Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 24
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
fegurð
Veggofnarfrá kr. 47.310,- etgr.
Undirborðeofn frá kr: 46.200,- etgr.
Helluborð frá kr: 17,576,- stgr.
múla 8 • Sími 533 2800
Hjónin Sjöfn Sigfúsdóttir og Ólafur Steinþórsson meö börnin, Ólaf Gauta, Kristínu Birnu, Steinþór Örn, herrann sjálf-
an og tengdadótturina, Guönýju Siguröardóttur.
Reynir Logi Ólafsson var valinn Herra ísland á fimmtudagskvöld:
Flottastur
FÆREYJAR
hver mínúta
eftir kl.ig:oo
á kvöldin
PÓSTUR OG SÍMI
Ijrval
- henir þu lesið það nýlega?
Loftiö var rafmagnað af spennu
á Hótel íslandi í fyrrakvöld. Vinir,
ættingjar og gestir snæddu prýðis-
góðan mat á meðan átján sætustu
strákar landsins spókuðu sig um
sviðið, fyrst huggulega klæddir,
síðan í nærbuxum fyrir stúlkurnar
í salnum, loks glerfínir í íslenska
þjóðbúningnum. Dóm-
nefndin dró sig í hlé
og loks var komið
að stundinni
stóru. Drengim-
ir voru kallaðir
fram og fyrst
gerð kunn úrslit
í vali piltanna
sjáifra á vin-
sælasta keppand-
anum. Sá heiður hlotn-
aðist Samúel Sveinssyni,
25 ára strák úr Kópavogi.
Ljósmyndafyrirsæta DV var val-
in af ljósmyndurum. Sveinn Erl-
ingsson, 20 ára frá Selfossi, hreppti
þann titil. í 3. sæti varð Fannar
Freyr Bjarnason, 19 ára frá Vopna-
firði, í 2. sæti Helgi Geir Amórs-
son, 19 ára úr Reykjavík.
Pollrólegur
Loks varð spennan nær óbæri-
leg. Unnur Steinson, formaður
dómnefndar, gekk með umslagið
til Hafdísar Jónsdóttur kynnis.
Hún opnaði það og spennunni var
aflétt: Herra ísland 1997 er Reynir
Logi Ólafsson, 23 ára Reykvíking-
ur. Hann þótti flottastiu-.
„Ég sjokkeraðist alveg þegar ég
heyröi nafnið mitt nefnt. Mér
fannst flestir strákanna geta unnið
og því kom þetta mér þægilega á
óvart. Ég er rosalega ánægður,"
sagði Herra ísland þegar DV kró-
aði hann af skömmu eftir að úrslit-
in vom kynnt í fyrrakvöld. Hann
var pollrólegur og yfirvegaður,
bæði þegar hann tók við verð-
Ifinpyggmgartæki
i miklu urvali
Oryggí&gler kalt yfirborð
launasprotanum og ekki síður þeg-
ar helgarblaðið hitti hann að máli.
Unnustan, Guðný Sigurðardóttir,
átti erfiðara með að leyna geðs-
hræringunni. Enda má kannski
segja að hún eigi „sökina" á því
hvemig komið er.
„Guðný sendi nafnið mitt inn, ég
var kallaður í prufu
og siðan var
hringt í mig
og ég
spurður
hvort ég
vildi taka
þátt. Ég
var eigin-
lega furðu
lostinn og
sagði bara já,
því ekki það?
Þetta þýðir vænt-
anlega einhverjar
breytingar á mínum
högum en það mun allt
skýrast betur. Ég heyrði
t.d. fyrst af því í kvöld að
hugsanlega færi ég út í keppni
strax í desember. Ég hlakka bara
til,“ sagði þessi fjallmyndarlegi
íþróttakappi og tók við hamingju-
kossum frá fjölskyldunni.
Ánægð með hann
Reynir Logi er fæddur og alinn
upp aö hluta á Egilsstöðum. Hann
flutti ungur til höfuðborgarinnar
og starfar nú í Boltamanninum á
Laugavegi. Hann langar til þess að
halla sér enn frekar að tölvunum
og klára nám í þeim fræðum. Hann
reykir ekki, neytir ekki áfengis og
er á fullu í frjálsum íþróttum.
„Þetta er sannkallaður drauma-
drengur," sagði kona á næsta
borði við undirritaðan í fyrrakvöld
og líkast til eiga þau orð vel við.
En hvemig varð unnustunni við?
„Ég er rosalega ánægð með
hann. Hann hefur staðið sig alveg
eins og hetja. Það gefur auga leið,“
segir Guðný Sigurðardóttir og bæt-
ir við, aðspurð um afbrýðisemi
vegna allrar athyglinnar sem pilt-
urinn fær nú, að hún hafi ekki enn
fúndið fyrir henni. „Ég styð hann
heilshugar í þessu.“
Aldrei módel
Reynir Logi segist ekkert hafa
verið í módelstörfum fyrr. Hann
hafi látið til leiðast þegar hann var
skiptinemi í eitt ár, tók þá þátt í
tískusýningu. Hann segist klár í
Herra ísland 1997, Reynir Logi Ólafsson, krýndur.
hvað sem verða vill. En hvemig
líst honum á að falla inn í ímynd-
ina Herra ísland? Þarf hann ekki
stanslaust að vera að pússa sig og
snyrta?
„Þetta leggst bara vel í mig. Ég
reyni bara að vera snyrtilegur en
fyrst og fremst bara ég sjálfur. Ég
hef hingað til reynt að halda útlit-
inu í lagi en ætli maður verði ekki
að vanda sig enn meira núna,“ seg-
ir herrann og hlær. Aöspurður
hvort hann ætti von á fleiri kven-
kyns viðskiptavinum í Boltamann-
inn sagðist Reynir Logi ekkert
hafa á móti fleira fólki í búðina.
„Ég er rosalega ánægður með að
hafa ákveðiö að taka þátt í keppn-
inni. Við náðum allir vel saman og
DV-myndir ÞÖK
ég held aö við séum allir betri
menn á eftir. Ég læt gagnrýni á
svona keppni ekki trufla mig. Fólk
verður auðvitað að fá að hafa sín-
ar skoðanir en við sem tökum þátt
í þessu vitum hvaö þetta er gaman.
Ef maður telur sig geta lært af ein-
hverju sé ég enga ástæðu til þess
að taka ekki þátt í því,“ sagði
herra ísland 1997, Reynir Logi
Ólafsson, að lokum og var þar með
rokinn. Kossamir áttu án efa eftir
að verða fjölmargir þetta kvöld.
-sv
Sjá nánarí umfjöllun um
keppnina á bls. 54 og 67.
! • Eldhúsvifturfrá kr: 9.451,- stgr.