og gengis í framtíðinni. Gleðileg jól! Samvinnumenn Verzlið við eigin samtök, — Það tryggir yður sannvirði. Kaupfélag Svalbarðseyrar Kaupfélag Stykkishólms Stykkishólmi óskar öllum viðskiptavinum sínum GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs og þakkar viðskiptin á liðna árinu. Innantóma... Framhald af bls. 11. í fjarlægasta húsinu. Þar muntu finna það sem þú leit- ar að.“ „En hvernig get ég þekkt, að það sé hið rétta?" „Ef þú sérð að menn hlýða því betur en föður og móður, þá er það hið rétta. Taktu það þá og færðu það konunginum. Ef hann segir að þetta sé ekki hið rétta, skaltu svara hon- um: „Ef þetta er ekki hið rétta, skal það verða molað“. Síðan skaltu mola þennan hlut, og fara með brotin niður að ánni og fleygja þeim út í. Þá muntu komast til konu þinnar aftur.“ Emiljan kvaddi gömlu kon- una, og lét svo hnoðað velta á undan sér. Hnoðað valt unz það kom út að hafinu, og var þar fyrir mikil borg, og fjarst í borginni var stórt hús. Em- iljan baðst gistingar og var því játað. Svaf hann þar af um nóttina, en um morguninn, er hann vaknaði, heyrði hann að faðir kallaði á son sinn og bað hann að höggva við í eld- inn. En sonurinn vildi ekki hlýða því. „Það er of snemmt," sagði hann, „það liggur ekki á.“ Þá heyrði Emiljan móð- urina kalla: „Farðu sonur minn, faðir þinn er gigtveik- ur, ætlarðu að láta hann gera þetta? Það er kominn tími til að fara á fætur.“ „Ekkert liggur á,“ svaraði sonurinn, og fór aftur að sofa. Ekki hafði hann fyrr fest svefn en mikill hávaði heyrðist ut- an af strætinu. Þá þaut sonur- inn upp, flýtti sér í fötin og var þegar kominn út á stræti. Emiljan þaut líka á fætur til þess að geta séð, hvað það væri, sem sonur hlýddi betur en föður og móður Hann sá mann koma eftir strætinu með eitthvað kringlótt í hendi, og léthann ganga á því stafshögg með hinni. Af þessu höfðu staf- að þau óhljóð, sem sonurinn hafði hrokkið upp við og farið að forvitnast um. Emiljan gekk nær til að gæta að því hvað þetta væri, og sá að það var eins og kringlóttar öskjur að lögun, og strengt skinn um báða enda. Hann spurði hvað þetta væri kallað. „Trumba,“ var honum svar- að. Emiljan varð hissa, og bað um að sér yrði fengið þetta, en því var neitað. Þá þagnaði hann, en lagði leið sína á eft- ir trumbuslagaranum. Svona gekk hann allan daginn, en að kvöldi, er trumbuslagarinn var sofnaður, laumaðist Emiljan nær og rændi trumbunni. Síðan hljóp hann og hljóp, unz hann náði heim til sín. Hann bjóst við að hitta konu sína þar, en hún hafði verið sótt og færð konungi daginn eftir að Emiljan fór í ferð- ina. Emiljan fór þegar til hallarinnar, og bað um að kon- ■ ungi væru flutt þau skilaboð, að sá sem átti að fara þang- að sem hann vissi ekki hvar var, væri kominn aftur, með það, sem hann vissi ekki hvað væri. Konungi var sagt þetta, en hann skipaði Emiljan að koma á sinn fund daginn eftir. En Emiljan lét ekki undan. „Segið konungi“, sagði hann, „að ég sé hingað kominn með það sem hann heimtaði af mér. Látið hann koma til mín, ann- ars fer ég til hans.“ Þá lét konungurinn undan, og kom fram. „Hvert fórst þú?“ spurði hann. „Ég veit það ekki’’, svaraði Emiljan „Hvað komstu með?“ Emiljan sýndi honum trumb- una, en konungurinn vildi ekki líta á hana. „Þetta er ekki hið rétta “ „Sé þetta ekki hið rétta,“ svaraði Emiljan, „þá skal það verða barið, og megi fjandinn hirða það.“ Emiljan fór nú út úr höll- inni og barði trumbuna um leið, en allir konungsmenn eltu hann, heilsuðu honum með virktum og báðust þess að mega þjóna honum. Konungurinn kallaði á her- lið sitt úr glugganum, og bann- aði að nokkur fylgdi Emiljan eftir. En enginn anzaði honum, allir flykktust um Emiljan. Þegar konungur sá þetta, skipaði honum að skila skyldi konu Emiljans, en fá í staðinn trumbuna. „Það get ég ekki,“ sagði Em- iljan. „Ég verð að berja hana og kasta brotunum í ána.“ Emiljan fór svo niður að ánni, með trumbuna, en allir her- menn konungsins fylgdu hon- um. Og er hann stóð á bakk- anum, sló hann trumbuna í mola, og fleygði þeim í ána. En hermannahópurinn dreifð- ist i ýmsar áttir. Og Emiljan sótti konu sína og fór með henni heim. Og eftir þetta lét konungurinn þau afskiptalaus, og þau lifðu langa ævi og góða saman. Mannlýsingar Hljóða-Bjarna Hljóða-Bjarni talaði ekki oft vel um það fólk, sem hann hitti á ferðum sínum. Hann komst svo að orði um hjóri, sem hann átti tal við: „Út úr konunni stóðu átján gaddar. Hún gnísti tönnum eins og sauður, fallinn í pytt, kominn að bana. En bóndinn var eins og dauðs manns skuggi á uglu“. Öðrum hjónum lýsti hann svo: „Bóndinn var eins og þoka yfir feni, en konan eins og grængolandi norðaustansj ór.“ 70 - JÓLABLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.