Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 26
$
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1997 L>V
26 0iglingar
Eini bjöllukórinn á landinu starfar í Bústaðakirkju:
Mjög góð æfing
í nótnalestrinum
- segja Gígja og Helena Marta, aðalsprauturnar í hópnum
Helena Marta Stefánsdóttir syngur og leikur á harmóníku og Gígja Erlings-
dóttir leikur á píanó. Að sjálfsögðu spila þær Ifka á bjöllurnar.
hafl þau aðaUega einbeitt sér að
bjöllunum. Þar fái þau mjög góða
æfingu í nótnalestrinum.
Mikið stendur til hjá krökkunum
um þessar mundir. Þeir spila nokk-
ur lög á geisladisk sem til stendur
að gefa út í Bústaðakirkju á næst-
unni. Auk bjöllukórsins syngur Bú-
staðakórinn, þeir fullorðnu, nokkur
lög og Glæðurnar, kvennakór Kven-
félags kirkjunnar, koma einnig við
sögu. Á morgun, sunnudag, leika
krakkamir síðan á bjöllumar á ár-
legum aðventutónleikum í kirkj-
unni.
Ekki að atvinnu
„Það er ofsalega skemmtilegt að
spila á aðventutónleikum. Það er
svo jólalegt. í fyrra vorum við með
bjöllurnar fyrir utan kirkjuna og
tókum þannig á móti fólkinu. Fólk-
inu fannst það alveg æðislegt," segja
þær stöllur. Þær segjast hvorugar
hafa einhverjar sérstakar vænting-
ar í sambandi við hljóðfærin. Þær
hafi gaman af því að spila en sjái sig
þó vart hafa af þessu atvinnu, a.m.k.
ekki eins og er.
Guðni organisti er afar ánægður
með krakkana sína. Hann segir
þetta duglega krakka sem leggi sig
fram við þau verkefni sem þeim sé
ætlað að leysa. Með slíku fólki sé
gaman að vinna. Sjö þeirra spila
alltaf með Guðna i barnamessum á
sunnudögum.
„Mér finnst afar mikilvægt að
virkja krakkana í starfinu héma í
kirkjunni og ég finn að fólkið í
sókninni kann að meta það sem þau
gera hér,“ segir Guðni. -sv
Bjöllukór Bústaöakirkju er nokk-
uð sérstakt tónlistarfyrirbrigði,
kannski ekki hvað síst fyrir þær
sakir að hann er eini starfandi
bjöllukórinn á íslandi í dag, ekki sá
fyrsti en sá eini starfandi. í honum
em þrettán krakkar, flestir 12,13 og
14 ára, einn er 10 ára og einn 11.
Stjómandi kórsins er organistinn
er það mikil vinna að það þýðir ekk-
ert að ætla sér að reyna að taka inn
nýja krakka á hverju hausti," segir
organistinn.
Ferðalögin
skemmtilegust
DV hitti tvær stúlkur úr kórnum
arra hljóðfæra til viðbótar við bjöll-
urnar. En af hverju Bjöllukórinn?
„Guðni bað mig að vera með. Ég
er að læra hjá honum á harmoniku
í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
mér fannst það sjálfsagt mál,“ segir
Helena Marta og Gígja segir að
þannig hafi það líka verið hjá
henni. Guðni kenni henni á píanó
Æskulýöshljómsveit Bústaöakirkju er þaö nafn sem Bjöllukórinn hefur fengiö þegar krakkarnir grípa til hinna hljóö-
færanna líka. Allir krakkarnir eru aö læra á önnur hljóöfæri en grípa síöan í bjöllurnar meö. DV-myndir E.ÓI.
Guöni Þ. Guðmundsson. Þetta er
þriðji bjöllukórinn sem Guðni er
með síðan hann fór af stað með
þann fyrsta fyrir níu árum síðan.
„Ég set saman hóp af krökkum og
síðan held ég mig við þá þar til ég
skipti öllum hópnum út í einu. Þetta
hin hliðin
sem hafa starfað mikið með Guðna.
Líkt og aðrir í Bjöllukórnum spila
þær á önnur hljóðfæri sem aðal-
hljóðfæri. Gígja Erlingsdóttir spilar
á píanó og Helena Marta Stefáns-
dóttir á harmoniku. Gígja hefur
spitað einna mest með Guðna en
Helena Marta hefur sungið hvað
mest með Æskulýðshljómsveit Bú-
staðakirkju. Það nafn hefur fest við
Bjöllukórinn þegar gripið er til ann-
og hafí beðið hana að vera með.
„Þetta er gaman og sérstaklega
gefa ferðalögin þessu gildi. Við höf-
um farið með bjöllurnar til Vest-
mannaeyja, Grímseyjar og Stykkis-
hólms og síðan stendur til að fara
vestur á firði i vor,“ segir Gígja.
Helena Marta segir bjöllukórinn
æfa einu sinni í viku. Hún segir að
yfirleitt hafi þau spilað líka á hljóð-
færin sín með en upp á síðkastið
'
fr* V 4, W-
Strakarnir eru fleiri en
stelpurnar og hafa ekki siöur
gaman af því aö hrista
' x bjöllurnar en þær.
Svavar Már Einarsson, íslandsmeistari unglinga í vaxtarrækt
Skemmtilegast með Jönu
„Ég var ekki í nógu góðu formi
í fyrra og átti því ekki von á nein-
um árangri þá. Nú var ég hins
vegar í mjög góðu formi og því
kærkomið að ná að sigra. Svona
keppni krefst rosalega mikils af
manni og því hafa síðustu vikur
verið frekar erfiðar," segir Svavar
Már Einarsson vaxtarræktar-
kappi. Hann var um síðustu helgi
krýndur íslandsmeistari í +80 kg
flokki unglinga og bar síðan sigur
í „over all“, þar sem allir unging-
arnir voru metnir saman, burtséð
frá þyngd. Efnilegt vöðvabúnt þar
á ferð!
Fullt nafn:Svavar Már Einars
son.
Fæðingardagur og ár: 22. des
ember 1976.
Maki: Kristjana Einarsdóttir.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Nemi.
Laun: Trúnaöarmál.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Nei.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Æfa, vera
með Jönu, fara í
bió og vera í
góðra vina
hópi.
Hvað
finnst
þér
leiðin-
legast að
gera? Hlusta
á nöldur
fólki.
Uppáhaldsmatur:
Svínahnakki á áramót-
unum hjá tengdó.
Uppáhaldsdrykkur: Dietkók
og vatn.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Magnús Ver
Magnússon.
Uppáhaldstímarit: Flex og
Muscle and Fitness.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð, fyrir utan maka?
Cameron Diaz.
Ertu hlynntur eða andvígur rík-
isstjóminni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest
til að hitta? Vaxtar-
ræktarmanninn
Dorian Yates.
Uppá-
halds-
leikari:
Sean
Conn-
ery.
Uppá-
halds-
leik-
kona: Ang-
ela Bassett.
Uppáhaldssöngv-
ari: Enginn sérstakur.
Uppáhaldsstjómmála-
maður: Davíð Oddsson.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
Svavar Már
í öflugri stellingu
á íslandsmótinu
í vaxtarrækt.
DV-mynd JAK
sóna: Hómer Simpson.
Uppáhaldssjónvarpsefni: X-files
og íþróttir.
Uppáhaldsmatsölustaður/veit-
ingahús: Nonna-biti.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Dagbók Önnu Frank.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM 95.7.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Steinn
Ármann.
Hverja sjónvarpsstöðina horfir
þú mest á? Sjónvarpið af því að ég
hef ekki efni á að vera með Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Þor-
steinn J.
Uppáhaldsskemmtistaður/krá:
Gaukur á Stöng.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KFÍ.
Stefnir þú að einhverju sérstöku
í framtíðinni? Verða íþróttakenn-
ari eða einkaþjálfari. Ná langt
bæði í vaxtarrækt og lyftingum.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Fór til Spánar í viku. Fór og horfði
á Vestfjarðavíkinginn og vann hjá
ísafjarðarbæ.
-sv